Vikan


Vikan - 13.03.1980, Page 35

Vikan - 13.03.1980, Page 35
— Aðrir unglingar eiga sér holl og góð áhugamál og... — Mér kemur ekkert við hvað aðrir gera og hef enga fílingu fyrir svona kjaftæði. Vildirðu heldur að ég væri í dópi? Góða æstu þig niður og hættu þessu röfli, kelling! Svo skellti Karlo hurðum, fór niður og ræsti nöðruna og spændi sautján sinnum fyrir hornið og þandi nöðruna eins og hann gat — enda var hún útboruð og ólögleg. — Ef þið gætuð nú gert eitthvað skynsamlegra en að hanga niðri á plani með þessum skellinöðrudrengjum kvöld eftir kvöld, sagði mamma Odu. — En við höngum nú ekki alltaf þarna niður frá, sagði Oda blíðlega. Stundum skellum við okkur í bíó og sjáum góða klámmynd og stundum förum við í diskótekið upp frá og æsum liðið svolítið upp. Víst eigum við alhliða og góð áhugamál, mamma! Það munar engu að við séum komin með vængi! Og svo hengslaðist Oda út í níðþröngum buxunum og hvarf niðurá plan til hinna. Foreldrunum fannst að þetta gæti ekki gengið svona lengur og dag einn fékk faðir Knúts hugmynd. Elann kom eins og af tilviljun niður á plan eitt laugardagskvöldið. — Heyriði, sagði hann og bauð sígarettur á línuna, — það verður fínt veður á morgun. Vitið þið hvað þið ættuð að gera? Þið ættuð öll fjögur að fara eitthvað út i náttúruna, fara I skógarferð. Því hefðuð þið gott af, þið verðið svo föl og tekin af að hanga allan tímann í uppganginum eða í diskótekinu eða hérna niðri á plani. Þau pældu svontið í þessu með skógarferðina. Hugsuðu með og á móti. Tillagan hafði komið þeim á óvart en kannski var hún ekki eins út úr heiminum og hún hafði virst. — Ókei, við diggum það, kvað Karlo upp úr um skógar- ferðina, — við meikum þennan túr! Af eintómum létti bauð faðir hans enn einu sinni sígarettur á línuna og svo flýtti hann sér heim til þess að segja foreldrum hinna að honum hefði loks tek- ist að fá börnin til þess að taka sér eitthvað skynsamlegt fyrir hendur. Á meðan lögðu unglingarnir fjórir á ráðin um öflun nauðsynja fyrir ferðin. — Ég kem með búsið, sagði Knútur. — Og ég kem með sígarettur, sagði Yvonne. — Og ég kem með segulbandið, sagði Oda. — Þá er þetta allt í góðu, sagði Karlo. — Sem sagt, gengið mætir þá hér á morgun kl. tíu! — Heyrðu vinur, sögðu hin nánast öll í kór, — ætlar þú ekki að taka eitthvað með þér? — Ég? sagði Karlo og blés þunnum reykjarstrók út um aðra nösina. — Hver í fj . . . haldiði að ætli að stela bílnum? Þýð.iHP II. tbl. Vikan 3S

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.