Vikan - 13.03.1980, Page 44
STORKOSTLEGT URVAL
(fíiðh
SÍÐUMÚLA 15 - SÍMI 33070
Framhaldssaga
sjálf tekur ekki langan tíma. Þetta er
næstum eins og einfaldur, áhættulitill
uppskurður. En það verður ekki hægt að
gera þetta strax. Fyrst verða þau að taka
prufur. Þau geta fyrst raunverulega
hafist handa eftir u.þ.b. viknj'J
„Allt í lagi,” sagði hann. „Vika virðist
vera mátulegur tími. En ég fæ ekki séð
hvernig hún getur orðið að fjórum
vikum.”
„Það gæti verið að þetta gengi ekki í
fyrsta skiptið.” Hún virtist vera að missa
þolinmæðina. „Þau geta ekki vitað
hvort þetta hefur tekist fyrr en tveimur
vikum síðar. Dr. Muirsegir að þau verði
að hafa þig tiltækan ef nauðsynlegt yrði
að reyna aftur.”
„En fjandinn hafi það. . .” Hann
þagnaði.
„Það væri fremur heimskulegt,” sagði
hún hæðnislega, „að fljúga alla þessa
leið án þess að gera þetta almennilega.”
Þau þögðu bæði smástund. Hann gat
séð þetta frá hennar sjónarhorni. En
hann gat alls ekki útskýrt sína hlið
málsins.
„Ef þú hefur hugsað þér að skipta
aftur um skoðun,” sagði hún kuldalega,
„þá er best að þú gerir það núna strax,
þó að þetta sé reyndar komið of langt til
að hætt verði við það.” Hún var spennt
eins og bogastrengur.
„Auðvitað mun ég ekki skipta um
Það er auðvelt aðframleiða
f rábæran bíl. Hann þarf aðeins
að vera miklu betri en allir hinirí
44 Vikan xi.tbl.