Vikan - 29.05.1980, Qupperneq 12
Ár trésins i Vikunni
Hér getur að líta flest þau verkfæri sem þú þarft að hafa við
höndina í garðinum. Þú þarft ekki að kaupa þetta allt í einu,
svo það er ekki ástæða til þess að verða hræddur.
VERKFÆRIN
í GARÐINN
ÞINN
A þessum tíma árs eru margir farnir að
hyggja að garðinum sinum og eitt af þvi
sem þarf að huga að er hvaða verkfæri
eru nauðsynleg. Á ári trésins er ekki
óliklegt að einhver leggi út i að planta
trjám og aðrir hyggi að þvi hvernig þau
séu best hirt. Og aðrir hlutar garðsins,
flötin, blómabeðin, og matjurtagarður-
inn hjá þeim sem hann hafa, þurfa
auðvitaðsina umhirðu líka.
VIKAN tók á dögunum þessar
myndir af helstu garðáhöldum sem ætla
má að menn þurfi. þótt auðvitað sé
misjafnt hvaða áhöld hcnta i hverju
tilviki. Þessi áhöld fást i Sölufélagi
garðyrkjumanna og verðlagningin er
auðvitað háð verðbreytingum frá
sendingu til sendingar, ekki síst á
þessum tima árs, þegar hver sending
stendur stutt við. Þeir sem eru að hefja
trjárækt þurfa ekki mikið af áhöldum,
oftast nægir stunguskófla til að byrja
með, og þegar sprotarnir eru komnir i
niold þarf að muna að vökva þá vel þvi
ungar plöntur þurfa rækilega vökvun.
Þá er garðkannan að sjálfsögðu ómiss-
andi. Það vill stundum gleymast að úða
ungar trjáplöntur en þær þarf að úða
eins og annan trjágróður ef þær eiga að
dafna. Lítil úðadæla kostar ekki nema
u.þ.b. 10 þúsund krónur og ætti ekki að
vera neinum garðeiganda ofviða. En
best er fyrir þá sem hyggja á trjáræktun
að vera óragir að spyrja þá sem selja
þeim plöntur, áhöld og annað slikt. Lesa
sér til i þeim bókum sem eru á
boðstólum og afla sér á annan hátt hald-
góðra upplýsinga. Hjá Skógræktarfélagi
Reykjavikur má áreiðanlega fá nota-
drjúgar upplýsingar og afgreiðslumenn
hjá Sölufélagi garðyrkjumanna geta
gefið góðar upplýsingar um garðáhöldin.
Þeir sem eiga gróna garða þurfa
auðvitað að huga að klippingum og til
eru nokkrar gerðir klippna sem þjóna
mismunandi tilgangi. Yfirleitt munu
nienn vera heldur latir eða ragir við að
klippa til trjágróður, en fagmenn mæla
með réttum klippingum. Annað sem
huga þarf aðer að klippa hiklaust rætur
ef þær ætla að vaxa upp nærri aðal-
trénu, eins og t.d. við reynitré. Þá er gott
að hafa rétt verkfæri til starfsins. En það
er rétt að lita nánar'á myndirnar og þá
ætti að koma í Ijós hvaða áhöld þar er að
finna, hvað þau heita og hvað þau kosta.
Lokaorð:
Auk allra þessara verkfæra er til
stærri og flóknari útbúnaður fyrir
áhugasama garðræktendur. Þar má t.d.
nefna að fyrir þá sem hafa áhuga á að
nýta garðúrgang, fallin lauf og fleira, eru
til ílát fyrir affall úr görðum, útbúnaður
upp á 70 til 80 þúsund, en með því að
setja sérstök ódýr rotnunarefni saman
við úrganginn má fá góðan áburð. Og
garðaplastið þekkja allir. algengasta
plast, 2 m á breidd og 0.05 mm á þykkt,
er á verði undir 300 krónum metrinn.
Og þá er vonandi að menn viti eitthvað
um öll þau áhöld og hjálpargögn sem eru
notuð til að rækta garðinn.
aób
sem vert er að nefna, það er sú
sem er á verðinu í kringum 10
þúsundir króna.
a. Sláttuvél sem þessa er hœgt
að fá á verði i kringum 45 þús.
kr.
b. Hjólbörur má gera ráð fyrir að
kosti frá 30 til 50 þús. krónur.
c. Garðslöngur eru á um 300 kr.
metrinn.
d. Karfan er fyrir rusl úr garðin-
um og kostar um 10 þúsund
krónur.
e. í henni er stór úðadæla, dælur
af þessari gerð eru á verði frá
42 og upp í 50 þús. krónur.
f. Garðkannan kostar um 4
þúsund krónur en til eru minni
könnur og ódýrari, og sjálf-
sagt dýrari lika.
g. Heyhrífaner sú sem er í hvarfi
við bakkann, hún fæst á verði
eitthvað undir 4 þúsundum
króna.
h. Við hlið hennar er kantskeri.
12 Vikan 22. tbl.