Vikan


Vikan - 17.02.1983, Blaðsíða 38

Vikan - 17.02.1983, Blaðsíða 38
FRA MHALDSSA GA hann. Hann tók fram skrifblokk. „Nákvæmlega þaö sem ég er á höttunum eftir. Minnihlutaofbeld- iö. Viltu segja mér frá þessu? ” „Nei, helst ekki. Ef þú ætlar aö nafngreinafólk.” Þolinmæðisvip brá fyrir á löngu andliti hans. Hún tók eftir aö hann haföi frekar þykkar varir miðað við grannt andlitið. Samt var munnsvipurinn ekki slapandi. Nefiö hvasst og augun grágræn undir bogadregnum brúnum. Heildarsvipurinn var spyrjandi, ef til vill örlítið kíminn. „Eitt af því fyrsta,” sagöi hann, „sem fréttamaður lærir á ferli sínum er hversu langt hann má ganga. Meiöyrðamál geta veriö spennandi en þau eru dýr.” Hún afsakaði sig aftur. „Ef reynsla mín getur eitthvaö hjálp- að þér gæti ég sagt nánar frá þessu. Kannski ætti ég að út- skýra.. .” „Eg hef nafnið þitt.” Hann skrifaði það hjá sér. „Heimilis- fang. . . Ralph Court, er það ekki? Þetta er aðeins fyrir eigin skýrslu- LEIKSOPPUR gerð. Og aldurinn svona hér um bil.” „Til hvers í ósköpunum? ” „Eg er að gera könnun,” út- skýrði hann, „á mismunandi aldurshópum, ekkert síður mikil- væg en könnun á stétt og stöðu.” Hann leit á hana og lyfti auga- brúnunum. „Eg er þrítug,” sagði hún. Hann skrifaði töluna í sviga fyrir aftan nafn hennar í skrif- blokkinni. „Flestar stúlkur hefðu dregiöeittár frá.” „Eg geröi það,” sagöi hún eftir smáþögn. Hann leit upp. „Ef þú hefðir dregið frá nokkra mánuöi í viðbót værirðu bara á þrítugsaldrinum.” „Eg hafði ekki hugsun á því,” viðurkenndi hún alvarlega. „Jæja, Belinda,” hann rétti úr sér, „segðu nú frá.” „Eg dró frá meira en eitt ár. Eg er þrjátíu og tveggja.” „Þúþarftekki. . . „Fréttamaður verður aö fá áreiöanlegar upplýsingar. Skrif- aöu þetta niöur.” Hún skipaöi fyrir og undraöist jafnframt eigin ákveðni. „Sjáum nú til. Hvernig væri best að taka á þessu? Ætlar þúaðspyrja?” „Segðu bara frá öllu í stórum dráttum fram á þennan dag.” Hann skotraöi til hennar augun- um. „Annars er ég þrjátíu og fjög- urra.” Hún lét eins og hún hefði ekki heyrt þetta. Hann hlustaði af athygli á frásögn hennar af at- burðunum og hraöritaði hjá sér öðru hvoru með löngum köngur- lóarstöfum. Þegar hann einbeitti sér stóöu sinarnar á hálsinum út eins og rifbein. „Þetta virðist ekki vera merki- legt þegar því er lýst,” sagði hún afsakandi. „Þú þyrftir aö vera. . .” „Hefurðu aðeins einu sinni hitt hann?” „Hingaö til. Eins og ég sagöi er þetta dálítiö snúið. Hann hefur lag á að skrúfa fyrir um leiö og ég er komin upp. Það væri svo heimsku- legt að hringja upp á og biðja hann að skrúfa fyrir þegar hann er ný- búinn aö því. Og auk þess finnst mér óþægilegt að tala við hann. Hann er svo skrítinn. ” „Hvernig?” „Eins og . . .tómur. Ef ég tala viö hann er eins og oröin hrökkvi af honum og aftur á mig.” Hún hnyklaöi brýrnar þegar henni varð hugsaö til baka. „Mér fannst ég engu fá áorkað. Honum tókst jafnvel að láta líta svo út að ég væri sökudólgurinn. ” Eftir stutta umhugsun leit Hacker á hana. „Væri þaö rangt ályktað hjá mér, Belinda, ef ég hugsaöi sem svo að þú væri ekki sú manngerö sem sætti sig við óreglu. Eg meina, frekar rólynd manneskja.” Hún fann aö hún roðnaði. „Það er alveg rétt. Eg þoli ekki árekstra.” „Og hann hefur uppgötvað það.” Hann blístraði lágt og skrifaði eitthvað hjá sér. Svitadropar féllu af enni hans á blokkina. Hann þurrkaði þá af með handarbakinu. „Þetta síðasta atvik sem þú nefndir, hvenær var þaö? ” „I fyrrakvöld.” Hún hikaði. „Eg skammast mín fyrir að tala um þaö.” „Þér mundi líða betur ef þú gerðir það.” „Eg missti stjórn á mér. Eg varð svo reið aö ég lamdi upp í loftið með kústskafti og eyöilagði pússninguna. Síðan neyddi ég sjálfa mig til að fara upp, en áður AUSTURVERI 2.654, - kr í afslátt 3tæki áaðeins 19.950 u|slaí9'Bte'“ Rafha vifta, 3ja hraða blæs út eða gegnum kolsíu. Mjög gott vinnuljós. Rafha eldavél, 4 hellur, rúmgóður ofn m/grilleiementi og gott hitahólf ^ r tóO 250 lítra Zanussi ísskápur sjálfvirk afhríming Hæð: 141,5 cm Breidd: 52,5 cm Dýpt: 60,0 cm SENDUM í PÓSTKRÖFU (gildir út febr.mán.) Austurveri, Háaleitisbraut 68. Sírnar 84445—86035. AUSTURVERI 38 Víkan 7. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.