Vikan


Vikan - 17.02.1983, Síða 51

Vikan - 17.02.1983, Síða 51
Draumar Glerbrot Kæri draumráðandil Viltu ráða þennan draum fyrir mig. Hann er að vísu dálítið óljós en það eru viss atriði í honum sem ég get ekki gleymt. Eg var stödd í einhverju húsi, eftir á að hyggja finnst mér ég hafa verið á efstu hæð og húsið ekki nýtt. Þarna var eitthvert fleira fólk og eitt nafn man ég en það er ekki víst að það tilheyri nema seinni hluta draumsins. Það er á vinkonu minni, sem ég sé mjög sjaldan, en hún heitir B. Eg veit ekkert hvað hún var að gera þarna. Eftir öðrum man ég ekki. En þarna var ég sem sagt og allt í einu fór að rigna yfir mig smáum gler- brotum (svona eins og ég get ímyndað mér að komi ef framrúða í bíl brotnar). Astæðan var sú að einhver eða einhverjir hentu glösum og/eða flöskum úr gleri á hart gólf eða ein- hvern harðan hlut rétt hjá mér, þar sem glerið splundraðist í smátt og dreifðist yfir mig. Eg gætti þess að hlífa augunum, en var ekkert hrædd eða miður mtn út af þessu. Og glerið gat ég hrist af mér á eftir en þetta voru ótal smábrot og ótrúlega mikið af þeim svo það var talsvert verk. Ekkigeri ég mér grein fyrir hvort ég gerði það í draumnum eða hugsaði það bara. Eg vona að þú getir sagt mér hvað þetta táknar, því þetta með glerbrotin er mjög minnisstætt og ég get ekki hætt að hugsa um það fyrr en ég fæ að vita hvað það merkir. Með fyrirfram þökk, Brothætt. Flest táknin leggjast á eitt um að gera merkingu draumsins nokkuð á- kveðna, allt frá upphafi til enda. Þarna er um að ræða einhverjar breytingar sem hreinlega hellast yfir þig án þess að nokkuð verði að gert. Atburðirnir eru utan- aðkomandi en hafa þó ein- hver afgerandi áhrif á þig og þína. Samt er á- stæðulaust að hafa áhyggjur af þessu, því alls ekki er víst að breyting- arnar verði á nokkurn máta neikvæðar og víst er að þú átt þarna mótleik í poka- horninu ef vel er spilað. Bein úr maga og djúpur hylur Kæri draumráðandil Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig tvo drauma sem mig dreymdi fyrir löngu. Fyrri: Mér fannst ég liggja í koju og var íþeirri neðri en einhver strákur sem ég þekkti ekki í efri. Mér fannst ég vakna við það að strákurinn datt niður úr kojunni. Og þegar ég leit á hann fannst mér stórt bein standa úr maganum á honum. Eg man greinilega að beinið var stórt og svert. Seinni draumurinn var þannig: Mér fannst ég liggja við árbakka sem er fyrir neðan húsið þar sem ég á heima, fannst ég liggja á blábakk- anum og svo datt ég niður í ána. Eg sökk alltafdýpra og dýpra með rúmið, það fylgdi mér alltaf. Mér fannst ég vera þarna niðri dálítið lengi og allt í einu skaut mér upp á ár- bakkann aftur. Þennan draum dreymdi mig oft og ég var alltaf við sama hylinn. Með fyrirfram þökk fyrir ráðninguna, Guðrún. Fyrri draumurinn boðar einhverja breytingu til batnaðar á högum þínum, sem kemur til af einhverjum óvæntum atburðum. Þarna gæti jafn- vel verið um arf að ræða eða einhvers konar efna- hagslega breytingu. Þó er þetta ekki eingöngu jákvætt því einhver böggull fylgir skammrifi og farsælla aðfara varlega. Síðari draumurinn er meira í ætt við martröð og því síður mark á honum takandi. Þó gæti þarna verið um einhverja van- heilsu að ræða sem þú berst við í lengri tíma. Oft er þá útlitið ekki sem best en einhvern veginn tekst þér alltaf að vinna á veikind- unum að lokum. Klippti allt hárið af Kæri draumráðandi. Mig dreymdi einkenni- legan draum sem ég vildi gjarnan að þú reyndir að ráða fyrir mig. Litla systurdðttir mín hefur ákaflega fallegt, sítt, rauðleitt hár. Mig dreymdi að ég var að greiða henni og setti hárið upp í tagl. Þá tók ég eftir þvíað endinn á hárinu var ójafn og slitinn. Því tók ég skæri og ætlaði að særa hárið að neðan og gera það fallegra. Það næsta sem ég vissi var að ég hafði klippt allt hárið af upp við teygjuna og hélt á þvíí vinstri hendi. Með kærri þökk fyrir birtinguna. Móðursystir. Innan fjölskyldunnar koma upp meiri háttar tilfinningamál og deilur þeim samfara. Líklega verður eitthvað til þess að valda þessari systurdóttur þinni sálarstríði og áttu ef til vill sjálf þar hlut að máli án þess að hafa viljað vinna henni illt. Við ráðnmgu hefði verið til bóta að vita nafn stúlkunnar því það hefði getað breytt ráðningu eitthvað, en þó má telja að svipuð niðurstaða hefði fengist. Skop Karlmenn eru óútreiknanlegir. Þegar ég giftist mínum dáöist ég að honum. Núna þoli ég hann ekki. 7. tbl. Víkansi

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.