Vikan - 29.05.1980, Qupperneq 25
Það er engin tilviljun að Halldór Ásgríms-
son er framsóknarmaður. IMýi vara-
formaðurinn er fæddur í kaupfélaginu á
Vopnafirði og uppalinn í nálægð kaup-
félaganna í Höfn í Hornafirði. Hann hefur
greinilega orðið fyrir áhrifum hugsjóna og
umhverfis samvinnuhreyfingarinnar.
Þó Halldór Ásgrímsson sé ekki nema
32ja ára gamall er hann orðinn vara-
formaður Framsóknarflokksins. Næst-
stærsta stjórnmálaflokksins eins og sagt
var hér áður fyrr. Einhverjum kann að
þykja það skrýtið að jafnungur og efni-
legur maður og Halldór skuli vera I
Framsóknarflokknum en hann er ekki á
sama máli.
„Ég hef að vísu ekki tekið það saman
en mér sýnist að núverandi þingflokk-
ur Framsóknarflokksins sé sá
yngsti á þingi. Það er engin tíma-
skekkja þótt ungir menn kjósi að hasla
sér völl innan flokksins. Framsóknar-
flokkurinn er að hluta til sprottinn upp
úr ungmennafélagshreyfingunni, vildi
og vill sýna samhygð með ungu fólki og
þannig er nafn hans einmitt tilkomið;
Framsókn. Ég var 18 ára þegar ég gekk í
flokkinn.”
13 ára gamall var Halldór sendur
suður til náms og það varð engin
frægðarferð. Hann hafði einfaldlega
engan áhuga á að læra, fór að vísu I
landspróf, féll og náði ekki einu sinni
framhaldseinkunn.
„Ég held að það sé mikið áfall fyrir
margan dreifbýlisunglinginn að vera
sendur frá ástvinum sínum og félögum
til að stunda skóla I framandi umhverfi,”
segir Halldór. „Ég brást við þeim vanda
sem mætti mér á þessum árum með því
að snúast gegn öllu kerfinu með
hástemmdum yfirlýsingum um hvað
þetta væri allt vitlaust. Eftir landsprófið
góða fór égásjóinn.”
En það hafa allir áhuga á að læra, það
er aðeins spurning um hvenær sá áhugi
vaknar. Hjá Halldóri vaknaði hann
þegar eftir að hann þreytti inntökupróf i
Samvinnuskólann. Eftir Samvinnu-
skólann tók við nám í endurskoðun og
þvi lauk Halldór 23 ára gamall. Sá
hængur var f)ó á málinu að til þess að
hljóta löggildingu i faginu verða menn
að vera minnst 25 ára. Þarna vantaði
Halldór 2 ár upp á og þvi var það að
hann notaði timann og fór í framhalds-
nám við verslunarháskólann i Bergen og
siðar við verslunarháskólann í
Kaupmannahöfn. Þegar heim kom
vantaði einmitt lektor i reikningshaldi
og endurskoðun við viðskiptafræðideild
Háskólans. Þangað réðst Halldór og var
i 2 ár. Þeir eru líklega ekki margir
kennararnir við Háskólann sem ekki
hafa stúdentspróf. En þannig var það
meðHalldór.
Þrátt fyrir allt er það mál þeirra sem
til þekkja að Halldór sé bestur í reikningi
í Framsóknarflokknum. Sjálfur brosir
hann þegar á þetta er minnst og vill sem
minnst úr því gera.
„Það reynir ekki svo ýkja mikið á
stærðfræðikunnáttu i pólitík,” segir
hann, „hitt er mikilvægara að menn geti
hugsað rökrétt og af skynsemi.”
Halldóri finnst það einkenna um of
störf Alþingis og mannlíf allt hér á landi
hversu klumsa menn verða þegar komið
er að kjarna málsins. Sérstaklega er
honum minnisstætt þegar hann starfaði
í svokallaðri verðbólgunefnd. þar sem
fulltrúar úr flestum hagsmunahópum
voru kallaðir saman og mikið rætt.
Eftir enn meiri bollaleggingar stóðu
menn frammi fyrir nokkrum kostum, þó
engum góðum, en kjarni málsins var
ljós. Þá var eins og menn tækju til
fótanna og vildu sem minnsta ábyrgð
bera á málinu. Halldór segir að nóbels-
skáldið lýsi þessari þjóðarmeinsemd
betur en flestir í Innansveitarkroniku
sinni:
Því hefur verið haldið fram að islend-
ingar bevgi sig lítt fyrir skynsamlegum
rökum, fjórmunarökum varla heldur, og
þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en
leysi vandrœði sin með þvi að stunda
orðhengilshátt og deila um tittlingaskit
sem ekki kemur málinu við; en verða
skelfingu loslnir og setji hljóða hvenœr
sem komið er að kjarna máls.
Afturámóti klífa þeir þritugan hamarinn
til að verða við bœnarstað vina og
frcenda, enda mundi landsbygð á Islandi
hafa lagst niður fyrir mörgum öldum ef
eigi vœri svo. Þó er enn ein röksemdsem
íslendingar eru fúsir að hlíta þegar allt
þrýtur, en það er fyndni; má vera aula-
fyndni. Við þægilega lygasögu mýkist
þjóðfélagið og fer að Ijóma upp;
jarðvegur sálarinnar verður jákvœður.
(Innansveitarkronika bls. 66).
22. tbl. Vikan 25