Vikan - 13.03.1980, Qupperneq 22
Erlent
Hringstiginn
dularfulli
Enginn veit hver smfðaði hann né
hvernig hann er hannaður
Þær kalla stigann kraftaverkastigann.
Hann var smíðaður fyrir meira en 100
árum af dularfullum ókunnum manni
og tengir tvær hæðir i lítilli kapellu. Er
hringstigi þessi talinn tæknilegt stór-
afrek og hafa margir sprenglærðir menn
staðið og klórað sér i höfðinu yfir
honum.
„Allar reglur um venjulega trésmíði
eru þverbrotnar i þessum stiga,” segir
arkitektinn Harold Stewart, sem er einn
þeirra er rannsakað hafa stigann.
Þótt ótrúlegt megi virðast var stiginn
reistur án þess að smiðurinn notaði lím
eða nagla og í honum er enginn
miðstólpi, sem þrepin eru látin styðjast
við, eins og venjulega gerist.
Þeir sem rannsakað hafa stigann eru
þvi undrandi yfir því hvernig hann hefur
þolað hina áralöngu notkun og þá ekki
síður á því hvernig smíði hans varð að
veruleika.
Þegar kapellan var byggð skömmu
eftir 1870, í borginni Santa Fe í Nýju
Mexíkó í Eiandaríkjunum, áttu nunn-
urnar, sem að byggingunni stóðu, ekki
neinn afgang af fé til þess að láta
smiða stiga þannig að auðveldara yrði
að komast upp á kórloftið.
Nunnurnar sneru bænum sínum til
himins og báðu samfellt í níu daga til
heilags Jósefs, verndardýrlings trésmiða.
„Á siðasta degi bænaföstunnar birtist
maður nokkur á asna og hann hafði með
sér verkfæri og við. Hann reisti þennan
fallega stiga og hvarf svo á braut án þess
að nokkur fengi vitneskju um hver hann
hefði verið,” segir húsvörður Frúarkap-
ellunnar. „Stiginn var svarið við bænum
okkar og hann er vissulega kraftaverk,”
segir systir Carlann.
„Svo virðist sem einu verkfæri
smiðsins hafi verið exi og sög og viður-
inn, sem hann notaði, er ekki héðan úr
nágrenninu.” Það voru systurnar sem
komust að því að viðurinn hafði ekki
verið keyptur í Santa Fe. Þegar
verkinu var lokið hvarf smiðurinn og
síðan hefur ekki til hans spurst.
Stewart, arkitektinn sem séð hefur um
viðhald og endurbyggingu kapellunnar,
segir ennfremur: „Það er sérkennilegt að
I stiganum eru 33 þrep, jafnmörg
árunum sem Kristur lifði. En enginn
veit hver reisti stigann og nunnurnar
segja hann vera kraftaverkið sitt. Alla
vega þakka þær heilögum Jósef fyrir
stigann.”
Stiginn dularfulli sem enginn veit hver
reisti.
Skeyti .
til mín?
frá Díönu . . . kemur i dag í HauskúpulundM
Vá. Bíður J
eftir mér þar? Af stað, hetja.
Framhald.
UViKan 11. tbl