Vikan - 24.02.1983, Side 6
Ýmislegt
í líf og leik
Allir sem einhvern lífskraft eiga eru leynt eða ljóst
áhugasamir um að viðhalda honum. Krakkar fá útrás í
leikjum og störfum en fullorðnir beina sköpunarþörfinni
á ýmsar brautir, svo sem í matargerð. Á þessari opnu er
ýmislegt einfalt og gott til að sýsla við, leikfangagerð við
allra hæfi, matargerð sem engum ætti að vera ofviða, og
loks nokkrir fróðleiksmolar um andlegt og líkamlegt
heilsufar og hvers getur þurft að gæta.
Lyf + akstur geta
verið hættuleg blanda
Allir vita aö þaö er hættulegt
(og haröbannaö) aö aka þegar
maður hefur drukkið áfengi. En
oft gera.menn sér ekki grein fyrir
aö þaö getur veriö nákvæmlega
jafnhættulegt aö aka ef þeir hafa
neytt einhverra lyfja. Þess vegna
hafa ýmis lyf nú verið merkt með
rauðum þríhyrningi sem merkir
aö lyfið geti haít áhrif á færni
manna til aksturs. Rétt er að
vekja athygli á aö ef menn vilja
frekari upplýsingar um þetta geta
þeir fengið spjald meö helstu atriö-
unum í apótekinu. Lyf sem gera
mikið gagn við því sem þau eiga
aö lækna geta gert menn aö alis-
endis ófærum ökumönnum.
Ymislegt veldur. Sum hafa
alkóhól-innihald, önnur geta slævt
dómgreind manna eöa haft áhrif a
hana á einhver hátt. Þessum lyfj-
um ber einkum aö gæta sín á:
Taugalyf (geðlyf) — róandi lyf og
lyf gegn þunglyndi.
Svefnlyf — öll svefnlyf og þá er
mikilvægt að athuga aö séu þau
tekin seint um kvöld eöa nótt hafa
þau enn áhrif daginn eftir og menn
ættu ekki að aka bíl á meöan svo
er.
Sterk verkjalyf
Ofnæmislyf — flest ofnæmislyf
eru varasöm fyrir ökumenn.
Sterk hóstasaft — í henni er oft
alkóhól eöa efni skyld morfíni.
Lyf við flogaveiki
BUveikitöflur — einnig sjóveiki-
töflur og álíka lyf.
Vöðvaslakandi lyf
Örvandi lyf og sumar gerðir
megrunarlyfja — þessi lyf geta
verið sérlega hættuleg ökumönn-
um því áhrif þeirra eru stundum
nokkuð sterk og geta ruglaö dóm-
greind manna þannig aö þeir telji
sig færa um að takast á viö hvaö
sem er.
yngstu
Takiö 2 metra langt og 15 cm falt vegasalt handa litlu krökkun-
breitt heflaö borö, kústskaft í um. Sagið kústskaftiö í hæfileg
handföng og trjábol, um það bil 25 handföng og neglið á boröiö en lát-
cm í þvermál, og gerið úr því ein- iö þaö vera laust á trjábolnum.
Auka megrunaraðgerðir
skilnaðartíðni?
Nú orðið er talsvert um að konur
(og eitthvað af körlum) fari í
skurðaögerðir til að vinna bug á
offitu. Þekkt er að þessum
skuröaðgeröum fylgja ýmsar
aukaverkanir, sumar mjög svo
hvimleiðar, en ein aukaverkunin
sem vakið hefur óróa aö minnsta
kosti í Englandi er ensk kenning
um aö skilnuöum fjölgi eftir
þessar aögeröir, einkum ef giftar
konur fara í þessar aðgerðir.
Erfitt er aö slá nokkru föstu í
þessu efni en þó hafa verið geröar
tilraunir til þess. Læknar á sjúkra-
húsi í Flórída hafa til dæmis gert
könnun á þessum málum hjá
sjúklingum þeim sem fariö hafa í
aögeröir af þessu tagi hjá þeim.
Niðurstöður þeirrar könnunar
eru í stuttu máli þær aö yfirleitt
verða hjónaböndin hamingjusam-
ari eftir aðgerðina, en i þeim
tilvikum sem hjónaböndin hafa
verið slæm fyrir aðgerðina aukist
hættan á skilnaði mjög eftir
aðgerö gegn offitu.
Skýringuna getur maöur fundiö
án þess aö vera sálfræðingur: Of-
fita eiginkonunnar er sjaldan
stærsta vandamálið í hjóna-
böndum, en frá sjónarmiöi eigin-
konunnar getur hún veriö það og
þar meö getur hún gert sér vonir
um aö ef þaö vandamál sé úr sög-
unni sé allt komið í himnalag. En
sú er sjaldnast raunin. Þegar
vonir bresta í hjónabandi, sem
ekki er sérlega beysiö fyrir, getur
fariö aö braka í ýmsu ööru, eöa
svo telja bandarísku læknarnir að
minnsta kosti að liggi í málinu.
Svo er auðvitað hægt að hugsa
dæmið öðruvísi og áfram...
I mmmmm
b ViKan 8. tbl.