Vikan - 17.10.1985, Side 42
VINSÆUR LEIKARAR:
STACY KEACH
Leikarinn Stacy Keach er tslendingum aö
góðu kunnur eftir leik sinn í framhaldsþátt-
unum Mistrals Daughter Og Princess Daisy.
Ferill þessa leikara hefur veriö nokkuð sér-
stæöur gegnum tíðina. Um hann hefur verið
sagt að hann sé „besti bandaríski Hamletinn
eftir John Barrymore” og að hann sé hinn
„nýi Brando” á sjöunda áratugnum, en hann
hefur einnig átt það til að leika í dellum eins
og marijúanadraumum Cheech og Chong og
frumraun Piu Zadoru, The Butterfly. Um
síðarnefndu myndina segir hann sjálfur að
hann hafi einungis tekið að sér hlutverkið
vegna senunnar þar sem hann baðar Piu.
Stacy Keach fæddist 1941, sonur leikara-
hjóna. Hann ólst upp í Savannah í Georgíu.
Ferill föður hans flutti f jölskylduna til Atlanta
í nokkur ár og síðan til Los Angeles.
„Umræðuefnið á heimili mínu var ávallt
leikur og leikarar. Jafnvel þótt foreldrar
mínir réðu frá því voru fyrstu hugsanir mínar
þær að gerast leikari,” segir hann.
Hann hugleiddi málið þau fjögur ár sem
hann stundaði nám við Kaliforníuháskóla, í
hagfræði, leikandi á sumrum í farandleikhús-
um, og innritaðist síöan í Yale leikskólann.
Eftir eins árs framhaldsnám í London kom
hann til New York og fékk aðalhlutverk í
Hamlet, 26 ára gamall. Hann sló í gegn, var
lýst sem besta Hamletleikara Bandaríkjanna
síðan John Barrymore fór með þetta vanda-
sama hlutverk.
Það var ekki fyrr en 1968 sem Keach lék í
sínum fyrstu kvikmyndum. Fimm fyrstu
myndunum hans er best að gleyma í hvelli, en
í þeirri sjöttu, Fat City, þar sem hann lék af-
dankaðan hnefaleikara á hraðleið í rennu-
steininn, vann hann til verðlauna á Cannes
1971.
I kjölfar Fat city komu hlutverkin í röðum í
myndum á borð VÍð The New Centurians Og
The Life and Times of Judge Roy Bean.
Um miðjan áttunda áratuginn hverfur
Keach af sjónarsviðinu. Hann eyddi fjórum
árum með söngkonunni Judy Collins, að
semja söngva, læra píanó- og gítarleik og
dreymdi um að verða rokkstjarna.
Árið 1980 skrifaði hann, ásamt James
bróður sínum, handritið aö myndinni The
Long Riders, sögu útlaganna Frank og Jesse
James. Þeir bræöur léku aöalhlutverkin í
myndinni en Stacy var framleiðandi hennar.
Þeir fengu aðra bræður til að leika hina
bræðurna í myndinni; Randy og Dennis Quaid
léku Millers-bræöurna, Keith, Robert og
Slys eða manndráp?
★ ★
Feigðarakstur (One For The Road — Licence To Kill).
Leikstjóri: Jud Taylor.
Aðalleikarar: James Farentino, Don Murray og Millie Perkins.
Sýningartimi: 120minútur.
Þau eru ábyggilega óteljandi, slys-
in í umferðinni sem hafa orðið vegna
þess að bílstjóri er ölvaður. Alvar-
legust eru þau slys sem orsaka
dauða saklauss fórnarlamþs. Um
þetta fjallar Feigðarakstur. Skal sá
er valdur er að dauða verða dæmdur
fyrir manndráp eða skal atburðurinn
dæmdur sem slys?
