Vikan


Vikan - 24.02.1983, Qupperneq 48

Vikan - 24.02.1983, Qupperneq 48
Steini og O/íi Gög og Gokke Laurel and Hardy Félagarnir Stan Laurel og Oliver Hardy, sem nú eru kallaðir Steini og Olli á íslensku, eru frægustu og vinsælustu tvímenningar kvikmyndasögunnar. Þeir hafa komið mörg- um til að hlæja með vitleysunni 1 sér og kjána- legustu uppákomum. Kvikmyndir þeirra voru hreinir og klárir farsar. Atburðarásin er ein- föld og nokkuð svipuð frá einni mynd til ann- arrar og tvimenningarnir leika sömu mann- gerðirnar í þeim öllum. Steini er sá mjói og Olli sá feiti. (Eg kann reyndar ekki nógu vel við þessi nýju nöfn, hefði kunnað því betur að kalla þá áfram Gög og Gokke, en hvaö um það?) Steini (Stan Laurel) er einfaldur og barns- legur 1 lund og það sem börnin myndu kalla innilega fattlaus. Hann á afskaplega erfitt með að setja hlutina 1 samhengi. Ef kumpán- arnir ætla að brjótast inn i hús labbar Steini upp aö útidyrunum og hringir dyrabjöllunni. I einni kvikmyndinni eru þeir meö geit uppi á hótelherbergi en það er auðvitaö bannað. Þeir þurfa að fela geitina áður en þjónninn kemur og Olli bendir undir rúmiö. Steini skilur ekki viö hvaö er átt og skríður sjálfur undir rúmiö. Steini er eins og barnið sem segir í strætis- vagninum: „Mamma, við skulum tala um nefið á þessum kalli þegar viö komum heim.” Olli reynir meö litlum árangri að hafa vit fyr- ir Steina, eins og þeir fullorðnu fyrir börnun- um. Hann er dálítill kvennabósi og reynir aö laöa aö sér dömurnar en það gengur yfirleitt ekki vel. Steini setur upp einfeldningslegan undrunarsvip og Olli lítur beint framan 1 myndavélina (áhorfendur) og andvarpar þungt. Olli heldur að hann sé sá greindari af þeim og foringi þeirra og því verður fall hans oft hátt. Ahorfendur finna til samkenndar með þeim, þekkja sjálfir mörg svipuð atvik, en Steini og Olli taka út yfir allt eins og sannir trúðar og það sem ef til vill er dapurlegt 1 raunveruleikanum verður unaðslega skemmtilegt í þeirra meðförum þegar þeim tekst best upp. Stan Laurel var Englendingur, fæddur 1890. Hann var sonur leikarahjóna og byrjaði snemma aö fóta sig á fjölunum. Hann kom fyrst til Bandaríkjanna með leikflokki 1910 og aftur 1913, en eftir það settist hann þar aö. Hann vann sem leikari, hugmyndasmiður og leikstjóri viö ýmis kvikmyndaver í Hollywood áöur en leiðir hans og Oliver Hardy lágu sam- an. Oliver Hardy fæddist í Atlanta i Georgíu- fylki Bandaríkjanna 1892. Hann dreymdi um að verða lögfræðingur en rak kvikmyndahús. Þannig lá leiö hans í kvikmyndirnar. Laurel og Hardy hittust fyrst áriö 1926 þegar Hardy lék þjón í kvikmynd sem Laurel var aðstoðarleikstjóri við. Framleiðandinn, Hal Roach, sem var þá í óða önn að koma kvik- myndaleikflokki sínum, Comedy All Stars, á laggirnar, fékk þá hugmynd aö láta Laurel mjóa og Hardy feita leika saman í mynd. Þeir léku þó saman í 10 myndum í aukahlutverk- um áður en þeim voru falin aðalhlutverkin. Rétt er að benda á að allar myndimar (eins og svo algengt var á þessum árum) voru stuttar, 20—40 mínútur. Blómatímabil Laurel og Hardy var á árunum 1928—1935, en eftir það fór að halla undan fæti. Þeir léku samt sem áður í mörgum myndum eftir það og voru alla tíð góðir vinir. Þeir auðguðust ekki á kvikmyndaleik sínum og sagt er að þeir hafi ekkert fengið i sinn hlut þegar Hal Roach seldi sjónvarpsréttinn að myndunum fyrir 750 þúsund dollara árið 1951. Hardy var tvígiftur. Hann lést í sárri fátækt árið 1957. Laurel kvæntist fjórum sinnum, þar af tvisvar sömu konunni. Hann var sá félag- anna sem var greindari og hugmyndaríkari. Mörg bestu atriðin í myndum tvístirnisins eru frá honum komin og framlag hans til sögu gamanmyndanna er stórt. Arið 1960 fékk hann sérstök óskarsverðlaun fyrir þennan þátt sinn og hann lifði aö sjá Laurel og Hardy rísa úr gleymsku og veröa vinsæla á ný, ekki síst fyrir tilstuölan sjónvarpsins. Laurel lést 1965. LS 48 Vikan 8. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.