Vikan - 17.10.1985, Síða 27
1
Byggt & búið Byggt & búið__Byggt & búið Byggt & búið Byggt & búið
5 iJ!l' l-ll
I
Litast um á Hjónagörðum
Texti: Guðrún
A
^^jlir hafa gaman af að sjá hvernig aðrir búa, líka þeir sem segj-
ast ekkert hafa gaman af því. Sumum finnst gaman að spá í
gömlu, nýuppgerðu húsin, aðrir — og þá kannski sérstaklega þeir
sem eru í þyggingarhugleiðingum — hella sér yfir blöð og greinar
sem sýna fallega innréttuð híbýli og. . . láta sig dreyma í það
minnsta. En skyldu einhverjir hafa áhuga á að sjá hvernig stúdent-
ar á garði búa um sig...? Kannski þeir sem teljast til fjögurra
manna fjölskyldu og þurfa að koma innbúinu fyrir í lítilli 42ja fer-
metra, tveggja herbergja íbúð. ,,Maður gæti tekið próf í skipulags-
fræðum eftir að hafa búið á garði," sagði einn íbúa Hjónagarð-
anna við Suðurgötu i Reykjavík þegar Byggt og búið leit þar inn á
dögunum. Við fengum garðprófast, Óskar Reykdalsson, til að
leiða okkur um húsakynnin og líta inn til nokkurra íbúa. Og ef
einhverjir skyldu ekki átta sig á hvers konar prófastur garðprófast-
ur er þá er hann, auk þess að vera stúdent í Háskóla íslands og
íbúi á garði, tengiliður milli íbúa og eigenda hússins sem er Félags-
stofnun stúdenta.
Félagsstofnun stúdenta á og rekur Hjónagarðana. Þeir voru
Ljósmyndir: RagnarTh.
byggðir á árunum 1972—1974. Húsið var tekið í notkun árið 1974
en var í raun ekki fullbyggt fyrr en árið 1984. Húsið var að nokkru
leyti byggt fyrir gjafafé sem safnaðist til minningar um fyrrverandi
ráðherra, Bjarna Benediktsson, konu hans, Sigríði Björnsdóttur,
og dótturson þeirra, Benedikt Vilmundarson, sem fórust í hörmu-
legu slysi um svipað leyti og hafist var handa um byggingu húss-
ins.
íbúar hússins eru allir stúdentar við Háskóla íslands og fjöl-
skyldur þeirra. Íbúðum er úthlutað til stúdenta samkvæmt sér-
stökum úthlutunarreglum sem taka mið af námsframvindu, barna-
fjölda og fleiri atriðum sem máli skipta. Á Hjónagörðunum eru 55
íbúðir, flestar tveggja herbergja. Ein íbúð í húsinu er sérstaklega
innréttuð fyrir fatlaða. Tuttugu íbúðir hússins eru ætlaðar
einstæðum foreldrum. Það eru því margir um hituna og eins gott
að Félagsstofnun áformar nú byggingu nýrra Hjónagarða, en um
þessar mundir stendur yfir samkeppni um teikningu 150 íbúða og
verður væntanlega hafist handa um byggingu þeirra á næsta ári.
42. tbl. Vikan 27