Vikan


Vikan - 24.02.1983, Side 21

Vikan - 24.02.1983, Side 21
„Stóri bróðir fylgist með þér" „Stóri bróðir fylgist með þér" um að fylgst var með því né heldur hvaða upplýsingum lög- reglan safnaði. Bílnúmer voru skráö og athuguö, kannaðir eigendur bíla, fótgangandi menn eltir, nágrann- ar hershöfðingjanna athugaðir og gestir þeirra rannsakaðir, könnuð atvinna og alltaf þegar minnsti vafi lék á var maðurinn tekinn fyrir. Óþekktur maður komst í lífshættu við hús breska hers- höföingjans Reynolds. Lögreglu- mennirnir, sem fylgdust með húsinu í sjónvarpi, sáu hvernig hann gekk rannsakandi umhverfis húsið og stefndi síðan í átt að aðal- dyrunum. Rétt áður en lögreglan hugðist ráðast á manninn kom í ljós aö hann hafði skorsteins- hreinsun að atvinnu. Vinir og gestir allra sem bjuggu á eftirlitssvæðinu urðu tilefni lögreglurannsókna. Ekki er kunnugt hve margir voru mynd- aðir og skráðir með ýmsum persónulegum upplýsingum í tölvubanka vestur-þýsku rann- sóknarlögreglunnar. Hér var ekki um að ræöa venju- lega lögreglurannsókn. Menn voru dæmdir eftir félagslegri hegðun sinni. Þeir sem á einhvern hátt sýndu afbrigöilega hegðun voru athugaöir. Og Heidelberg er ekki einstakt dæmi. Vestur-þýska rannsóknarlögreglan hóf vorið 1980 framkvæmd víðtækrar áætlunar um „járnbrautaleit”. Byrjað var á því að þjálfa 500 lögreglumenn frá öllum helstu borgum og hefur þessi áætlun nú höfuöstöðvar í Hamborg, Frank- furt, Miinchen og víðar. Starfsmenn áætlunarinnar eru samtengdir með síma, fjarritum og myndasenditækjum. Þeir fengu einnig aðgang aö sjónvarps- tökuvélum sem þegar hefur veriö komið upp víðsvegar á vestur- þýskum járnbrautastöövum til eftirlits með umferðinni. En þær vélar sjást, svo að lögreglumenn- irnir létu fela myndavélar til að fólk gæti ekki vikið sér undan auga vélarinnar. Tilefnið var ný aðferð rann- sóknarlögreglunnar við leit að grunsamlegu fólki. Þýska heitið „Rasterfahndung” má útleggja með orðunum „leit eftir flokkun”. Hún fer þannig fram að lögreglu- maður velur ákveðna flokka upp- lýsinga, sem hann lætur tölvu síðan leita uppi. Til dæmis eru valdar íbúðir þar sem margir jafnaldrar búa saman, allir sem borga rafmagnsreikninga með reiðufé, allir sem hafa vissa nærsýni og svo framvegis. Þessi flokkun skilur kannski eftir nokkur hundruö manns, sem síðan eru flokkaðir nánar eftir öðrum persónueinkennum og eftir eru þeir sem leitaö er aö — eöa enginn. Engin takmörk Eftirlitskerfinu eru í raun engin takmörk sett. Svo vitnað sé í orð Herolds, fyrrverandi yfirmanns vestur-þýsku rannsóknarlögregl- unar: „Tölvutæknin gerir tak- markalausa upplýsingaúrvinnslu mögulega. Það er hægt að geyma yfirlit yfir alla ævi einstaklings- ins, fá lýsingu á honum eins og hann er í dag, heildarmynd eða hluta af persónuleikalýsingu, skrá allt hans atferli, lífshætti og fram- komu. Það er hægt að fylgjast með og líta eftir og allar upplýs- ingarnar verða að eilífu ógleymdar, alltaf til taks.” Á járnbrautarstööinni í Frank- furt fór þessi „leit eftir flokkun” Fólk gat verið með grunsamlegan svip__ ... keypt grunsamleg dagblöð... ... eða talað við ókunnuga. fram á nýjum nótum: Með lita- sjónvarpsvélum var