Vikan


Vikan - 13.03.1980, Blaðsíða 17

Vikan - 13.03.1980, Blaðsíða 17
Þýð.: Halldóra Viktorsdóttir 4. hluti síðast. Ég klöngraðist á lappir og gekk af stað réttsælis kringum húsið til þess að komast að bakhliðinni, en nam við og við staðar til að átta mig á hve langt ég væri komin. Þarna var súlan, sem ég hafði séð fyrir aftan hana, og þarna var veggjar- brotið, þar sem ég hafði fyrst orðið vör viðeinhverja hreyfingu. En samt fann ég enga iiingönguleið. Svalirnar voru hátt uppi yfir steinahrúg- unum, að framanverðu var fallhæðin um tólf fet, en hérna aftan til sýndi stór og djúp hola i grassverðinum að undir húsinu væri kjallari. Þessi hola var um þaðbil tiu feta breið og á bakkanum þeim megin sem ég stóð voru stórir steinar. Ég fór eins nærri brúninni og ég þorði og reyndi að gægjast niður.en það var ekkert að sjá nema endalaust myrkur. Þegar ég fikraði mig aftur til baka tók ég eftir því sem áður hafði farið frant hjá mér. Einhver hafði rekið niður prik og neglt þar á fjöl sem á var skrifað með rauðum störfum: HÆTTA. Já, einmitt, hugsaði ég. Það gæti enginn hafa hlaupið yfir mölina og stokkið yfir þessa gapandi holu og lent á hálfhrundum svölunum Þvi ef svo væri, þá hefði það ekki verið vera af holdi og blóði. Það var svo margt sem ég þurfti að fá svör við, allt of margt til að ég gæti skellt skuldinni á ofsjónir ofan á allt annað. Það var ekki fyrr en eftir kvöldmat sem ég mundi að Alex Robertson hafði ætlað að hitta mig I The Waggoners seinna um kvöldið. Það var ólíkt mér að vera svona gleymin og ég hugsaði með mér að ég sýndi ekki mikið þakklæti fyrir þá athygli sem hann hafði veitt mér, enda þótt þessi áhugi hans á mér væri kannski einungis vegna þess að ég líktist látinni systur hans. Ég fór beint til Julians frænda. sem sagði að auðvitað mætti ég hringja ef ég þyrfti. Hann visaði mér inn á skrifstof- una sína, gekk svo í burtu og skildi hurðina eftir i hálfa gátt. Það skipti engu máli. sagði ég við sjálfa mig. Ég ætlaði ekki að segja neitt sem hann ekki mátti heyra. En samt varð það þess valdandi að ég valdi orð min af mikilli kostgæfni þegar frú Thatcher kom i simann og heilsaði mér eins og við hefðum þekkst árum saman. Ég bað hana að afsaka mig við Alex og útskýra að ég ætlaði að vera hjá frænda minum i nokkra daga. Ég ætlaði að fara að leggja á þegar frú Thatcher sagði: „Það hringdi einhver til þin frá London fyrir nokkrum mínútum. Ég ætlaði einmitt að fara að hringja og láta II. tbl. Víkan 17 HILDA ROTHWELL: í mánaskini Eitthvað eða einhver, hvað sem þetta nú var, hreyfðist hægt í átt að mánaskininu, og ég vissi að eftir augnablik sæi ég hvað þetta væri. og síðan urðu samræðurnar ósköp venjulegar. Við borðuðum kaldan mat i hádeginu og siðan léku Vivien og Paul tennis fram eftir degi, en Julian frændi fór til her- bergis síns — til að hvila sig að því er hann sagði — en um leið og hann fór leit hann í átt til min og gerði grin að gráu hári sínu. Ég horfði á þau leika tennis smástund en gekk svo í burtu og i átt að rústunum. Meðan ég var að velta vöngum yfir öllu sem ég hafði séð og hcyrt undan- farið gekk ég eins og óafvitandi i átt að staðnum, þar sem hin óþekkta kona hafði horfið sjónum minum. Ég reyndi þrisvar sinnum án árangurs að komast að staðnum að framanverðu, en varð loks að klifra aftur niður og ég settist á grasið til að hugsa mig um. Hendur mínar voru óhreinar af rykinu og mosanum á steinunum og hárið límdist við hálsinn aftanverðan. svosveitt varégorðin. En innst inni var ég orðin alveg gall- hörð og ákveðin. Ég ætlaði ekki að gefast upp, ég ætlaði að reyna einu sinni enn. Ég reyndi að festa mér eins vel i minni og ég gat staðinn. þar sem ég sá konuna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.