Vikan - 13.03.1980, Blaðsíða 48
IMú á tímum eigum við íslendingar
liklega mjög erfitt með að ímynda okkur
hversu mikið myrkur hefur
raunverulega verið i baðstofum gömlu
torfbæjanna með lýsislampann sem eina
Ijósgjafann. Ekki var ástand ganganna
betra, birtumagnið þar var alltaf hið
sama hvort sem uti var kolniðamyrkur
eða bjartur sumardagur — myrkur.
Svo fengum við rafmagn.
Hvílíkt undur það hefur verið að sjá
kvikna á Ijósaperu og heilt herbergi
lýsast upp I einu vetfangi. Með tilkomu
rafmagnsins var að sjálfsögðu gert ráð
fyrir raflýsingu í öllum húsuni sem
byggð voru en yfirleitt var eitt loftljós
látið nægja fyrir hvert herbergi, enda
voru stofurnar litlar. Þegar svo farið var
að byggja stærra þá þurfti meiri lýsingu,
gert var ráð fyrir vegglömpum, stand-
lömpum eða gólflömpum og
borðlömpum. Og i dag getum við valið
okkur alla þá lýsingu sem við þörfnumst.
Samt er það svo að ótrúlega ntargir eru í
algerunt vandræðunt með lýsingu híbýla
sinna, finnst þeir vera umluktir hálf-
gerðu ntyrkri enn þann dag í dag. Þetta
vandamál er að sjálfsögðu mjög
einstaklingsbundið en hér skulu nefndar
nokkrar lausnir sem e.t.v. henta
einhverjum vel. Við skulum taka hvert
herbergi venjulegs heintilis fyrir sig og
byrjum á anddyri, tökum þvinæst skála,
eldhús, baðherbergi. svefnherbergi eða
barnaherbergi, borðstofu eða stofu.
Lýsing i anddyri er ekki flókin. Þar
þarf einfaidlega gott loftljós og Ijós yfir
spegli sé hann fyrir hendi.
í skála þarf einnig að vera gott loftljós
eða óbein lýsing og ef stærð skálans er
slik að borð og stólar komast þar fyrir
gefur borðlantpi mjög heimilislega og
Itlýja birtu á móti loftljósinu.
Eldhúsið er mesti vinnustaður
heimilisins og þarf þar af leiðandi mesta
birtu, góða loftlýsingu til að lýsa vel upp
allt eldhúsið. Einnig þurfa að vera Ijós
undir öllum efri skápum því loftljós
eingöngu duga ekki til að lýsa upp
vinnuborð. Undir skápum eru yfirleitt
notaðar flúrpípur (fluorocent). Sú tíð er
liðin að eingöngu voru á markaðinum
bláhvitar flúrpípur sent ollu því að
matvælin á eldhúsborðinu fengu á sig
mjög vafasaman lit svo ekki sé talað unt
heimilisfólkið sjálft. í dag er hægt að fá
flúrpipur sem likjast mjög glóðarperulit
og reyndar koma ekki aðrir flúrpípulitir
til greina á heimilinu eins fráhrindandi
sem þeir eru.
Nauðsynlegt er að baðher’oergið sé
einnig vel lýst og þar konta flúrpipurnar
að bestum notum. Flúrpipurnar henta
vel i Ijósastokka hjá speglunt og sem
loftljós kemur hvort tveggja til greina,
glóðarperur og flúrpípur. Best er að hafa
perurnar eða pipurnar umluktar opal-
lituðu plasti eða gleri.
Þá er komið að svefnherberginu og er
þá einnig átt við barnaherbergi. Gott
loftljós með mildri birtu þarf í barna-
Vikan og Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
Vikan og Félag
húsgagna- og
innanhússarkitekta:
Guðrún I. Jónsdóttir innanhúss-
arkitekt.
LYSING
Aðeins þrjár línur og jafnvægi
mýktar og festu er notað á hárfinan
hátt Hreinni stil fyrir lampa er vart
hægt að hugsa sér, en þessi gerð
lýsir eingöngu beint niður á borðið
en gæti endurvarpað töluverðri birtu
ef borðið er í Ijósum lit.
Hönnuðir: Claus Bonderup og
Thorsten Thorup.
Umboð hér á landi: Rafbúð Domus
Medica.
P.H.-lampann þarf vart að kynna
fyrir lesendum, svo þekktur sem
hann er. Sjaldan hefur sameining
tæknilegrar útfærslu og forms náð
jafnmiklu jafnvægi, lampinn
varpar mildri birtu út i herbergið
jafnframt sem hann lýsir vel niður á
borðið án þess að nokkurs staðar
sjáist i Ijósaperu.
Hönnuður: Poul Henningsen.
Umboð hér á landi: Rafbúð Domus
Medica.
48 Víkan 11. tbl.