Vikan - 04.01.1979, Blaðsíða 22
MAÐURINN SEM
KOM INN ÚR
KULDANUM
STARMIX SH 3
(þýsk)
Verð: 65.500 kr.
Fylgihkitir: 2 sogstykki.
Sogkraftur 430 mm.
700 w mótor.
Pokastærð: 1 litri.
Aukahlutir: 100 w rafmagnsbursti á
35.500 kr.
STARMIX SM 601
(þýsk)
Verð: 92.500 kr.
Fylgihlutir: 2 sogstykki.
Sogkraftun 1500 mm.
970 w mótor.
Pokastærð: 6 litrar.
STARMIX SM 603
(þýsk)
Verð: 115.000 kr.
Fylgihkitir: 2 sogstykki.
Sogkraftun 1760 mm.
1000 w mótor.
Pokastærð: 6 litrar.
Stillanlegt sogafl.
Aukahlutir: Breiður bursti á 11.500
kr. Pappirspokar á 175 kr. stykkið.
Fást m.a. í Pfaff, Bergstaðastræti 7.
GIRMI AP20
(itölsk)
Verð: 59.000 kr.
Fylgihlutir: 4 sogstykki.
800 w mótor.
Er á hjólum.
Fæst m.a. i Rafiðjunni, Kirkjustræti
8b.
PHILIPS HR 6244
(hollensk)
Verð: 99.026 kr.
Fylgihlutir: 6 sogstykki.
850 w mótor.
Barkinn snýst i 360 gráður.
PHILIPS HR 6246
(hollensk)
Verð: 106.246 kr.
Fylgihlutir: 6 sogstykki.
850 w mótor.
Barkinn snýst í 360 gráður.
Inndregin snúra.
PHILIPS HR 6248
(hollensk)
Verð: 119.674 kr.
Fylgihlutir: 6 sogstykki.
850 w mótor.
Barkinn snýst i 360 gráður.
Inndregin snúra.
Stillanlegt sogafl.
PHILIPS HR 6215
(hoHensk)
Verð: 152.827.
Fylgihhitir: 6 sogstykki.
850 w mótor.
Barkinn snýst i 360 gráður.
Inndregin snúra.
Stillanlegt sogafl.
Gúmmfhöggvari á ryksugunni.
Mælir sem sýnir þegar pokinn
fyllist
Geymsla fyrir poka og aðra fylgihluti
inni í vólinni.
Fást m.a. i Heimilistækjum, Hafnar
stræti 3.
Hann tók eftir, að ókunni
maðurinn sat með hægri
höndina á kafi í vasa Ijósa
bómullarfrakkans. Hann
hafði séð nægilega margar
glæpamyndir til að vita hvað
það þýddi, þegar skugga-
legir náungar með svartan
fílthatt dreginn niður í augu
sátu svona með hönd í vasa,
tilbúnir til að stökkva á
fætur . . .
Harry leit á rafmagns-
klukkuna fyrir ofan glymskratt-
ann. Hún var að verða 12 á
miðnætti. Eftir tæpa klukku-
stund var komið að
lokunartíma. Þá gat hann aflæst
og slökkt ljósið. Raunar var
alveg eins gott að gera það strax.
Allir gestirnir voru farnir, og
það bættust tæplega nýir við á
þessum tíma og í þessu óveðri.
Gistihúsið var langt frá alfara
leið, og þeir fáu, sem ætluðu að
gista, voru löngu farnir í
háttinn. Hann þurrkaði síðustu
glösin og setti þau í hilluna ofan
við afgreiðsluborðið. Hann leit
út um gluggann, þar sem ískalt
regnið lamdi rúðurnar, og
stormurinn svipti til skiltinu
með nafninu „Gistihús Harrys”.
Andartak fann hann til
óhugnaðar, hann var aleinn.
Hann var nýbúinn að lesa frétt
um strokufanga, sem hafði á
flótta sinum myrt bensínsala.
Með köldu blóði. Fanginn hafði
síðast sést á þessum slóðum. Það
var aldrei að vita nema...
Harry hrökk upp frá þessum
dapurlegu hugsunum sínum við
það að dyrnar opnuðust.
Þéttvaxinn, skuggalegur náungi
kom inn úr kuldanum og hristi
af sér vætuna. Hann var
órakaður og hafði dregið
svartan fílthattinn niður i augu.
Hann horfði flöktandi augum
yfir salinn. Svo gekk hann að
afgreiðsluborðinu og bað um
viskí.
— Eruð þér einn hérna,
spurði hann svo. Rödd hans var
slík, að Harry rann kalt vatn
milli skinns og hörunds.
— Ég? Nei, við . . humm, . .
Við erum þrír. Hinir skruppu
bara frá. Þeir hljóta að fara að
koma, laug hann.
— Hvarersíminn?
Harry benti á klefa í einu
horninu. Við spilatækin. Sá
ókunni settist við borðið næst
glymskrattanum. Hann sneri
stólnum þannig, að hann sæi vel
til dyranna. Hann slökkti í hálf-
reyktum vindlingi í ösku-
bakkanum, kveikti sér í nýjum,
saug að sér reykinn, en slökkti
svo líka í honum.
Harry laumaðist til að draga
fram blaðið og fletti upp á
lýsingunni á strokufanganum,
sem nú var leitað vegna
morðsins á bensínsalanum.
Þéttvaxinn, dökkur yfirlitum,
nokkuð undir meðalhæð, í
ljósum bómullarfrakka og með
mjúkan, dökkan hatt. Þetta
passaði allt saman. Harry fann
hvernig blóðið steig honum til
höfuðs og hjartað barðist um í
brjóstinu. Hvað átti hann að
gera? Kalla á hjálp? En hvernig?
Síminn! Ef hann gætti þess að
loka vel á eftir sér, gat hann
hvíslað án þess að það heyrðist
fram í salinn. Kannski gæti
hann náð í lögregluna? Hann
2Z Vikan X.tbl.