Vikan


Vikan - 28.06.1984, Blaðsíða 45

Vikan - 28.06.1984, Blaðsíða 45
sér ánægöir fram á skíðastafina, himinlifandi og hressir. „Váá,” sagði Trevinski, berg- málaði líðan þeirra allra. „Þetta gekk eins og í sögu. Ætli það verði ekki aö vera gott stundum. ” „Ekkert mál.” Millar berg- málaði tilfinninguna. Peterson hlustaði, hugsaði með sér að jafnvel valdir menn væru innst inni ekki öðruvísi en aðrir. Þegar minningar um heiminn dofnuðu og steikur og ísar síðustu viku uröu ófáanlegir eins og fjár- sjóðir voru þeir fljótir að sætta sig aftur heimspekilega við erfiðleik- ana sem höfðu veriö baröir inn i þá frá fyrsta degi í æfinga- búðunum. Honum létti við að Bretinn og Norðmaöurinn virtust steyptir i sama móti. Hann fylgdist grannt með þeim, var að ákvarða nákvæmlega hvernig átti að bæta þeim inn í árásina sem þeir myndu gera snemma laugar- dagsmorguns þegar varnarmenn ratsjárinnar, ef einhverjir væru, myndu ekki síöur þurfa að berjast við syfju en kulda. Um klukkan þrjú að nóttu var líkamshitinn lægstur og sama var að segja um baráttuvilja manna. Til aö hagnast á þessu þurfti sveitin hans ekki bara að vera örugg með sig, sem hún var, heldur líka út- hvíld. Hann vildi vera kominn yfir jökulinn og á síðasta áfangastaö klukkan 18.00 á morgun svo að rúmir sjö tímar fengjust í svefn og undirbúning á siðustu stundu. Hann sneri sér að Mydland. „Heldurðu að þetta veður haldist, kafteinn?” „Það er hvassara.” Mydland velti þessu mikilsveröa atriði fyrir sér. „Það er óútreiknanlegt hérna.” Hann efaðist stórlega um aö það væri viturlegt að fara niður 1 Colesdal þó að það væri styttri leiö. „Við ættum að halda okkur eins hátt uppi í fjöllunum og hægt er.” „Við paufum sjö klikk enn,” skipaði Peterson, „holum okkur svo niður og fáum okkur blund. Við gætum átt annríkt á morgun.” „Þaö sem hann á við,” trúði Trevinski Millar fyrir, glaðlega og iágróma, „er að þaö gæti orðið djöfullegt, en ofurstar mega víst ekki orða það þannig.” „VIÐ LOKUÐUM gildrunni, félagi ofursti. Við fundum hjörö af þessum.” Spetsnaz-kafteinninn ■^eð riffilinn á bakinu benti inn í Þyrluna, á hreindýrsskrokk. Hann var ungur og metnaðarfullur og honum gramdist að vera hafður aö fífli. „Ef til vill getum við sent steik í ljósmyndagreinana hjá flughernum.” Þó hann væri reiður vogaði hann sér ekki að stinga upp á svipaðri gjöf handa hers- höfðingjanum. Þó vissi hann að hugmyndin um frest til að taka árásarsveitina lifandi var frá Stolypin. „Leituðum þið á öllu svæðinu? ” „Engin merki um hreyfingu.” „Engu að síður vil ég hafa tutt- ugu manna baráttusveit til reiöu þar til nánar verður ákveðið. Enn- fremur...” Makarov hélt strang- leikasvipnum, „veistu ekki að hreindýrið er friöuð tegund? ” „Nei, félagi ofursti. Ég áttaði mig ekki á því.” Sjálfumgleöi kafteinsins var brostin. „Jæja, það er það svo að þú skalt ekki eyða steikum á flug- herinn en geymdu nokkrar handa mér.” Hann brosti, gat naumast varist hlátri. „I þessu eina tilviki, aðeins þessu, skal ég ekki segja hershöfðingjanum frá þessu, þaö er aö segja í smáatriðum. ” Hann sendi feginn ungan foringjann burt, óskaði þess að það væri hægt að hlæja að fleiru í þessari bölvuðu aöstööu. Einhvers staðar í þessum hrikalegu, skýja- huldu fjöllum var bandarísk eða bresk árásarsveit falin. Það hlaut aö vera. Utbúnaöur togarans leyföi enga aðra skýringu. Hann sendi telex til Arkangelsk og tilkynnti á hlutlausu hermáli hvað sveitin hafði fundið og fór fram á frekari infrarauöa ljósmynda- töku. Svo skipaði hann tveimur Mi-tí þyrlum aö fara í ná- kvæma könnunarferö á strönd Nordenskioldlands, jafnlangt inn i land og veöur leyfði. Loks hringdi hann í Stolypin hershöfðingja og fékk, eins og hann vænti, stuttorð fyrirmæli um að koma til Long- yearbæjar. „Helvítið getur ekki klínt þessum mistökum á mig,” sagði hann viö sjálfan sig, ,,en ætlar greinilega aö gera það. ” STRIÐSÆSINGAR og stríðsótti höfðu ráðiö ríkjum í Bretlandi frá því að innanríkisráðuneytið lak þeim fréttum að sovéskt fraktskip hefði siglt frá Murmansk með auðþekkjanleg aðvörunarratsjár- möstur á dekki. Aður höfðu mót- mælin gegn NATO og öll slag- orðin, sem máluð voru á veggi, verið fullkomlega laus við að vera táknræn fyrir venjulega Breta. Að vísu hafði það aukið áhyggjur manna þegar varamenn voru kvaddir í herinn en um leið og herir NATO og Varsjárbandalags- ins röðuöu sér