Vikan


Vikan - 24.02.1983, Page 19

Vikan - 24.02.1983, Page 19
og samherjarnir Willy Brandt, Arthur Koestler og Alfred Kantorowits bindur Orwell vonir viö samfylkingar vinstri manna. Þessar vonir reyndust tálsýn ein: A sama tíma og lýðveldis- sinnar, kommúnistar, jafnaðar- menn og stjórnleysingjar flykkj- ast til spánska lýðveldisins að verja það gegn fasistum strá- drepa kommúnistaleiðtogarnir alla fyrirliða samherjanna i POUM. Þetta skeði 16. júní 1937, mitt í sjálfu borgarastríðinu. Orwell komst undan. A meðan hann liggur særður á sjúkrahúsi berst honum viðvörun, hann flýr, felur sig í kirkjurústum og heldur til Frakklands. Hann er — eins og Brandt og Koestler — áfram jafn- aöarmaöur. En hann gerist nú — eins og hinir — harður andstæð- ingur kommúnista. Tvær bækur skrifar Orwell til viðbótar á þessum tíma. Onnur f jallar um reynslu hans í borgara- stríðinu á Spáni og í hinni varar hann við yfirvofandi stríði við Hitler. Tímaritið „Tribune”, sem vinstri jafnaðarmenn gefa út í London, ræður hann sem bók- menntaritstjóra og ritar hann fasta þætti í blaðiö. Arið 1943 skrifar hann bókina víðfrægu „Animal Farm”. Sögu- þráðurinn er ekki flókinn: A breskum bóndabæ gerast þau tíð- indi að dýrin gera uppsteyt og reka fólkið á brott. Um leið lýsa þau yfir jöfnuði allra dýra. Oll dýrin efna þetta heit nema annar gölturinn. Hann gerist sjálfskipaö- ur drottnari allra svínanna og þau sölsa undir sig völdin á bænum. Þau læra því næst að ganga á aft- urfótunum, drekka áfengi og að lokum aröræna þau hin dýrin á svívirðilegri hátt en bóndinn hafði áður gert. Slagorð svínanna er þetta: „Öll dýr eru jöfn, en sum eru jafnari en önnur. ” Það fer ekki milli mála að „Ani- mal Farm” felur í sér nístandi háð um Stalín og kommúnista. Af þeim sökum vill fyrst í stað enginn taka að sér útgáfuna. Bretar hafa gert bandalag við Sovétmenn í stríöinu gegn Hitler. Þegar hillir undir stríðslok tekur útgefandinn Fred Warburg að sér að gefa bók- ina út haustiö 1945 í litlu upplagi, en það seldist upp á fáum vikum. Fleiri útgáfur og þýðingar fylgdu í kjölfarið. I einu vetfangi var Orwell oröinn sá frægi rithöfundur sem hann hafði ætíö langaö til að verða. Tekjurnar af „Animal Farm” tryggja auk þess efnahag- Orwell þjáist af berklaveiki. Konan hans er dáin. Samt byrjar hann á nýrri bók, sem varar við „Stóra bróður”. Sú bók lýsir lífi ósköp venjulegs manns sem býr i London árið 1984. Winston Smith er 39 ára gamall, meðlimur í Einingarflokknum og starfar hjá „Sannleiksráöuneyt- inu”. Heima hjá honum er sjón- varp sem verkar í báöar áttir og það er ekki hægt að slökkva á því. Sjónvarpið vekur Smith á morgn- ana og hvetur hann til að fara á hatursfundi síödegis, til að bölva ímynduðum óvinum. „Astarráðu- neytiö” notar sjónvarpið á hinn bóginn til að njósna um alla þegn- ana allan sólarhringinn. Smith gerir samt sem áður upp- reisn. Hann byrjar að færa dagbok (stranglega bannaö), tekur upp ástarsamband við stúlku eina (af- brot) og les rit dr. Goldsteins um gervi-jafnaðarstefnu þá sem felst í kúgunarkerfi „Stóra bróður” (dauðasök). Varúðarráðstafanir Smiths stoða ekki. I sögu Orwells um árið 1984 tekst þjóðfélagsþegnunum ekki að fela neitt fyrir ríkisappa- ratinu. Hugsanalögreglan flettir ofan af Smith. Hann er handtek- inn, pyntaður, ljóstrar upp um vinkonu sína, vísar á bug þeirri þekkingu sem hann hafði aflað sér og snýr aftur til „hinna sönnu fræöa”. Smith hlýtur líflát að launum. Orwell skrifar „1984” á rúm- stokknum. Hann getur aðeins ver- iö nokkrar klukkustundir á fótum, læknarnir hvetja hann til að hvíl- ast og taka jafnvel ritvélina frá honum um tíma. En hann neyöir sig til að halda áfram, uppnuminn af hugsýn sinni. Aftur verður bók eftir Orwell metsölubók. Milljónum saman finna lesendur þar framtíöarsýn sem þá grunaði og þeir óttast. Bertrand Russell hefur þessi orð um Orwell: „Olíkt flestum svo- nefndum raunsæismönnum eða hugsjónamönnum gat Orwell raunverulega gert sér grein fyrir hlutunum.” Sjálfur samdi Orwell bókina til að vara viö kommúnismanum. En: íhlutun í einkalífið, njósnir um heimilislíf íbúanna fyrir til- stilli sífellt fullkomnari tækni, ein- skorðast síöur en svo viö vald- níðslustjórnir Austurveldanna. Sú frásögn sem hér fylgir á eftir syn- ir aö sams konar ríkiseftirlit hreiðrar þegar um sig á Vestur- löndum. Orwell ætlaði að skrifa enn eina bók. Hún átti að benda á undan- komuleiöina. En hann dó áður en úr því varð af völdum berklaveik- innar 21. janúar 1950. Síöasta bók- in hans hefur haft mikil áhrif a milljónir manna undanfarna þrja áratugi. Því nær sem áriö 1984 færist þeim mun meir líkist raun- veruleikinn spádómum Orwells. „Þótt eitt ár sé eftir til 1984 er öll tæknin þegar fyrir hendi. Heimur- inn getur orðið nákvæmlega eins og sá sem George Orwell lýsti,” sagði nýlega í leiðara bandaríska kvikmyndablaðsins „American Film”. Ritstjórn blaðsins mælir meö að öllu skólafólki, frá og með grunnskólanemum, verði kennt að bera skynbragð á fjölmiðla. „Fjöl- miölaþekking” verði lögö til jafns við reikning og lestur. „Tæknin er fyrir hendi.” Hér verður lýst kerfi sem vestur- þýska lögreglan kom sér upp fyrir tveim árum. Það er ekki laust viö að hroll setji að manni við aö sjá hve stutt gæti verið í notkun þessa alsjáandi kerfis til aö koma til dæmis upp um „svipglæpi” eins og þá sem Orwell lýsti. Að gefnu tilefni Vestur-þýska rannsóknar- lögreglan hafði ærið tilefni til að koma upp eftirliti meö NATO- hershöföingjum í landinu. Ymsar upplýsingar bentu til þess haustiö 1980 að RAF-hópurinn hygðist myrða einhvern af þessum hers- höföingjum. Það kom í ljós að grunsemdirnar voru réttmætar. 15. september 1981 var skotið skriðdrekasprengju að bíl banda- ríska hershöfðingjans Kroesen, þegar hann var á leiö frá heimili sínu. Sprengjan hitti afturhluta brynvarins bílsins og kastaðist burt án þess aö saka þennan yfir- hershöföingja bandaríska her- aflansíEvrópu. I leyndarskjali vestur-þýsku rannsóknarlögreglunnar segir Zabel, yfirmaður leitardeildar- innar, 8. janúarl981: „Risavaxiö andlit, meir en einn metri á breidd. Þetta var fjörutíu og fimm ára karlmaður — stórskoriö, myndarlegt andlit og áberandi, svart yfirskegg. ... alls staðar þar sem yfir- sýn var góð skimaði þetta andlit um allt.” Með andlitinu stóðu alltaf þessi orð: „Stóribróðir fylgistmeð þér.” „Á almannafæri eða í námunda við sjónvarpsskerm var stórhættulegt að láta hugann reika. Minnsta feilspor gat komið upp um mann. Ósjálfráð hreyfing, ómeðvitaður kvíðasvipur, jafnvel muldur í eigin barm — allt gat orðið vísbending um frávik, það að maður hefði eitthvað að fela. Óviðeig- andi svipbrigði voru refsiverð (svo sem undrunarsvipur, þegar sigrar voru tilkynntir). Nýmálið átti jafnvel orð um slík afbrot: þau nefndust SVIPGLÆPIR.” — George Orwell, 1984 Svipglæpir itóri bróöir fylgist með þér" o ,S óri bróðir fylgist með þér" 8. tbl. Vikan 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.