Lynne Peterson er ung og efnileg
stúlka. Dag einn er hún á leið til vina
sinna. Ölvaöur ökumaður, Fiske,
verður henni aö bana þegar hann
ekur í veg fyrir hana. Fiske lítur á
þennan atburð sem slys og telur
sjálfum sér trú um að hann hafi ekki
drukkiö neitt sem sköpum skipti,
þótt eiginkona hans viti að hann á við
drykkjuvandamál aö stríða.
Peterson, faöir fórnarlambsins,
telur aftur á móti að um manndráp
sé að ræða og vill með málið fyrir
dómstóla. Þar þvælist málið dágóðan
tíma og ekkert skeður. Lögfræðingar
þrasa um lítilsverð atriði, eingöngu
til að skapa sér tíma. Eftir mikiö
málþóf kveöur dómarinn upp þann
úrskurð að um manndráp sé að ræða
og kemur engum á óvart. En staö-
reyndin er að þessi málalok eru und-
antekning og oftast sleppur sá sem
valdur er að skaðanum.
Feigðarakstur er þrátt fyrir nokk-
ur melódramatísk atriði góð áminn-
ing fyrir alla bílstjóra og staðreyndin
er aö sá sem drukkið hefur á ekki aö
setjast undir stýri.
Aðalleikararnir, James Farentino
og Don Murray, fara virkilega vel
með hlutverk sín, tvær persónur í
harmleik sem eiga erfitt meö að
sætta sig við orðinn hlut. Feigðar-
akstur er upprunalega gerð fyrir
sjónvarp og þrátt fyrir að hægt sé að
fá hana á videóleigum ætti hún vel
heima á dagskrá íslenska sjónvarps-
ins, mörgum til viðvörunar.
Getur blóm vitnað um morð?
★
The Kirlian Witness.
Leikstjóri: Jonathan Sarno.
Aðalleikarar: Nancy Snyder, Joel Colodner og Ted Leplat.
Sýningartimi: 90 mínútur.
Þaö versta við The Kirlian Witness
er að á köflum lítur svo út sem al-
gjörir byrjendur hafi staöiö aö gerö
myndarinnar. Eyðileggur þaö nokk-
uð fyrir annars sæmilega spennandi
söguþræöi.
Myndin fjallar um Laurie sem í
byrjun myndar er hamingjusamlega
gift og einu áhyggjur sem hún hefur
eru af systur sinni. Systirin, sem á
blómabúð, hefur aftur á móti meiri
áhuga á ræktun blómanna en að selja
bau. Hún
ÍSLENSKUR TEXTl
Mancy Snyder TM LapM
þeirra og þar fram eftir götunum.
Kvöld eitt, þegar Laurie kemur að
heimsækja systur sína, kemur hún
að henni myrtri og við hliö hennar
stendur uppáhaldsblómið.
Lögreglan finnur ekki út hver hafi
framiö morðið og hallast helst að því
að þarna hafi veriö um slys að ræða.
Laurie trúir því ekki og byrjar sjálf
aö rannsaka morðiö. Um leið fer hún
að fá óþarflega mikinn áhuga á
blómum, að dómi manns hennar. Og
satt er það, Laurie fer að trúa því aö
blómið, sem fannst við hhð systur
hennar, geti bent á hver sé morðing-
inn.
Laurie verður dularfyllri með
hverjum degi og fjarlægist mann
sinn meir og meir enda sýnir blómið
greinileg viöbrögö þegar maður
hennar nálgast það. Það sýnir einnig
viðþrögð þegar einn dularfullur vin-
ur systur hennar er nálægt því. Hvor
þeirra er morðingi systur hennar?
Það kemur í ljós en óþarfi er að eyði-
leggja fyrir væntanlegum áhorfend-
um með því að ljóstra því upp.
Eins og fyrr sagði er það aðallega
öll tæknivinna sem eyðileggur The
Kirlian Witness. Kvikmyndun og lýs-
ing er mjög slæm. Þrátt fyrir það örl-
ar á köflum á spennu og í heild er
hugmyndin nokkuð sniðug.
42 Vikati 42. tbl.