Vikan - 13.03.1980, Blaðsíða 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
NÚTÍMALEG
SKÚGARFERÐ
Knútur og Karlo voru nýlega
orðnir fimmtán ára. Þeir höfðu
ekki áhuga á lærlingsstöðunum
fyrir fimm aura. Það eina sem
þeir höfðu áhuga á voru skelli-
nöðrurnar þeirra. Þegar þeir
komu heim frá þessum sjúku
vinnustöðum tróðu þeir í sig
matnum og viku síðan af
staðnum þegjandi og hljóðalaust
— niður til skellinaðranna. Þeir
spörkuðu þeim í gang og þeystu
fyrir hornið niður á plan þar sem
aðrir gæjar söfnuðust saman
fyrir framan klámbúðina og svo
gáfu þeir inn, trömpuðu á
fjölina og takmarkið var að hafa
hærra en hinn og láta vélina
sprengja með hvelli. Yvonne og
Oda komu einnig út á planið
fyrir framan klámbúðina og þær
dáðust að Karlo og Knúti því
þeir voru ofsalegir og þeir
þeyttust fram hjá þeim á
nöðrunum og hrópuðu til þeirra
uppástungur um það sem þau
ættu að gera og þá veinuðu
Yvonne og Oda og urðu enn
hrifnari af síðhærðu gæjunum
sem voru ofsalegir á skellinöðr-
unum.
— Mér er ekkert vel við það
að þið hangið þarna fyrir
framan klámbúðina sýknt og
heilagt, sagði mamma Knúts oft
og mörgum sinnum.
„Góða dinglaðu þér, kelling,
hvað í fj . . . . ættum við annars
að gera? Viltu að ég rotni hérna
í þessum skáp sem þið kallið
íbúð? Þú ert farin að kalka,
kerling!
Knútur hafði ekkert frekar
um málið að segja og það var
kannski alveg eins gott. Alla
vega hafði hann komið skoðun
sinni á málinu til skila afdráttar-
laust. Svo reif hann í sig nokkrar
kjötbollur, náði sér í einn af
sígarettupökkum gamla manns-
ins og vék af staðnum.
— Gætirðu ekki fundið þér
einhvern annan félagsskap en þá
Knút og Karlo, sagði mamma
Y vonne oft við hana. — Ég bara
þoli ekki að þú hangir sífellt með
þessum götustrákum!
— Jesús, það er ekkert að
þeim, það ert bara þú sem ert
miðaldakelling og móðursjúk.
Karlo er æðislegur, akkúrat mitt
númer, skilurðu! Þú skalt ekki
láta þér detta i hug að ég svo
mikið sem lykti af einhverjum
nrömmudrengjum með
þverslaufu, sem sitja heima hjá
sér og halda í höndina á mömmu
sinni öll kvöld! Ef það á eitthvað
að fara að rifast hérna þá get ég
svo sem flutt héðan ef það er
það sem þú ert að reyna að
segja!
Mömmu Karlos fannst heldur
ekkert sniðugt að hann gerði
ekkert annað en að þeysa um á
þessu vitlausa mótorhjóli.
— Ætlarðu niður á plan rétt
einu sinni, sagði hún þegar hann
hafði betlað út úr henni peninga
fyrir sígarettum og bensíni á
skellinöðruna. — Getið þið ekki
gert eitthvað annað til
tilbreytingar?
— Jú, við gætum auðvitað
farið niður í Æskulýðsráð að
spila Olsen Olsen, ekki satt? Eða
heklað pottaleppa með laufa-
mynstri. Furðulegt að við
skulum ekki hafa látið okkur
detta þaðí hugfyrr!
Stjörnuspá
llmliirinn 2l.m:ir\ 20.;i|iril
Skipuleggðu störf tiin
betur svo tómstundirnar
nýtist þér fullkomlega
og a þann máta sem
þér hentar best.
Fjármálin virðast i góðu
gengi og heppnin er
dyggur förunautur um
sinn.
VmliO 2l. ipril 2l.ni;ii
Misstu ekki stjórn á
skapi þinu við saklaust
fólk þótt eitthvað kunni
að vera þér mótdrægt i
einkalifinu. Það kann
ekki góðri lukku að
stýra að taka ósigri eins
og um dauðadóm væri
að ræða.
Taktu öllum breytingum
með þakklæti því
hversdagsleikinn var að
sliga þig andlega. Með
þessu hittirðu nýtt fólk
og áður litt aðlaðandi
áhugamál skjóta upp
kollinum með öðru
sniði.
Kr.hhinii 22.júni J.Yjiilí
Reyndu að sýna
náunganum meiri þolin-
mæði og skilning því
það mun gera þér
auðveldara um vik i
ákveðnu máli. Um
þessar mundir veitir þér
ekki af öllum fáanlegum
meðbyr og stuðningi.
l.jóniO 21. jtili 24.11*11*1
Eitthvað gerist i þessari
viku sem verður þér til
mikillar gleði. Slepptu
öllum rómantískum og
byltingarkenndum
ímyndunum þvi afleið-
ingarnar geta orðið
ákaflega óþægilegar.
Mikil vinna hefur legið
á herðum þínum undan-
farið og þér finnst
afraksturinn ekki fyrir-
hafnarinnar virði.
Flýttu þér þó hægt i
dómum um það þvi ekki
eru öll kurl komin til
grafar.
Fremur rólegt verður i
kringum þig fyrri hluta
vikunnar en getur
brugðið til hins verra
þann siðari. Leggðu þig
fram við að aðstoða
gamlan vin. sem er
hjálpar þurfi þessa
dagana.
Sporóilrckinn 24.okl. !!.Vnói.
Varastu að ofgera heils-
unni þótt áhuginn sé
ódrepandi. Allt bendir
til þess að þú sért undir
of miklu andlegu fargi
og ættir því að taka
lífinu með meiri rósemi
en hingað til.
Hoi*ni;i()urinn 24.nói. 2!.dcs
Stundum getur reynst
nauðsynlegt að taka sig
saman í andlitinu og
viðurkenna eigin
mistök. Öllum getur
skjátlast og þvi
þýðingarmikið að reyna
að gera gott úr öllu sem
fyrst.
Sicinöcilin 22.ocs. 20. jan.
Sýndu aðgætni i
samskiptum við yfir
spenntan ættingja þinn
sem þarf aðeins á
skilningi og tillitssemi
annarra að halda.
Hegðun hans er skiljan-
leg og ástandið er ekki
langvarandi.
\alnshcrinn 21. jan. I‘).íchf.
Þú ættir að geta lært af
reynslunni i sambandi
við málefni sem nú eru
ofarlega á baugi.
Hópstarfsemi hvers konar
gæti orðið þér mikilvæg
og líklega þarftu að taka
erfiða skyniákvörðuun í
vikulokin.
Kiskarnir 20.íchr. 20.mars
Lítið gott virðist hljótast
af breytingum þeim sem
áttu að vera þér og
þínum til framdráttar.
Þó getur hugsast að svo
verði þegar fram i sækir
ef nægilega varlega er
farið.
34 Vikan II. tbl.