Vikan - 04.01.1979, Blaðsíða 51
Feigð eða... ?
Kœri þáttur!
Mig langar til að biðja þig um að
ráða fyrir mig draum sem mig dreymdi
um daginn.
Mér fannst ég vera að hætta á
vinnustað sem ég átti að hafa unnið á
ofsalega lengi — ogþað var haldin
kveðjuathöfn mér til heiðurs. Mér
fannst ég standa og taka á móti
gestum. Komu þá til mín tveir strákar
EogG með blómvönd með gulum,
rauðum og hvítum blómum og gefa
mér hann. Ég lét hann í vasa og svo
kemur annar strákur S sem ég hef
verið ofsalega mikið með í sumar.
Hann gefur mér blómvönd með
hvítum oggulum blómum, ogfylgirþví
bréf, sem ég opna og er það nokkurra
síðna langt. Sá ég þá að þetta var
ástarbréf og varð ægilega sæl og ákvað
að geyma það þangað til ég væri orðin
ein. Svo koma til mín vinkonur mínar,
M og K og gefa mér líka vönd með
gulum og hvítum blómum sem ég lét
líka í vasa og einnig blómin frá S.
Kemur þá til mín stúlka sem ég hef
aldrei séð og réttir mér gult blóm. Hún
var ofsalega feimin því mamma hennar
var með henni og ýtti henni til mín.
Önnur kemur svo sem ég hef heldur
aldrei séð og gefur mér hvítt blóm og
set ég þessi tvö blóm í sama vasa. Svo
stóð ég þarna og horfði á blómvendina
standa á borði og dáðist að þeim, hvað
þeir væru nú fallegir. Við þetta
vaknaði ég.
A.J.G.
P.S. Er égfeig eða hvað?
Það er ekkert tákn í þessum draumi, sem
bendir á feigð, hvorki þína eða annarra.
Draumur þessi merkir hins vegar tals-
verða óvænta atburði í iífi þínu og getur
þar brugðið til beggja vona. Vinir þínir
munu verða þér til mikillar gleði og
ánægju en þó munu illdeilur, sprottnar
af öfund í þinn garð, varpa þar
einhverjum skugga á. Aðskilnaður við
vin eða vini verður þér til hugarangurs
um tíma og þú færð óvæntar fréttir af
kunningja þínum. Þarna er einnig að
finna vísbendingu um fremur
skammvinnt ástarævintýri og þú ættir
að varast að láta fljótfærni ráða
athöfnum þínum í því efni.
Mig
dreymdi
Perla í
svampleikfangi
Kæri draumráðandi!
Fyrir nokkrum árum dreymdi mig
draum sem mig langar til að biðja þig
að ráða fyrir mig, þ.e.a.s. seinni hluta
draumsins því ég tel að fyrri hluti hans
hafi þegar komið fram. Ég læt fylgja
með það sem ég tel að hann (þ.e. fyrri
hlutinn) hafi táknað.
Mér fannst lítið svampleikfang liggja á
borði og var talsvert löng röð fólks
sem stóð umhverfis það og var ég þar
á meðal. Sá ég að prjónn var látinn
ganga frá manni til manns og hver og
einn stakk einu sinni í leikfangið sem
var krókódílslíki. Þegar mér var réttur
prjónninn fannst mér ég uppgötva að
eitthvað dýrmætt væri inni í leikfang-
inu og myndi sá eignast það sem hitti
á það með prjóninum. Ég sting svo og
finn að eitthvað hart verður fyrir
prjónsoddinum. Þar sem ég er að
streitast við að ná þessum „hlut”upp
úr gatinu eftir prjóninn kemur tengda-
faðir minn að og býðst til að hjálpa
mér sem ég og þáði. Eftir örskamma
stund nær hann „hlutnum” og leggur
hann í lófa mér. Sé ég þá að þetta er
undurfögur perla og þegar ég skoða
hana betur sé ég að á hana slær bláum
bjarma. Skyndilega er ég stödd úti á
götu og hjá mér stendur besta vinkona
mín. Ég sé eitthvað glitta á götunni og
þegar ég tek það upp er það önnur
perla nákvæmlega eins og sú fyrri,
nema á hana slær rauðum bjarma.
Mér fannst ég halda á báðum
perlunum í annarri hendi og kreista
fastþví engu vildi ég síður sjá af en
perlunum. Þegar ég opna lófann aftur
sé ég að þriðja perlan hefur bæst við
og er hún mjög dökk og að mér fannst
Ijót og jafnvel hættuleg hinum. Ég
fleygi henni því í götuna. Næst veit ég
af mér þar sem ég þramma í átt að
banka, þar sem ég ætla að reyna að fá
hólf undir perlurnar mínar tvær. Um
leið 'og ég kem að bankanum er mér
litið á höndina á mér og sé að hún
kreppir svo fast að hnúinn er næstum
hvítur.
Lengri var draumurinn ekki. Þökk
fyrir ráðninguna,
J.
P.S. Þegar mig dreymdi þennan draum
var ég ófrísk af syni mínum sem ég lét
heita í höfuðið á tengdaföður mínum
(mér fannst nafnið Ijótt og átti
raunverulega dálítið erfitt að sætta mig
við það). Nú er þessi besta vinkona
mín, sem ég nefndi í draumnum, um
það bil að fara að ala barn og ég sjálf
ófrísk.
Ertu sammála mér draumráðandi
góður að þetta sé ráðning fyrri hluta
draumsins?
Ráðning fyrri hluta draumsins er greini-
lega komin fram og er þar engu við að
bæta. Draumráðandi telur að síðari
hluti draumsins sé einnig kominn fram
að mestu leyti. Að þú kreppir hnefann
svo fast um perlurnar í lok draumsins
merkir aðeins umhyggju þína fyrir börn-
unum þínum tveimur og erfiðleikana
sem allar mæður eiga við að etja við
uppeldi barna. Bláa perlan boðar
fæðingu sonar en rauði liturinn á seinni
perlunni þarf þó ekki að þýða að þú eigir
stúlku, heldur getur það verið fyrirboði
þess að það barn sé skapstærra og þér á
margan hátt kærara en hið fyrra.
Draumráðandi er ekki viss um hvað
þriðja perlan boðar, hún gæti t.d. boðað
þér fósturlát síðar á ævinni.
l.tbl. Vlkan 51