Vikan - 13.03.1980, Page 62
Pósturinn
FÉLAG
ÍSLENZKRA
HLJÓMLISTAR
MANNA
útvegar yöur
hljóöfœraleikara
og hljómsveitir
viö hverskonar
tækifceri
Vinsamlegast
hringið í
20255
milli kl. 1 og 5
Viðtalstímar hjá
sálfræðingi
Kæri Póstur.
Ég er fimmtán ára gamall
og bý á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Hvar get ég náð
viðtalstíma hjá sálfræðingi? Á
hvaða tímum? Og hvað myndi
svoleiðis kosta? Ég ætla að
taka það fram að ég er ekki
með eitthvert smávandamál á
heilanum. Þú verður að hjálpa
mér því ég þori ekki að tala um
þetta við neinn.
í von um að fá svar. EK
Ef þú ert ennþá í grunnskóla,
sem er næsta líklegt eftir
aldrinum að dæma, er starfandi
sálfræðiþjónusta skólanna og
þar áttu að geta fengið aðstoð
endurgjaldslaust. Fyrir mið- og
vesturbæ er starfsemin að
Tjarnargötu 20, fyrir Voga og
austurbæ í Réttarholtsskóla og
fyrir Árbæ og Breiðholt er
miðstöðin í Hólabrekkuskóla. Í
(Jarðabæ og Hafnarfirði er
þjónustan að Lyngási 12. Hafðu
samband við þessa þjónustu í
þínu hverfi, símanúmerin eru í
símaskránni undir sálfræði-
deildir og þú þarft ekki að vera
neitt feiminn við það. Ef þér
líkar miður að notfæra þér
eitthvað í tengslum við skóla-
kerfið geturðu farið til heimilis-
læknisins og fengið tilvisun á
einhvern sálfræðing og þú þarft
ekki að tilgreina ástæðu, nema
þú sjálfur viljir. Hins vegar
máttu búast við því að þetta
gangi fljótar fyrir sig ef þú velur
þá leiðina sem tengist þínum
skóla eða hverfi,
Hvað lestu úr
skriftinni á
umslaginu?
Kæri Póstur!
Ég sá bréf frá tveimur
stelpum sem vildu fá að vita
um Simon Templar. Ég veit
ekki heimilisfangið en ég veit
að hann heitirlan Ogilvy oger
giftur. Hann er 32 ára og á
eina dóttur sem er 10 eða 11
ára. Þú sagðist veita öllum
pláss sem gœtu geftð
upplýsingar. Ég hef skrifað þér
mörg bréf undanfarið og ekki
fengið svar og við skulum sjá
hvort þú svarar þessu bréft.
Hvort ertu kk„ kvk. eða hk.
Hvað lestu úr skriftinni á
umslaginu?
Ekki birta mitt fulla nafn,
bara skammstöfunina. S.L.
Jæja, svaraði Pósturinn ekki
þessu bréfi? Hann á ákaflega
erfitt með að standast áskoranir
sem þessa og þú hittir einmitt á
eitt dæmigert veikleikaandartak.
Þakka þér upplýsingarnar um
átrúnaðargoðið og skjót
viðbrögð við fákunnáttu
Póstsins um einkahagi þessa
súperstirnis.
Pósturinn vill alls ekki láta
uppi hvort hann er kk. eða kvk.
— en andsk . . . hann telst nú
varla hk! Úr skriftinni á
umslaginu las Pósturinn af sinni
alkunnu skarpskyggni heimilis-
fang — sitt eigið nafn og
heimilisfang. Og þvi opnaði
hann bréfið án frekari
umhugsunar.
Leiðrétting
á matarþætti í 6. tbl.
í 6. tbl. birtum við uppskrift og
myndir af bananamos, en vegna
mistaka féll niður hluti af textanum.
Þvi birtum við hér uppskriftina í
heild og biðjum lesendur að bæta
leiðréttingunum inn í sín eintök.
BANANAMOS FYRIR FJÓRA:
100 gsykur
4 eggjarauður
5 bananar
1 sitróna
10 bl. matariim
3 dl rjómi
4 eggjahvítur
Sykurinn og eggjarauðurnar hrærist
hvitar. Matarlimið bleytt upp og
hitað. Bananarnir marðir og sitrónu-
safinn settur saman við ásamt
eggjarauðunum. Matarlimið sett út i.
Rjóminn þeyttur og þeyttum eggja-
hvitunum bætt út i. Sett i desert-
skálar og kælt.
Við getum ekki haldið áfram nema þú
útvegir meira b.vggingarefni.
62 Vikan XI. tbl.