Vikan - 04.01.1979, Side 40
Skýjum
ofar...
í kjallara
Roberts hingað að finna nýja miðla. Hún
hefði átt að vera í strætisvagninum þetta
kvöld.
Frúin birtist
í kjallara Hallveigarstaða var hver stóll
setinn. Fjöldi fólks beið við dyrnar í þeirri
veiku von að fá að standa upp við vegg.
Þessu fólki varð að ósk sinni í þann mund
sem frú Eileen Roberts gekk í salinn,
lágvaxin góðleg kona, hvíthærð, hvítklædd
og með bleikan roða í kinnum. í fylgd með
henni voru þeir Ævar Kvaran og
Guðmundur Einarsson, núverandi og
fyrrverandi formenn Sálarrannsóknar-
félagsins. Þau fengu sér öll sæti gegnt
fjöldanum, og Ævar kynnti frúna.
Eileen Roberts varð fyrst vör við
miðilshæfileika sína 11 ára að aldri, en tók
ekki til starfa sem miðill fyrr en 20 árum
síðar. Hún er sögð mikill kennari og
fræðari og hefur ferðast víða um heiminn í
þeim tilgangi. Sem stendur er hún
formaður í félagi breskra miðla.
Dulrænir hæf ileikar
Frúin hóf mál sitt hátt og skýrt. Það var
auðsætt að hér fór kona sem vissi hvað hún
var að segja. Það var hjúpur sjálfsöryggis í
kringum hana. Hún benti fólki á að það
sem nefnt er dulrænir hæfileikar sé e.t.v.
ekki eins dularfullt og margur haldi. Með
þvi að þjálfa upp næmustu skilningarvit sín
geti fólk náð langt á þessu sviði. Af
einskærri næmni gæti hún t.d. sagt margt
um það fólk sem í salnum væri.
— Tökum sem dæmi konuna á fjórða
bekk með rauða hálsklútinn.
Hún benti út í sal, og kona með rauðan
hálsklút kippist við.
— Ég sé að þetta er mjög þrifaleg kona,
og heimili hennar er bjart og fallegt.
Ævar spyr konuna með rauða hálsklút-
inn hvort þetta sé satt, og hún jánkar þvi.
Frúin heldur áfram að taka dæmi.
— Unga konan þarna á sjötta bekk í
röndóttu peysunni. .. Hún bendir aftur út
í sal, og kona í röndóttri peysu kippist
ekkert minna við en sú með rauða
hálsklútinn.
— Þessi manneskja er mjög viðkvæm og
dylur tilfinningar sínar, og hún reynist fólki
í vanda ætíð vel. Ég finn að hún býr yfir
einhverjum dulrænum krafti, en lítt
þjálfuðum. Komdu hingað til mín — já,
komdu.
Konan á sjötta bekknum stendur
hikandi upp og gengur til miðilsins. Þær
takast í hendur, og frú Roberts segist finna
mikinn kraft streyma frá þeirri íslensku og
heldur svo áfram:
— Einbeittu þér, og reyndu að sjá
hvernig ég leit út þegar ég var barn.
Sú í röndóttu peysunni, sem augsýnilega
var viðkvæm og duldi tilfinningar sínar,
vissi ekki alveg hvernig hún ætti að
bregðast við þessu. En með hönd sína í
hendi miðilsins lokar hún augunum og
einbeitir sér. Ekkert gerist. Miðillinn hvetur
hana til þess að reyna betur, sem hún og
gerir, og þá kviknar eitthvert ljós.
— Ég sé akur, stóran akur, og litla stúlku
í kjól. Þetta kom heim og saman, því frú
Roberts bjó í sveit sem lítil stúlka. í sveitum
eru akrar.
tj
• Ridgeway
L & Jones
© BulLS
-Lakkrísgerðin „Rörið" biður yður
vinsamlega að kaupa öll hlutabréfin
í fyrirtækinu, því það er að fara á
.hausinn ... -
O King Features Syndicate, Inc., 1978. VMxld rights resecvcd.
40 Vlkan X. tbl.