Vikan


Vikan - 13.03.1980, Side 43

Vikan - 13.03.1980, Side 43
Framhaldssagan Þýð.: Steinunn Helgadóttir. 4. hluti „Einnig aö ég hefði neitað?” Peter starði undrandi á hann. Hann minntist rifrildisins við Susan og kuldans og fyrir- litningarinnar sem hún hafði sýnt hon- um síðan. Hann varð ekki var við neitt af þessu i fari Owens. „En ef þú hefur vitað þetta þá hlýturðu að hafa fyrirlitið mig. Hvers konar maður myndi neita að fara til London og bjarga lífi litillar stúlku?" „Maður sem hefur mjög góða ástæðu til þess,” sagði Owen þurrlega. „Það sagði égSusan.” „Þakka þér fyrir það, Owen,” sagði Peter. „En ég býst ekki við að hún hafi verið þér sammála. En ég gat ekki fengið mig til aðsegja henni hvers vegna. . . ” „Og nú, þegar þú hefur skipt um skoðun, þá þarftu ekki aðgera það. Ertu búinn að segja henni að þú ætlir til London þrált fyrir allt?” „Ekki ennþá. Þetta gerðist allt fremur snögglega. Ég vissi það ekki sjálfur fyrr en í gærkvöldi og þá sagði ég aðeins Janet Collins, móður litlu stúlkunnar, það.” Owen kinkaði kolli. „Hvað verðurðu lengi í burtu?” „Ég veit það ekki. Ég hef ekki hug- mynd um hvernig þetta gengur fyrir sig eða hve lengi þau munu þurfa á mér að halda. Susan veit þ^tta sjálfsagt allt saman.” Hann þagnjiði. Owen Jenkins hafði eindregið vísaðfe bug tilraun hans til að útskýra hvers vegna hann hefði ekki viljað fara til London. Þetta var i annað skiptið sem Peter hafði reynt að segja honum frá fortið sinni og alltaf lét Owen í það skína að honum kæmi það ekki við. En Susan myndi ekki vísa þessu á bug. Hún hafði orðið fyrir sárum von- brigðum með hann þegar hann hafði neitað að fara til London. Og þó að hann væri nú búinn að skipta um skoðun þá var ekki víst að álit hennar á honum breyttist. „Ég ætla að hringja til Susan núnaog segja henni frá þessu.” Hann fann hve hann kveið fyrir að heyra kuldalega rödd hennar. „Þú getur ekki náð í hana i síma fyrr en eftir hádegið,” sagði Owen. „Hún er ekki i vinnunni.” „Hún. . . Er allt í lagi með hana?” Það var ekki líkt Susan að vera frá vinnu. „Ó, jú, það er allt í lagi með hana. Hún tók sér frí til að aka frú Collins til flugvallarins i Sydney. Hún virðist hafa mikinn áhuga á þessari fjölskyldu.” Hann barði pípunni í öskubakkann og tæmdi hana. „Svo að ég býst við að hún hafi frétt þetta núna.” 42 Víkan II. tbl. „Jæja.” Hann þyrfti þá ekki að segja henni þetta eftir allt saman. Þetta virtist þægileg undankomuleið. En hann vissi að svo var ekki. Einhvern tima yrði hann að líta framan í Susan og hann hafði ekki mikinn tima. Hann stóð upp. „Jæja, þaðer víst best að fara að gera eitthvað í málinu — panta farmiða og fylla út eyðublöðin.” Peter gekk að dyrunum. „Peter!” Hann nam staðar og leit aftur fyrir sig „Farðu varlega þama fyrir handan,” sagði Owen. „Við þörfnumst þin hérna.” Peter kinkaði kolli. Það var næstum eins og Owen vissi hvaða hætta var fólgin í þvi fyrir hann að fara til London. Það var eins og hann grunaði að verið gæti að Peter kæmist ekki aftur til Ástralíu. Peter hringdi til Susan á skrifstofuna um fimmleytið. Hún virtist vera önnum kafin og óþolinmóð. „Ég varð glöð þegar ég frétti að þú hefðir skipt um skoðun,” sagði hún. Hún bætti því ekki við að það hefði Patricia Johnstone: íleitae Ifffijafa getað sparað öllum aðilum töluverða vinnu ef hann hefði strax svarað játandi en rödd hennar sá til þess að þetta komst til skila. „Geturðu borðað með mér kvöldverð i kvöld, Susan? Ég gæti sótt þig um sjöleytið.” Það varð augnabliks þögn. „Nei, ég verð að vinna yfir.” Hann fann að honum var að hitna i hamsi. Var þetta aðeins afsökun? En jafnvel þó að svo væri þá ætlaði hann ekki að lenda í rifrildi við hana núna. Hann var á förum eftir tvo daga og timinn var einfaldlega of dýrmætur. Honum tókst að halda rósemi sinni. „Jafnvel stúlkur sem vinna yfirvinnu þurfa að borða,” sagði hann friðsamlega. „Peter.. . ” Hún virtist ekki viss. „Þú verður að koma. Þetta er boð sem ég get ekki endurtekið. Ég er á förum.” „Ég veit það. Allt i lagi, ég hitti þig klukkan hálfníu hér á sjúkrahúsinu. En vertu ekki