Vikan - 04.01.1979, Blaðsíða 7
Viltu spá einhverju um
stjórnmálalífíö hér á landi á næsta
ári?
— Stjórnmálaleg þreyta almenn-
ings fer vaxandi, og það verður
sífellt erfiðara fyrir stjórnmálamenn
að vekja á sér athygli. Vissulega
koma upp margvísleg mál á þingi,
en mikill hluti þeirra verður
svæfður í nefndum, eða að þing-
meirihluta skortir til að koma þeim
fram.
— Mikil innanflokksátök eru
framundan í Alþýðuflokki og
Sjálfstæðisflokki, og eru menn
almennt núna forvitnari um framtíð
Alþýðuflokksins. Ég spái ekki
afgerandi breytingum í forystuliði
þar, og ungu, reiðu mennirnir temja
sér ögn rólegri framkomu. Það
brestur hátt í innviðum flokksins út
af embættisveitingu úr hendi
Alþýðuflokksráðherra, veitingu,
sem er greinilega pólitísk og veldur
megnri óánægju innan viðkomandi
stofnunar og hneykslun annarra.
Heldur stjórnin velli?
— Stjórnin riðar til falls oftar en
einu sinni, en tvennt er það einkum,
sem heldur í henni lífinu. í fyrsta
lagi er það vinveitt afstaða verka-
lýðsforystunnar, en í öðru lagi hin
almenna stjórnmálalega þreyta, sem
kemur í veg fyrir, að nokkurn
stjórnmálaflokkanna beinlínis fýsi
að leggja út í slag.
Tekst núverandi ráðamönnum
frekar en fyrirrennurunum aö hafa
hemil á verðbólgunni?
— Því miður treysti ég mér ekki
að spá neinu góðu í því efni. Þetta
verður, að minni hyggju, verulega
erfitt ár í fjármálalegu tilliti, og
skapast víða miklir erfiðleikar af
þeim sökum. Öngþveiti í fjármálum
sjálfrar höfuðborgarinnar verður
e.t.v. mest áberandi, og unga fólkið
þar heldur áfram að leita út á land.
En hverju viltu spá um atvinnu-
málin?
— Það er nú ekki einfalt að spá
um þau. Það verður nóg að gera í
kringum fiskinn, aflabrögð í góðu
meðallagi. Landbúnaðarmálin
verða mjög í brennidepli, bændur
deila hart um framtíðarskipan mála.
Miklar breytingar eru framundan á
heildarstefnu í landbúnaðarmálum,
en kannski ekki á þessu ári.
Iðnaðarmenn munu leita talsvert út
fyrir landsteinana eftir atvinnu, líkt
og stundum hefur gerst áður við
svipaðar aðstæður, en ekki verða
þær ferðir allar til fjár. Iðnaðurinn á
við mikla erfiðleika að stríða á
árinu, en ekki vil ég spá neinu
sérstöku í því sambandi. Hins vegar
má vænta tíðinda í sambandi við
flugrekstur, og þar spái ég
umtalsverðum breytingum, sem
ekki ganga hljóðalaust fyrir sig.
Hvernig leika náttúruöflin okk-
ur?
— Veturinn verður snjóþungur
og allerfiður landsmönnum, og ég
vildi hvetja fólk til að vera á
varðbergi, þar sem hætta er á
snjóflóðum. Nokkurt tjón verður af
völdum veðurs, en sumarið bætir
veturinn fyllilega upp. Þá munu
iður jarðar láta til sín taka, en um
það vil ég ekkert frekar segja. Tveir
fyrirtækjabrunar verða á árinu,
a.m.k. annar þeirra af dularfullum
orsökum.
Nokkrar breytingar væntanlegar
í herstöðvarmálunum?
— Ekki spái ég því. Það verður
hins vegar alls ekki hljótt í kringum
herinn, og talsverðar umræður
verða um það, að Bandaríkjamenn
virðast í fullri alvöru farnir að
undirbúa stofnun nýrrar herstöðvar
á norðurslóðum. Veldur það
miklum áhyggjum sumra.
Hverju viltu spá um menningar-
og félagsmál almennt?
Ég spái áframhaldandi grósku í
bókmenntalífinu, en þar verður
nokkur stefnubreyting, því rithöf-
undar átta sig á því, að fólk hefur
fengið einum of stóran skammt af
neikvæðri lýsingu á vandamálum
kvenna, og lífið fer að öðlast meiri
tilgang í bókmenntunum. Allt það
umtal, sem nú á sér stað um Félaga
Jesú, mun draga dilk á eftir sér og
verður tilefni enn frekari umræðna
og jafnvel breytinga í ráðum. Leik-
listarlíf er í nokkurri lægð þetta árið,
þó kemur fram a.m.k. eitt íslenskt
verk, sem athygli vekur. Langmest
gróska er í tónlistarlífinu, þrátt fyrir
það að hljómplötuútgáfa dregst
nokkuð saman. íslenskur
tónlistarmaður nær góðum árangri
á erlendum vettvangi, svo að eftir
verður tekið.
Leysist deilan um Kjarvalsstaði?
— Lausn þeirrar deilu er ekki
langt undan, og listamenn koma til
með að una vel við sinn hlut. í heild
má segja, að menningarmál standi
með nokkrum blóma á komandi ári.
Hins vegar verðum við að sjá á bak
nokkrum af okkar fremstu lista-
mönnum.
— Vandamál unglinga verða tals-
vert í brennidepli, og unglingar
munu láta að sér kveða. Of sterkt er
kannski að tala um unglinga-
uppreisn, en við verðum tilneydd að
horfast í augu við vanda, sem hefði
mátt koma í veg fyrir.
— Þá má einnig minnast á
heilbrigðismálin, sem verða ofarlega
á baugi, en þar spái ég, að fólki með
geðræn vandamál verði meiri
gaumur gefinn en áður. Talsvert
verður deilt um framtíðarskipan
heilbrigðismála í landinu.
Sakamál?
— Fjársvikamálum fer fjölgandi,
og stórfenglegt eiturlyfjamál kemur
upp á árinu.
Er eitthvaö fleira, sem þú vilt spá
um atburöi hér innan lands?
— Ég spái tíðindum í sambandi
við virkjunarmál, en þau verða á
annan veg en búist hefur verið við.
Kann svo að fara, að brúnin léttist á
sumum.
— Ég spái gróskumiklu ári á
íþróttasviðinu, þar sem tveir
viðburðir verða einkum til að setja
svip sinn á árið. Ég er ekki viss, en
ég held, að þeir verði á sviði skíða-
íþróttar og í einhverju hlaupi. Þá
virðist mér, sem það muni verða
talsverð þátttaka almennings í
iþróttum og ekki ólíklegt, að efnt
verði til samnorrænnar keppni í
einhverri grein.
— Ég spái aðgerðum í sambandi
við húsfriðunarmál, og kemur
Bernhöftstorfan þar enn við sögu,
ég held helst, að þar verði um
einhverjar framkvæmdir að ræða.
I. tbl. Vikan 7