Vikan - 29.05.1980, Side 7
Blái fuglinn
Ef hnútur finnst eða aðrar
breytingar í brjósti
Hvað skal gera verði vart við hnút eða
aðrar breytingar i brjósti?
Hvenær sem hnútur finnst, jafnvel af
minnstu gerð, er sjálfsagt að láta lækni
athuga hann nánar og taka hnútinn eða
sýni úr honum hið fyrsta til að fullvissa
sig um hvers eðlis hann er. Því má bæta
hér við að mikill meirihluti allra hnúta
sem finnast i brjóstum eru góðkynja en
jjað breytir ekki þvi, að sjálfsagt er að
ganga ávallt úr skugga um hvers eðlis
hnútur er. Þó finnist smáörður í brjósti
þarf það alls ekki að þýða að um eigin-
legan hnút sé að ræða og þvi ber að
ráðleggja öllum konum sem eru í vafa að
leita læknis, sem getur úrskurðað hvort
ástæða sé til að taka sýni eða ekki.
Brjóstvefur getur verið mismunandi
grófur og getur því virst sem um hnúta
sé að ræða öðru hvoru, einkum í jöðrum
brjóstanna en slíkt er auðþekkt af lækni.
Skurðaðgerðir — geislar — lyf
Hvernig er sjúkdómurinn meðhöndl-
aður?
Ef um góðkynja hnút er að ræða er
látið nægja að nema sjálfan hnútinn
burtu og vex hann þá yfirleitt ekki aftur
og er þar með afgreiddur með einfaldri
aðgerð. Hins vegar ef um krabbamein er
að ræða þarf meiri skurðaðgerð, ýmist
taka brjóstið eða brjóst og nærliggjandi
eitlasvæði auk þess sem gefnir eru
geislar og lyfjameðferð beitt, en notkun
Þær Erla og Elín kváðu
þögnina í kringum sjúkdóminn
krabbamein vera erfiða fyrir
sjúklinginn og vandamenn hans.
Opinskáar umræður séu til hins
betra og þannig komist betra
samband á milli sjúklings og
aðstandenda hans. Sjaldnar sé
rætt um það háa hlutfall sem
hlýtur bata og það væri til baga.
Konur í Samhjálp kvenna eru
dæmi um það hve hraust konan
getur orðið — að andlegar og
líkamlegar þjáningar vegna
’sjúkdómsins séu að baki og lífið
hafi fallið I sinn eðlilega farveg á
ný.
Simanúmer Elínar er 31500
og Erlu 11225 og er konum sem
óska eftir aðstoð velkomið að
hringja.
H.E.
þeirrar aðferðar hefur einmitt aukist
mjög á síðari árum.
Er mikill sársauki eftir slíka aðgerð?
1 flestum tilvikum er hægt að svara
þessari spurningu neitandi. Þetta er
auðvitað eins og eftir allar aðgerðir að
nokkuð tekur í sárið fyrstu dagana. En
það sem einkum er um að ræða i
sambandi við þá aðgerð, er brjóst er
numið brott, eru óþægindi sem geta leitt
upp I axlarlið og eru því æfingar eftir
skurðaðgerð stór þáttur i að konur jafni
sig fljótt eftir aðgerð.
Er alltaf nauðsynlegt að gera
skurðaðgerð?
Já, þótt geislar og lyf hafi mikið að
segja i meðferð á brjóstakrabbameini er
nú enn svo að sjálfsagt er talið að nema
burtu æxlið, jafnvel sjálft brjóstið.
Hve lengi varir sjúkrahúslega við
aðgerðina?
Það fer eftir almennu heilsufari •
konunnar, venjulegast um eina til tvær
vikur á sjúkrahúsi og fer það nokkuð
eftir þvi hvort önnur meðferð er gefin i
beinu áframhaldi eða ekki og sú meðferð
gjarna hafin áður en sjúklingurinn fer
heim. En allt er þetta auðvitað breytilegt
eftir einstaklingum.
Verða mikil ör eftir aðgerðina?
Það fer að sjálfsögðu eftir því hve
stór aðgerðin er. Það gildir raunar um
þessar aðgerðir eins og allar aðrar að það
er mismunandi hvernig örið verður hjá
fólki en i flestum tilfellum verða þessi ör
lítið áberandi með tímanum.
Fá allir sjúklingar geislameðferð og
hvað varir hún lengi?
Almenn regla er sú að sjúklingar fái
geislameðferð eftir aðgerð og stundum
líka fyrir aðgerð i stöku tilfelli. Hve lengi
geislameðferð varir fer eftir
staðsetningu, stærð og tegund æxlis og
hve mörg svæði eru tekin til geislunar.
I flestum tilvikum mun geislameðferð
taka þrjár til sex vikur.
Á eftir
Hve lengi er sjúklingurinn að ná
kröftum aftur?
Það er afar mismunandi. Sumar
konur. sérstaklega þær sem lenda í
minnstu aðgerðinni, eru fljótar að ná sér
að fullu. Aðrar þurfa að vera nokkuð
lengi i eftirmeðferð til að ná fullum
kröftum. Sama má reyndar segja um
Sýnishorn af þeim brjóstahöldurum
sem sjúkrahúsin gefa.
SAMANBURÐUR Á LÍKUM
Á BRJÓSTAKRABBAMEINI
ÁHRIF BARNAFJÖLDA OG
ALDURS VIÐ FYRSTU FÆÐINGU
5.18
Líkur á brjóstakrabbameini. Til við-
miðunar eru minnstu líkurnar settar
sem 1.00. Lengst til hægri eru líkur
þeirra kvenna sem ekki eignast
börn. Telkntng: J.R.
allar aðrar aðgerðir. Hins vegar er rétt
að undirstrika að það er andlegt áfall
fyrir alla að fá sjúkdómsgreininguna
krabbamein.
Hve miklar líkur eru á að ná fullri
heilsu á ný?
Hér verður svarið það sama sem gildir
um allar tegundir krabbameins, að þvi
fyrr sem krabbameinið er greint því betri
eru batahorfurnar og þess vegna hefur
barátta krabbameinsfélaganna einkum
beinst að því að greina sem fyrst
sjúkdóminn, hvar sem hann er. Avallt
fer árangurinn batnandi, bæði af þeim
ástæðum að sjúkdómurinn greinist fyrr
og einnig vegna bættar lyfjameðferðar
og fullkomnari tækni.
Hefur sjúkdómurinn varanleg áhrif á
líf konunnar sem þarf að láta fjarlægja
brjóst sitt með skurðaðgerð?
Það er um þennan sjúkdóm eins og
svo marga aðra að það fer mjög eftir
einstaklingum hvernig áhrif þetta hefur.
Þó er enginn vafi á því að hræðsla við
krabbamein hefur stórminnkað á seinni
árum. Arangur hefur sífellt farið
batnandi og það hefur hjálpað okkur til
að minnka hræðslu fólks við þennan
sjúkdóm. Svarið við þessari spurningu
fæst þó best hjá konunni sjálfri, sem
hefur þurft að láta fjarlægja brjóst sitt
vegna krabbameins.
H.E.
22. tbl. ViKan 7