Vikan


Vikan - 17.02.1983, Síða 39

Vikan - 17.02.1983, Síða 39
FRAMHALDSSA GA en ég komst aö dyrunum hjá hon- um skrúfaði hann fyrir eins og venjulega. Síðan fannst mér ég veröa aö komast burt og hljóp út og í bíó og horföi á einhverja hræöilega mynd. Reglulega ógeðs- lega. Hún var... ” Hannhló. „WendyBaby?” Hún kinkaöi kolli og roðnaði aft- ur við minninguna. „Eg gat þó veriö í burtu í tvær stundir. Ekk- ert gerðist meira þaö sem eftir varnæturinnar.” „Og síöan?” „Eg hef ekki hugmynd um það,” játaöi hún. „Eg var gripin ótta í gærmorgun og pakkaöi niður í tösku og tók á leigu herbergi á Majestic hótelinu. Þar var næst- um fullt svo ég var heppin að fá herbergi. Eg svaf þar síöastliðna nótt og hef ekki komiö í íbúðina síðan.” Hacker horföi yfir garöinn. „Þú hefur veriö hrakin út. ” „Bara í eina eða tvær nætur, þangað til ég fæ safnað kjarki aft- ur. Amorgun... ” „Skrattinn hafi morgundag- inn.” Hann staröi á hana. „Gerir þú þér grein fyrir því, Belinda, hvað þessi náungi hefur gert þér? Hann hefur framið skemmdar- verk. Það er ekki hægt aö lýsa því öðruvísi. Hann hefur eyöilagt frumrétt þinn til að lifa lífinu eins og þú kýst sjálf án nokkurrar ágengni við aðra. Ætlar þú aö láta bjóðaþér þetta?” „Strax og ég er búin að jafna mig... ” „Nærtækasta leiöin, þú fyrir- gefur að ég gríp fram í fyrir þér, er að hefja sókn. Og viljirðu þiggja mitt ráð þá gerðu þaö strax. Það minnsta, þaö allra minnsta, sem þessi brjálæöingur skuldar þér er ný pússning í loftiö og næturdvöl á þriggja stjörnu hóteli. Að ekki sé minnst á aðrar skuldir sem verra er að koma höndum á. Þú verður að fara beint heim, elskan, og segja honum til syndanna.” „Þetta virðist svo einfalt hjá þér.” „Eg er ekki að segja aö það sé auövelt. En það er ekki eins ómögulegt og þú hefur talið þér trú um. Sjáðu til. Þessar íbúöir í Ralph Court eru samkvæmt leigu- samningi, eða hvað? Nú, ef þú lest samninginn muntu sjá... ” „Eg veit það. Eg get klagað hann fyrir hússtjórninni. Hún get- ur varað hann við. Ef hann valdi ónæði verði hann sóttur til saka. ’ ’ Hacker smellti með fingrunum. „Þarna hefurðu lausnina alveg í hendi þér.” „Eg vildi helst komast hjá því nema það sé alveg óhjákvæmi- legt.” „Hvað er á móti því? ” „Hann myndi vita að það væri ég semhef kvartaö.” „Hvaðumþað?” „Það myndi bara gera illt verra.” Hacker sagði mjúkum rómi. „Er þér umhugað um að halda nú- verandi vináttu viö manninn? ” „Eg veit að þetta er asnalegt. Eg get bara ekki hugsað til þess að vera... ” „Ovinsæl?” stakk hann upp á. „Hristu þetta af þér, elskan. Ef þú heföir verið í Auschwitz hefðir þú gengiö í fararbroddi til gasklef- anna — þú ert þannig gerð. Eg hef samúð meö þér, skil þig. En þaö kemur að því að maður verður að snúa við blaöinu.” „Auðvitað er það rétt hjá þér.” „Leggöu inn kvörtun strax í kvöld.” „Eg er búin aö taka hótelher- bergiöínótt... ” „Afpantaðu. Gerðu það strax. Þú munt ekki sjá eftir því. ” „Eg ætla aö hugsa um það á eftir.” Hún stóö upp og rétti hon- um höndina. „Þakka þér fyrir, herra Hacker, að sýna málinu áhuga.” 5. KAFLI „Ja, hver fjandinn,” sagði múrarinn. „Hvernig gastu farið að þessu?” Lindy ákvað að láta spurning- PASKAFERÐIR 1 Mallorca perla Miöjarðarhafsins 17 daga ferð: 27/3 - 12/4 Amsterdam í vorblóma Vikuferð 29/3 — 5/4 Páskaferðin er mjög vinsæl, vegna þess að þá eru margir frídag- ar og vinnutap með minna móti. Mallorca er vöknuö af vetrardvalanum, mátulegur lofthiti, gott sólskin og sjórinn farinn aö hlýna. Atlantik býöur upp á gistiaöstööu viö allra hæfi, svo allir ættu aö hafa þaö gott um páskana. Pantið tímanlega, því framboö er takmarkað. Sumir kalla borgina „Feneyjar noröursins", enda má meö sanni segja aö Amsterdam meö öll sín síki sé sérstæö borg. í Amsterdam er fjölskrúðugt mannlíf og eru Hollendingar sérstaklega viömótsþýtt fólk. i Amsterdam finna flestir eitthvaö viö sitt hæfi. Þar er hægt aö sigla um síkin á daginn eöa um kvöld viö kertaljós og rómantík. Hægt er aö fara í skoöunarferöir um borgina eöa út í friösælar sveitir og þorp. Ekki má heldur gleyma listasöfnunum, tónleikasölunum, verslunargötunum og skemmtanalífinu. Já, vikan er fljót aö líða í Amsterdam ... 7. tbl. Vikan 39

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.