fylgst meö öllum vegfarendum í því skyni að finna þá sem keyptu dagblöð sem gefin eru út í öllu Vestur-Þýska- landi (hermdarverkamenn eru taldir tilheyra þeim hópi). Fylgst var náið með hegðun fólks við farangursgeymsluhólf, allir skoðaðir sem skiptu um föt á salernum, gefinn gaumur að merkjum sem ungt fólk gaf hvert öðru. Könnuð var hegðun þúsunda manna sém höföu ekkert sér til sakar unnið. Tilgangurinn var að finna hegðun sem gæti leitt til grunsemda. Algjört eftirlit: A vegum ríkis- ins voru skráðar allar tegundir hegðunar, þær geymdar og síöan metnar. Persónuleg, tímabundin og léttvæg samskipti einstaklings- ins við annað fólk, við hluti, staöi eöa jafnvel texta voru tekin á myndbönd og túlkuð. Þarna var ráðist inn í einkalíf fólks og persónufrelsiö skert svo um munaði. Innrauð mynd af manni með skot- vopn í buxunum. Byssan er Irtið eitt knldari en likaminn. Skynjari sendi allar hreyfingar á mynd- segulplötu. Seinna var svo hægt að skoða bilnúmer og annað. Alsjálfvirk sjónvarpslert að grunuðum — hágæðatækni... Þessi gífurlega aukna vitneskja, sem ríkið fær meö þessu móti um einstaklinginn, er ekki óviljandi afurð tölvualdarinnar. Lögreglu- yfirvöld hafa þaulhugsaö og lagt drög að þessu víðtæka eftirlits- kerfi sem sífellt fer stækkandi. Sem dæmi má nefna friðsamlega kröfugöngu 120.000 manna sem söfnuðust saman í Wiesbaden 14. nóvember 1981, þegar yfirvöldum voru afhentar 220.000 undirskriftir til að mótmæla byggingu stórrar bílabrautar þar um slóðir. Allar sjónvarpsmyndavélar umferðardeildar Wiesbaden- borgar voru afhentar rannsóknar- lögreglunni til umráða, þrátt fyrir að einungis væri lögum sam- kvæmt heimilt að nota sjónvarps- kerfið til að stjórna umferðinni. Ennfremur voru settar upp vélar og leysigeislakerfi til að fylgjast meö fundinum í lok göngunnar. Myndavélarnar voru búnar aðdráttarlinsum svo að hægt var að ná andlitsmyndum af hverjum sem var, jafnvel í þyrlum voru faldar myndavélar. Hægt var að fylgjast með hvaöa einstaklingar töluðu saman og á hvaöa kröfu- spjöldum þeir héldu. I þetta skipti var ekki veriö að leita að hugsanlegum eða þekkt- um hermdarverkamönnum. Þarna safnaðist saman fólk sem nýtti sér stjórnarskrárréttindi til aö safnast saman með friðsam- legum hætti. „Faldar sjónvarps- vélar sér enginn,” segir vestur- þýska fréttatímaritið Der Spiegel. „Hægt er að fela þær á bakvið glugga í háhýsum og fylgjast með vistarverum, háskólabyggingum, flugvallarbyggingum, kjarnorku- verum, samkomustöðum ungl- inga, fundarsölum, skrifstofum stjórnmálaflokka, skemmtistöö- um, torgum og öðrum stöðum. Síðan er hægt að draga saman upplýsingar sem er safnað yfir langt tímabil og búa til yfirlits- mynd af ákveönum einstaklingi. Það veröur ekkert einkalíf til ef Stóri bróðir vill það ekki.” Innan skamms verður hægt að gefa tölvum upp andlitsmynd af einstaklingi og síðan finna sjón- varpsvélarnar hann á förnum vegi. Tölvan ber saman fyrir- myndina og þaö sem sjónvarps- vélarnar sjá og á fáum sekúndum er maöurinn fundinn. Frásögn Der Spiegel lýkur á þessum oröum: Síðan er handtakan framkvæmd af mönnum. > m 8. tbl. Vikan 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.