upp á landamærum austurs og vesturs hafði þróast undarleg stöðugleikakennd, sú til- finning að þetta væru allt látalæti og að þaö myndi í rauninni enginn berjast um Svalbarða. Nú skall vissan yfir hinn vest- ræna heim jafnsnöggt og þrumu- veöur, sú vissa að Sovétríkin væru af ásettu ráði aö láta reyna enn frekar á ásetning sinn og að árekstur austurs og vesturs væri kominn með nýjan og hættulega nálægan brennipunkt. Þegar Bretar gerðu sér grein fyrir þessu kom það fram í risastórum fyrir- sögnum í blöðum á fimmtudags- morgni og hvassyrtum umræðum í þinginu síðdegis. Nancy haföi eytt öllum deginum í íbúðinni, beðiö þess að síminn hringdi eða hún fengi skilaboð. Ekkert barst og síödegis horfði hún á 5.45 fréttir í sjónvarpinu með ástríðuþrunginni athygli, hlustaði kvíöin á þulinn segja frá síðustu fréttum um „Svalbaröa- deiluna" meðgremjulega hógvær- um breskum hreim. „Eftir miklar diplómatískar að- geröir í dag lýsti norski forsætis- ráöherrann því yfir að Noregur myndi taka afgerandi skref til að tryggja yfirráðarétt sinn á Sval- baröaeyjum. I höfuðstöðvum NATO í Brussel” — ljósmynd af fánastöngum fyrir utan langt húsið birtist á skerminum — „skaut varnarmálanefndin á neyðarfundi og fordæmdi aftur „ólögmæta veru Sovétmanna á Svalbarða” og undirstrikaði fullan stuðning sinn við aðgerðir Norðmanna, bæöi samkvæmt fjórðu grein Norður-Atlantshafs- samkomulagsins og í samræmi við fimmtugustu og fyrstu grein yfirlýsingar Sameinuöu þjoð- anna.” Svo urðu áhrifarík skil i út- sendingunni. Innanríkisráðherra Bandaríkjanna var þessa stund- ina að tala í Washington. Magurt, næstum tekið andlit hans sagði sína sögu. Frammi fyrir röö hátal- ara tilkynnti hann alvörugefinn aö eftir að hafa ráðgast við banda- menn sína væru Bandaríkin reiðu- búin að styðja norsku stjórnina á allan hátt, þar með talið hernaöar- lega ef nauösyn krefði. „Við von- um innilega aö til þess komi ekki,” sagöi hann, „en hervæð- ingu þessa svæðis geta Bandaríkin ekki sætt sig viö fremur en nokkur önnur þjóð sem undirritaði Sval- barðasamkomulagið. Aftur á móti —” ráöherrann þagnaði, horfði tortrygginn á ósýnilega kvik- myndatökumenn — „viðurkenna Bandaríkin þá miklu þörf sem er á að heimskautasvæðin verði laus viö valdaátök stórveldanna. Þess vegna mun forsetinn innan tíðar leggja fyrir þingið beiöni um viö- ræður með milligöngu Sameinuðu þjóðanna um nýjan alþjóðlegan samning til að tryggja öryggi þessa svæöis. Markmið okkar verður, og viö vonum að það verði eins meö Sovétríkin, að varna því að nokkur hluti þessa svæðis verði notaður til hernaðarumsvifa af einhverri gerð og leggja það undir alþjóðlegt eftirlit.” Um leið og fljótfærnislega gerða kortiö af heimskautinu og norð’irpólnum birtist á skermin- um Ofj herfræðilegu útskýringarn- ar hófust áttaði Nancy sig á þýö- ingu þessa. Það var verið að bjóða Sovétríkjunum upp á leið til að bjarga andlitinu og koma sér burt frá Svalbarða meö lágmarksút- gjöldum fyrir Bandaríkin. Skyldu þeir hallast að því aö samþykkja þetta? Hún baö þess að þeir gerðu þaö og óttaðist ósjálfrátt aö þeir myndu ekki gera þaö. Svo kom það henni á óvart að hún skyldi finna til stolts yfir því að land hennar stæði aö minnsta kosti gegn yfirgangi viö minni bandamann sinn. Hvað eru Bretar að gera? hugsaöi hún. Spurning- unni var svaraö andartaki síðar þegar andlit forsætisráðherrans, sem nú var orðið kunnuglegt, birt- ist á skerminum og hét stuðningi viö Noreg með afar svipuðu oröa- lagi og innanríkisráöherrann hafði gert. Jæja, hugsaöi hún, var furðu mikiö létt, þeir hafa aö minnsta kosti samhæft aðgerðir, hvaö svo sem þeir ætlast fyrir. Og enn betra var aö þetta hljómaöi eins og miklu umfangsmeiri að- gerð en Tom myndi taka þátt í. STOLYPIN hershöföingi las enn einu sinni skilaboöin frá Moskvu. Þegar oröskrúðiö var flegið burt staöfestu þau að lokun á hafi væri yfirvofandi og að tillög- ur Bandaríkjanna um heim- skautasvæðiö hefðu þegar fengiö alþjóölegan stuðning. Núna reið á miklu að sanna undirferli Bandaríkjamanna með því aö ná mönnunum sem norski togarinn hafði flutt. Þaö ætti ekki aö vera nauðsynlegt aö leggja áherslu á það, héldu skilaboðin áfram, hversu mikið reiðarslag í áróðri slíkt yrði fyrir heimsvaldasinn- ana. En þaö reiðarslag þurfti aö falla áður en skipið með ratsjár- 26. tbl. Vikan 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.