Vikan - 18.07.1985, Page 9
13 ÍNÆSTUVIKU: L5
Lífsreynsla — Hommar
Á hvaö mundi maður giska ef það stæði Guðni Baldursson og
Helgi Magnússon á dyraspjaldinu? Hálfbræður sem búa saman?
Háskólastúdentar utan af landi sem hafa leigt sér íbúð þar sem
þeir læra og leika sér?
Eða: Hommar sem þora að koma fram undir nafni?
Það er lóðið. Helgi og Guðni eru hommar sem hafa búið saman í
sex ár. Frá þeim verður sagt í næstu VIKU undir fyrirsögninni:
Látum köttinn nægja.
Óttastu samkeppnina, Markús Örn?
Markús örn Antonsson hefur verið útvarpsstjóri frá síðustu ára-
mótum. Hvernig skyldu móttökurnar hafa verið? j júní síðast-
liðnum samþykkti Alþingi ný útvarpslög sem afnema einkarétt
Ríkisútvarpsins um næstu áramót. Skyldi þessi eign allra lands-
manna veslast upp og deyja í samkeppninni?
Þetta er meðal þess sem ber á góma í viðtali við útvarpsstjóra í
næstu VIKU.
Skemmtilegra — ódýrara — frumlegra
Heimasaumur hefur færst í vöxt að undanförnu. Við fjöllum um
hann á tískusíðum og þrjár konur, sem hafa saumað á sig sjálfar,
sýna klæðnaðinn, segja frá reynslu sinni í heimasaumi, hvar þær
fengu efnið og hvað það kostaði að sauma á sig.
Auk þess má nefna: úttekt í léttum dúr á því hvað Kanar gera
á degi hverjum (tíu fara til dæmis til læknis vegna ofneyslu víta-
mína), bleikt hús í dálkinum Byggt og búið — bílaprófun
Vikunnar á Citroén Axel — trúða úr trölladeigi í handavinnu —
spurningaleik sem segir þér hvernig þinn innri maður kemur fram
í handtöskunni — Go West á framabraut í poppi — Videó-
Vikuna — Willy Breinholst — krossgátu og fleira.
Trúlofunarhringar 14 og 18 karata
*
Skartgripir í úrvali
*
Fljót afgreiðsla
*
Við smíðum, þér veljið
Myndbœklingar með trúlofunar-
hringum. — Póstsendum
JÓHANNES LEIFSSON
GULLSMIÐUR
LAUGAVEGI 30
SÍM119209
29. tbl. Vikan 9