Vikan - 28.06.1984, Blaðsíða 32
Upprisa og endu
Komar og Melamid hafa málað mynd
irnar í sameiningu undanfarin tiu ár.
Leitað að eftirmanni Stalíns: „Krústjof
makkar á bakvið Beríu."
Myndirnar verka á mann
líkt og stórvaxin málverk
gömlu meistaranna. Þær
virðast sýna mikilvæg tíma-
mót í sögu heimsins, at-
burði þegar mikilmenni létu
til sín taka. En við nánari
athugun kemur í Ijós að hér
er um grófa sögufölsun að
ræða — væri jafnvel réttast
að vísa höfundunum út í
ystu myrkur, eða að
minnsta kosti úr landi.
Þessir þokkapiltar, sem
rangsnúa mikilvægum at-
vikum í hinni díalektísku,
32 Vikan 26. tbl.
efnishyggjulegu, marx-len-
ínsku baráttusögu hinna
heilbrigðu sósíalísku, so-
vésku lýðvelda, kalla sig K &
M en þeirra raunverulegu
nöfn eru Vitalij Komar og
Alexander Melamid. Enginn
má gleyma nöfnum þessara
óvina sósíal-realismans sem
eru úlfar í sauðargæru og
sigla undir fölsku flaggi að
auki.
Allavega sigla þeir ekki
lengur undir rauðum fána
lands hins mikla föður,
Jósefs Stalín — mannsins
sem öðrum fremur skóp
heimssöguna — að sjálf-
sögðu í takt við efnahags-
legar undirstöður hins fé-
lagslega geira, það er nú
annaðhvort!
Nei, þeim var vísað úr
landi 1977 eftir að þeir höfðu
valdið sovéskum þegnum
ómældri armæðu og út-
gjöldum. Þeir kumpánar
kynntust í listaskóla í Sovét-
ríkjunum og hófu fljótlega
þá iðju sína að mála gegn
sósíal-realismanum — sem
Stalín skóp. Moskvuborg
varð fyrir miklum óþarfa út-
gjöldum þegar jafna þurfti
sýningu K & M við jörðu
með jarðýtum, óleyfilega
sýningu í skemmtigarði.
Auðvitað settust þeir að í
háborg auðvaldsins og
heimsvaldastefnunnar, New
York, og mala nú gull með
því að mála óhróður um
hinn mikla föður Stalín.
Sýningar þeirra eru fjölsótt-
ar og stærstu söfnin hafa
keypt myndir þeirra —
dæmigert auðvaldsdekur
við léiega listamenn, allt til
að klekkja á sósíalismanum
— maður spyr ekki að þvíl
Við birtum hér nokkur
sýnishorn af þessum hroða,
öðrum til varnaðar, og
munið að sá sem hlær, hlær
síðast í Síberíu!
I