Vikan - 13.03.1980, Síða 49
Enn eitt dæmi um frábæra hönnun.
Borðlampinn og gólflampinn hans
Verners Panton hefur mjög fastmót-
aðan, hreinan og mjúkan stil og
gefur einstaklega góða og milda
birtu.
Hönnuður: Verner Panton.
Umboð hér á landi: Rafbúð Domus
Medica.
herbergi þar sem krakkar eru að leik
með óteljandi litla kubba og annað sem
ekki má týnast. Vinnuljós er nauðsyn-
legt við vinnu- eða skrifborð og á það að
lýsa beint á athafnasvæðið. Síðast en
ekki síst þarf góðan leslampa við
rúmið.
Snúum okkur þá að borðstofunni. Þar
skiptir mestu að hafa gott Ijós yfir
borðstofuborðinu, hæfileg fjarlægð frá
borðplötu er 60 sm. Borðstofuljós geta
verið tvenns konar: Annars vegar þau
sem varpa Ijósi beint niður á borðið og
einnig út í herbergið. hins vegar þau sem
Þessi sérkennilega fallegi borðlampi
varpar birtu sinni á mjög
hugvitssaman hátt út i herbergið.
Peran er i lampafætinum og lýsir á
hvítan skjöldinn sem því næst
endurvarpar birtunni á veggina í
kring. Nýtur sín best í horni.
Hönnuður: Achille e Pier Giacomo.
Umboð hér á landi: Casa, Borgartúni
29.
Þessi lampi er nánast eins og
höggmynd og er í rauninni listaverk.
Hann er handunninn og gerður úr
marmara. Lýsingin er undurfögur,
Ijósaperan er falin i hvelfingunni og
varpar birtu i gegnum marmarann.
Jaf nframt lýsir lampinn vel niður.
Hönnuður: Tobia Scarpa.
Umboð hér á landi: Casa, Borgartúni
29.
eingöngu lýsa niður á borð. Í þvi tilfelli
þarf að sjálfsögðu fleiri ijós i borð-
stofuna. E.t.v. er gert ráð fyrir veggljós-
um. en ef svo er ekki má leysa vandann
með staðsetningu brautar í lofti fyrir
Ijóskastara sem varpað gætu birtu á
veggina. en meira um þaðseinna.
Trúlega er stofan mesta vandantálið.
Hún þarf að vera notaleg og hlýleg.
lýsingin þarf að vera breytileg. frá daufri
birtu yfir i góða heildarbirtu án þess þó
að nokkurt Ijós skeri i augu eða verki
kuldalegt. Við skulum afgreiða kulda-
lega þáttinn fyrst. Þá þer fyrst að nefna
ijós sem eingöngu lýsir úr lofti. Slík
lýsing er ófullnægjandi og óaðlaðandi.
fólk virkar þreytulegt þegar skuggar
falla beint ofan frá. Einnig geta bláleitir
skermar verið kuldalegir. Þægilegasta og
notalegasta lýsingin er sú sem kemur frá
veggjum og borðlömpum. Mildasta
birtan er frá koparlit. fölgulu og opal-
hvítu. T.d. gætum við haft birtuna
þannig að frá veggjunum kæmi hinn
hlýi litur koparsins, en borðlamparnir
vörpuðu mildri, fölgulri eða opalhvitri
birtu sinni út í herbergið. Það er mikil
mýkt í þessari þirtu.
En þetta er samt ekki nóg. Okkur
vantar enn heildarlýsingu og þar meö
komum við aftur að Ijóskösturunum.
Ljóskastarar festir í braut i lofti. ca 8Ö-
90 sm frá vegg, endurvarpa birtu
veggflatarins út í herbergið án þess að
skera í augun. Með þessari lýsingu
virkar stofan stærri auk þess sem þetta
er besta lausnin fyrir þá sem yndi hafa af
listaverkum. Með Ijóskösturum má fá
fram öll þau áhrif sem óskað er eftir i
hverju einstöku listaverki. Með þessum
hætti á að vera hægt að töfra fram allan
þann persónuleika stofunnar sem
heimilisfólkið hefur veitt henni.
Hér fylgja með nokkrar myndir af
lömpum. þar sem formfegurð og nota
gildi haldast i hendur. og eru þeir allir
fáanlegir hér á landi.
II. tbl. Vikan 49