Vikan - 29.05.1980, Síða 23
lega fram við konungborið fólk, sagði
Ted um leið og hann lagði handlegginn
um herðar Billys og leiddi hann stoltur
út.
—Hvað? sagði yfirþjónnitin á báðum
áttum.
—Hann ererfðaprinsinn af Spáni.
ELLEFTI KAFLI
—Gleðileg jól, Ted. Þetta er Jóhanna.
—Jóhanna?
—Ég er á leið til New York. Ég ætla að
heimsækja foreldra mina i Boston. Mig
langar til aðsjá Billy.
Hún var hraðmælt, rödd hennar
hljómlaus.
—Hvernig íýður þér? spurði hann
ráðvilltur.
—Vel.
—Mig langar til að sjá hann hélt hún
svo áfram. — Éfe verð í New York á
laugardaginn. Ég vildi helst ekki þurfa
að koma heim til ykkar. ef þér er sama.
Bæði rödd hennar og orðaval gáfu
fyllilega I skyn að þetta simtal boðaði
engar sættir.
—Þig langar til aðsjá Billy?
—Ég verð á Americana hótelinu.
Geturðu komið með hann þangað
klukkan tiu á laugardagsmorguninn?
Mig langar til að eyða deginum með
honum. fara út með hann. skoða
borgina. Ég skal skila honum aftur fyrir
háttatima.
—Ég veit ekki.
—Hvers vegna? Ertu að fara eitthvað?
—Nei. Ég veit bara ekki.
—Veistu ekki hvað?
—Þaðgæti haft slæm áhrif á hann.
—Láttu ekki svona. Ted. Ég er engin
galdranorn. Ég er móðir drerigsins og
mig langar til að sjá hann.
—Ég verð að hugsa málið.
—Ted. vertu ekki svona viður-
styggilegur.
—Þetta bætir ekki málstað þinn.
—Ég ætlaði ekki að taka svona til orða.
Leyfðu mér að sjá hann. Gerðu það.
Ted.
—Ég þarf að sofa á þessu.
—Ég hringi til þin á morgun.
Hann ráðfærði sig við Thelmu sem
staðfesti það augljósa fyrir honum.
Jóhanna var greinilega ekki að leita eftir
því að hverfa aftur til hans. Hvað Billy
snerti tók hún málstað Jóhönnu.
—Þetta er dýrkeypt sjálfstæði. sagði
hún.
Ted vildi ekki taka ákvörðun fyrr en
hann vissi hvar hann stæði. Hann
hringdi í lögfræðingsinn.
— Heldurðu að hún ræni honum?
spurði Shaunessy.
—Nei, mér datt ekkert slíkt í hug.
—Slikt hefurgerst.
—Ég veit ekki hvað hún er að hugsa en
ég efast fastlega um að hún ætli að ræna
honum.
—Jæja. lagalega séð geturðu neitað
henni um að sjá drenginn. Og hún á rétt á
þvi að leita réttarúrskurðar til að fá að
sjá hann. Hvaða dómari sem er mundi
dæma henni i vil. Móðir. jólin. Þú
mundir aldrei vinna það mál. Ég held að
það sé skynsamlegast af þér að leyfa
henni að sjá hann ef þú óttast ekki að
hún ræni honum. Það mundi spara þér
mikið þras að leyfa henni að hafa hann i
einn dag.
Hvort var betra fyrir Billy að hitta
móður sína eða hitta hana ekki? Ætti
hann að nevða hana út í réttarhöld?
Leyfa henni að hafa dálitið fyrir þessu?
Gerði hann það mundi hann að vísu ná
sér niðri á henni en á kostnað eigin
tilfinninga. Þegar Jóhanna hringdi
spurði hann blátt áfram:
—Þér mundi aldrei detta í hug að ræna
honum, er það?
—Hvers vegna Ted? Þú mátt fylgja i
humátt á eftir okkur allan daginn ef þú
vilt. Þú getur læðst fyrir horn, veitt mér
eftirför. Ég verð ekki i New York nema
fáeina klukkutíma. Svo fer ég til Boston
og þaðan til Kaliforniu. Þaðer nú allt og
sumt. Mig langar bara til að fara í
leikfangaverslun með syni mínum og
kaupa handa honum jólagjöf. Þarf ég að
grátbiðja þig?
—Allt i lagi. Jóhanna. Á laugardaginn.
Americana hótelið, klukkan tíu.
Ted tilkynnti Billy að móðir ha'ns væri
væntanleg til New York og ætlaði
aðeyða næsta laugardegi með honu. ■.
—Mamma min?
—Já, Billy.
Barnið varð hugsandi á svip.
—Kannski kaupir hún eitthvað handa
mér, sagði hann svo.
Ted vandaði sig vel við að útbúa Billy
á laugardagsmorguninn. Hann burstaði
á honum hárið, klæddi hann í bestu
skyrtuna sina og buxurnar. Hann fór
líka sjálfur i sparifötin — þessi sem
ekkert voru farin að snjást. Þeir fóru til
Americana hótelsins og Jóhanna gekk út
úr lyftunni á slaginu tíu. Ted varð inátt-
laus i hnjánum. Hún var bráðfalleg.
Hún var i hvítri kápu. með skærlitan
klút á höfðinu, sólbrennd þó nú væri
miður vetur. Allar stúlkurnar sem Ted
hafði hitt i hringekju ástarinnar
bliknuðu fyrir henni.
Hún leit ekki á Ted. Hún gekk beint
að Billy og kraup fyrir framan hann.
- Ó. Billyl
Hún faðmaði hann að sér. neri
hökunni að kolli hans og fór að gráta.
Svo stóð hún á fætur og virti hann fyrir
sér.
—Halló. Billy minn!
— Halló. mamma!
Nú sneri hún sér loks aðTed.
—Þakka þér fyrir. Við hittumst þá
hérna klukkan sex.
Ted kinkaði kolli.
—Komdu, sagði hún við Billy. — Við
skulum skemmta okkur vel í dag.
Svo leiddi hún Billy út úr anddyri
hótelsins.
Framhald í næsta blaði.
Núer
Œ
$
SQMDE]
sumar
&
v
9
Strandgötu 34
Sími52070
Hafnarfirði
ÆSKAN
Selfossi
Sími99-1830
*
Verz/unin
Tröð
Neðstutröð 8
Sími 43180
Kópavogi.
SEdEQ
Barna- og
unglingafatnaður
ísérflokki.
22. tbl. Vikan 23