að taka frá borð á einhverjum fínum stað, ég er hvorki klædd til þess né i skapi til þess.” „Allt i lagi,” sagði hann brosandi. Susan gat oft verið ákveðin og stjómsöm á aðlaðandi hátt. Þessi stjórnsemi var byggð á heiðarleika og hún kom sér vel í starfi hennar. En einhvern tíma þyrfti hún að eignast eiginmann sem vissi hvernig skapa ætti jafnvægi — einhvern sem ekki tæki þetta of hátiðlega. Sú hugsun greip hann, og ekki í fyrsta skiptið, að hann væri einmitt þessi maður. Þetta hafði staðið lengi á milli þeirra, tilhugsunin um að þeim myndi koma vel saman, en hvorugt þeirra hafði viljað flýta hlutunum. Rifrildið um London hafði orðið fyrir stuttu. Það hafði rist djúpt en það gerði vinátta þeirra einnig. Hann var farinn að halda að vinátta þeirra lifði þetta af. Lifa þetta af og ef til vill fá að þroskast. Ef hann kæmi aftur frá London. Þegar hann kom á skrifstofuna hennar rétt yfir hálfníu var hún tilbúin. Hún var að raða saman siðustu pappirunum á borðinu. Hún fór úr hvita kyrtlinum og í Ijós kom að hún var í bláum bómullarkjól innan undir. Rauðbrúnt hár hennar var bundið snyrtilega aftur og hún lyfti hendinni til aðslétta úr þvi. „Það er fint,” sagði hann. „Ekki svo mikið sem einn einasti lokkur sem ekki er á sinum stað. Reyndar liturðu alls ekki út fyrir að hafa verið að vinna. Ertu viss um að þú hafir ekki bara verið að blekkja mig? Kæla mig aðeins, svona i refsingarskyni?” Hún leit hægt á hann og græn augu hennar virtust dekkri en venjulega. „Vertu ekki að hafa þetta i flimtingum. Peter. Síðustu dagarnir hafa ekki vertð neitt sérlega skemmtilegir.” „Ég veit það,” sagði hann. „En nú er allt ákveðið. Ég fer til London.” Hún starði á hann eins og hana langaði til að segja eitthvað meira. Síðan tók hún allt í einu upp veskið sitt og gekk í áttina að dyrunum. Þegar þau voru á leiðinni niður í lyft- unni sagði hún: „Ein af ástæðiunum til að ég varð að vinna svona lengi var að ég þurfti að hringja í dr. Muir í London.” „Svona seint?” „Þetta var eldsnemma um morgun- inn hjá honum! Við gátum ekki hringt fyrr. Hann sendi nokkur skilaboð til þín, það var ýmislegt sem hann vildi að ég segði þér." „Ó?” Hún sagði ekki meira fyrr en þau voru komin út í bilinn. Þá sneri hún sér að honum. „Það fyrsta sem hann bað mig um að segja við þig var þakka þér fyrir!” Þakka þérfyrir. Hann starði á billykil- inn. Þetta virtust vera undarleg skila- boð, frá allt öðru heimshorni. Og þó sagði þetta í rauninni allt. Það sagði honum eitthvað um lækninn, litlu stúlkuna og aðstæðurnar yfirleitt. Það styrkti ákvörðun hans um að fara til London. Þau óku þegjandi áfram. Það var lítið veitingahús í horninu á skemmtigarðin- um, rétt hjá sjúkrahúsinu. Þar var opið á kvöldin. Þarna var spiluð popptónlist og viðskiptavinirnir voru mestmegnis táningar á mótorhjólum — þetta var ekki beinlínis það sem hann helst hefði kosið þessa dagana. Hann lagði bílnum undir trjánum og fór út. „Ristaðbrauð meðosti og kaffi?” Hún kinkaði kolli án þess að hreyfa sig. Þetta var sjálfsafgreiðslustaður. Bæði var hægt að snæða úti undir beru lofti í hávaðanum eða taka bakkann með í bilinn. Hann kom aftur með bakkann. „Hvað sagði dr. Muir meira?” spurði hann. „Hann talaði aðallega um ferð þína til London og dvöl þar. Hann mun taka á móti þér á Heathrow. Ég á að senda honum skeyti með upplýsingum um hvaða flugvél þú tekur. Og þú þarft ekki að borga miðann sjálfur því að það sér sjúkrasamlagið um. Uppihald þitt i London verður einnig greitt af því.” Hún hafði ekki snert á brauoinu. „Drífðu þig nú,” sagði hann. „Þetta á að heita kvöldverður. Talaði hann eitthvað um hve lengi þau þyrftu á mér að halda?” „Sennilega eitthvað í kringum fjórar vikur. Því lengur sem þú verðu[ þhr því betra.” Hún beit áhugalaus í brauðið. „Fjórar vikur'." Honum varð allt i einu Ijóst hve geysilega mikil áhætta þetta var. Hann hafði ekki hugsað um timalengdina áður — alla vega ekkert að ráði. „En þú sagðir að þetta gengi fljótt fyrirsig.” Rödd hennar var kuldaleg. „Aðgerðin II. tbl. Vikan 43

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.