Vikan


Vikan - 17.02.1983, Side 7

Vikan - 17.02.1983, Side 7
hans. Sá um fjöldaframleiöslu á ýmsu smárusli með nafni Dalís og endaði ævintýrið með því að f jármál listamannsins komust í óleysanlega óreiðu og áritanir verkanna þóttu í meira lagi óáreiðanlegar. Það tók meistarann frá Spáni mörg ár að jafna sig, losna við Sabater og við tók Frakkinn Jean-Claude Dubarry. Þá átti að koma öllu í gott lag en margir telja að þar hafi verið farið úr öskunni í eldinn. Ofan á þessa erfiðleika bættist svo vanheilsa á hinum síðari árum, en Dalí þjáist af hinni erfiðu Parkisons- veiki og margir bjuggust við að hann yrði ekki langlífur. Ekki reyndust þeir sannspáir, Gala kona hans lést á undan og meistarinn er nú um átt- rætt. Dauði Gölu varð honum mikið áfall og hann lokaöi sig inni í Púbol- kastalanum þar sem Gala kona hans er jarðsett. Konan Gala, eða Elena Diakonof réttu nafni, varð honum mikill örlagavaldur og þau áttu sam- leið alla ævi. Ymislegt í sambandi þeirra varð mönnum umhugsunar- efni og einkum þó ástalíf Gölu sem ekki samrýmdist hugmyndum Spán- verja og reyndar flestra Evrópu- manna um hina fullkomnu eigin- konu. Hún átti alla tíð unga elskhuga og milli þeirra hjóna var engu í þeim efnum haldið leyndu. Púbolkastal- ann byggði Dalí sjálfur fyrir hana og þar hitti hún elskhugana sem voru margir vel kunnugir meistaranum. Dalí og Gala bjuggu víöa og eyddu mörgum stundum í hótelherbergjum stórborganna. Því var þeim ætíð mikilvægt að geta snúið heim og slakaö á í réttu umhverfi. Þau voru alla tíð spænskir ríkisborgarar og aðalaðsetur voru á Spáni og í Mónakó. Giftust þrisvar á lífsleið- inni, borgaralega, kirkjulega og svo að síðustu að gamalkaþólskum siö. Heimili þeirra voru að mestu verk Salvadors Dalís sjálfs og þar fékk hugmyndaflugið svo sannarlega að njóta sín. Iburður af ýmsu tagi hefur ætíð heillað hann og bæði klæöa- burður meistarans og innrétting heimilanna ber vott um að þar fer maður sem ekki er hræddur viö liti og útflúr. Myndirnar af heimili þeirra í Port Lligat á Spáni segja meira en mörg orð um þennan sérstæða mann og við verðum aö játa að þær fengum við að „láni” úr tímaritinu Skonne hjem. Þar sést innisundlaugin sem hann notaði mikið og einnig útisund- laugin þar sem hvítar slæður gefa andblæ óraunveruleika — draums- ins. Það þýðir víst lítið að reyna að vera séní af þessu tagi hérna uppi á Islandi, veður og vindar noröursins eru harðleiknir við menn og hluti og gæða landsmenn ákveðnu raunsæi hvort sem þeim líkar betur eða verr. Stóllinn rauði á einni myndinni er að sjálfsögðu í kóngastíl enda hefur eigandi hans oftlega lagt áherslu á konungdæmi sitt og hneykslaði marga með því að krýna sjálfan sig aftur og aftur eigin höndum. Einnig hafa staðhæfingar í f jölmiðlum farið fyrir brjóstið á fólki þar sem hann segist óumdeilanlega mesti snilling- ur sem uppi hefur verið og fæstir eru þess umkomnir að greina á milli hvort honum er alvara eða ekki. Og ef til vill reynir hann það ekki s jálfur því skilin milli draums og veruleika hafa alltaf verið honum lítils virði og þau landamærin því mun loðnari en hjá öðrum. Síðari árin hefur hann þjáðst af þunglyndi og á stundum virst ætla að sanna svo ekki verður um villst geðveikikenninguna um listina og listamenn. Núna segist hann ætla að búa í Púbolkastalanum því að hann þori ekki í kastalann í Port Lligat. Hann hræðist þar bæði fólkið og bátana — og sérstaklega ferðamennina. Sagt er að Dalí máli lítið, mikill þungi hvíli yfir myndun- um og hann eigi erfitt með að sætta sig viö að Gala, sem var fyrirsæta hans í yfir fimmtíu ár, muni ekki koma til baka.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.