Vikan - 04.01.1979, Síða 47
GLA UMGOSINN
okkur ekkert við. Melissa er virkilega
myndarleg kona. Þvi getur enginn
neitað.”
„Og svo ættgöfug!” andvarpaði lafði
Wyndham. „Gæti vart verið betra.”
„Mér er sagt, að Saar eigi ekki eftir að
endast næstu fimm árin, ef hann heldur
áfram að haga sér eins og hann gerir.”
sagði George. „Allar eigurnar eru
veðsettar, og Saar er að drekka sig í
gröfina! Mér er sagt, að faðir hans hafi
gert eins.”
Báðar konurnar gáfu honum illt
hornauga. „Ég vona, George, að þú sért
ekki að gefa það i skyn, að Melissa sé
drykkfelld?” sagði kona hans.
„Nei, nei, alls ekki, slíkt kom mér
aldrei til hugar! Ég er viss um, að hún
er ágæt ung kona. En þetta vil ég segja,
Louisa: Ég mun ekki ásaka Richard, ef
hann vill hana ekki!” sagði George
ákveðinn. „Ég segi fyrir sjálfan mig, að
fyrr ntyndi ég kvænast styttu.”
„Ég verð nú að segja það,”
viðurkenndi Louisa, „að hún er' frekar
köld. En hún er í mjög erfiðri aðstöðu.
Það hefur verið umtalað síðan þau voru
bæði börn, að hún og Richard ættu eftir
að giftast, og hún veit það jafnvel og við.
En Richard heldur áfram að haga sér á
sinn andstyggilega hátt. Ég er búin að
missa allan þolinmæði gagnvart
honum!”
George líkaði frekar vel við mág sinn,
en hann vissi, að það væri fifldirfska að
rnyna að verja hann, svo að hann hélt
friðinn. Lafði Wyndham hélt áfram með
harmtölur sínar. „Guð forði mér frá því
að neyða einkason minn i óæskilegt
hjónaband, en ég lifi í óttanum um það,
að hann komi einhvern daginn með
einhverja hræðilega óæðri veru upp á
arminn og ætlist til þess að ég bjóði hana
velkomna.”
George virti mág sinn fyrir sér í anda.
Svo sagði hann með efahreim: „í
sannleika sagt, frú, þá held, ég, að slíkt
kæmi aldrei til.”
„George hefur alveg rétt fyrir sér,”
sagði Louisa. „Ef Richard gerði slíkt,
yrði ég ánægðari með hann. Mér finnst
það alveg hræðilegt að sjá, hvað hann er
ónæmur fyrir allri kvenlegri fegurð! En
eitt er öruggt: Honum getur verið illa
við kvenfólk, en hann hefur vissar
skyldur vegna ættarinnar og verður því
að kvænast! Ég er búin að kynna hann
fyrir öllum þeim konum I borginni, sem
til greina koma þvi að ekki hef ég einsett
mér, að hann verði að kvænast Melissu
Brandon. En hann vildi ekki sjá neina
þeirra, svo ef að hugarfar hans er slíkt,
þá er Melissa sú rétta fyrir hann.”
„Richard heldur, að þær séu allar á
eftir peningunum hans,” vogaði George
séraðsegja.
„Ég held. að þær megi vera það. Hvað
hefur það svo sem að segja? Þú ætlar þó
ekki að fara að segja mér, að Richard sé
rómantiskur.”
George neyddist til þess að viður-
kenna, að Richard væri ekki
rómantískur.
„Ef ég lifi það að sjá hann vel
kvæntan, get ég dáið ánægð!” sagði
lafði Wyndham, sem hafði vonir um að
lifa I þrjátiu ár i viðbót. „Hegðun hans
núna fyllir móðurhjarta mitt illum
hugboðum.”
Tryggð kom George til þess að láta i
sér heyra. „Ekki held ég það, frú, það er
enginn skaði skeður með Richard, ekki
hinn minnsti.”
„Ég hef enga þolinmæði gagnvart
honum lengur!” sagði Louisa. „Mér
þykir mjög vænt um hann, en ég fyrirlít
hann af öllu hjarta! Já, það er sann-
leikur, og mér er sama, þó að hann heyri
mig segja það! Honum er sama um allt
nema hnýtinguna á bindinu sinu,
burstunina á skónum og þvi, hvernig
neftóbakið hans er blandað!”
„Hestana sína,” sagði George I
bænarrómi.
„Ó, hestana sína! Jæja! Ég skal
viðurkenna það, að hann er frægur
ökuþór! Hann sigraði sir John Lade í
keppni þeirra til Brighton! Frábært
afrek.”
„Mjög góður í spilum,” sagði George,
hann var farinn að láta undan, en var
enn áræðinn.
„Þú getur dáð mann fyrir það að
stunda Jackson’s Saloon og Cribb’s
Parlour! ÉG dái hann ekki.”
„Nei elskan mín,” sagði George.
„Nei, alls ekki.”
„Og ég er viss um það, að þú sérð
ekkert ámælisvert við hina miklu spila-
fíkn hans. En ég hef það frá
áreiðanlegum stöðum, að hann tapaði
GALLERI LANGBRÓK
Galleriið býður upp á ýmsar tegundir listiðnaðar og
myndlistar, svo sem keramik, vefnað, tauþrykk i
metravöru, úval af handþrykktum púðum, ýmis konar
fatnað og aðra sérunna muni. Einnig er að finna gott úrval
af grafik eftir þekkta myndlistamenn.
GALLERI LANGBRÓK
Vitastíg 12
er opið mánud.-föstud. frá 1 til 6 e.h.
Enn aukin
þjónusta!
Ókeypis eyðublöð á afgreiðslunni:
Bíll: Sölutilkynningar, tryggingabréf, víxlar, afsöl
Lausafé: Kaupsamningar, víxlar.
Húsnæði: Húsaleigusamningar.
Dagblaðið er smáauglýsingablaðið
Dagblaðið afgreiðsla Þverholti 11 sími 27022
Miðstöð smáauglýsingaviðskiptanna
Smáauglýsingaþjónustan.
h
WIABIÐ
Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022
X.tbl. Vlkan 47