Vikan

Tölublað

Vikan - 10.04.1986, Blaðsíða 16

Vikan - 10.04.1986, Blaðsíða 16
LÆKNISVITJUN Hér á síðunni birtast svör læknanna Gests Þorgeirssonar, Helga Kristbjarnarsonar, Jóhanns Ágústs Sigurðssonar, Leifs Bárðarsonar, Óttars Guðmundssonar og Sigurðar Guðmundssonar við spurningum lesenda og mun þetta verða reglulegur þáttur hér á síðum Vikunnar á næstu mánuð- um. Við bjóðum lesendum bæði að senda bréf með vandamálum sínum og hringja. Hringja má á þriðjudags- og miðvikudagsmorgnum frá níu til tólf. Bréfín, sem við fáum, verða að vera stutt, skýr og málefnaleg. Við birtum þau gjarnan undir dulnefni en nafn og heimilisfang verður að fylgja. Utanáskriftin er: Læknisvitjun Vikan Frjáls Qölmiðlun hf. Pósthólf 5380 125 Reykjavík ALKÓHÓLISMI SPURNING: Ég er 22 ára gömul stúlka, nýtrúlofuð og á barn í vænd- um. Unnusti minn hefur ávallt drukk- ið mikið en þó ekki meira en margir í okkar vinahópi. Um síðustu helgi drakk hann mjög mikið, var tekinn ölvaður við akstur og lenti í átökum við lögreglu. Hann er mjög sleginn yfir þessu og segist sennilega vera alkóhólisti og vill leita sér meðferðar. Hversu mikið þarf maður að drekka til að vera álitinn alkóhólisti og þarf unnusti minn að leita sér meðferðar á þessu stígi? SVAR: Byrjunareinkenni alkóhól- isma eru ákaflega lúmsk og erfitt að gefa einhlít svör fyrir hvern einstak- an. Eitt megineinkenni alkóhólisma er þó stjórnleysið í sambandi við drykkju. Menn drekka meira og leng- ur en þeir ætla sér. enda oft i óminnisástandi (blackouti) og gera þá ýmislegt sem betur væri ógert. Ölvunarakstursbrot er alltaf alvarlegt einkenni um ákveðið stjórnleysi i sambandi við áfengisneyslu svo unnusti þinn er nú þegar kominn á hálan ís. Efhann vill leita sér aðstoð- ar og fara I meðferð skaltu frekar hvetja hann til þess en letja þar sem mikið er í húfi að vel takist til hjá ykkur. Þú ættir auk þess að leita þér upplýsinga um AI-Anon-samtökin. sem er félagsskapur fyrir aðstand- endur drykkjumanna. og sækja fundi hjá þeim þar sem slíkt mun auðvelda þér allan skilning á áfengisvanda- málinu. Hjá ráðgjafarstöð SÁÁ I Síðumúla 3~5 getur þú og unnusti þinn fengið allar nánari upplýsingar um þessimál. KVÍÐALYF SPURNING: Ég er 34ra ára gamall maður sem undanfarin ár hefur tekið diazepamtöflur, 5 mg, þrisvar á dag vegna taugaspennu. Eru þessartöfl- ur ávanabindandi, er einhver önnur hætta því samfara að taka þær reglu- lega? SVAR: Diazepam er lyf af flokki bensodiazepina en þau lyferu kviða- stillandi og róandi og hafa auk þess svæfandi verkun. Lyfin hafa engan lækningamátt gagnvart kvíða. spennu eða taugaveiklunareinkenn- um en geta haldið þeim í skefjum að einhverju leyti. Ef þessi lyf eru tekin i langan tíma myndast þol gagnvart þeim og auk þess veruleg fráhvarfseinkenni þegar töku er hætt. Lyfin eru ávanabindandi og það er oft miklum erfiðleikum háð að venja fólk afneyslu lyfjanna. jafn- velþótt í smærri skömmtum sé. Lyfið slævir viðbragðshraða og eftirtekt svo akstur og önnur nákvæmnis- vinna er varasöm meðan lyfið er tekið. Sjúklingar. sem taka þessi lyf að staðaldri. kvarta oft undan sljó- leika. minnistruflunum og þreytu. Það ér varasamt fyrir þig að taka lyf eins og diazepam í lengri tima og þess vegna ættir þú i samráði við lækni að hætta þessari neyslu eins fljótt og auðið er og reyna að slaka á spennunnr og minnka kvíðann með öðrum ráðum og hættuminni. GETULEYSI SPURNING: Er getuleysi hjá körlum alltaf af sálrænum ástæðum? SVAR: Nei, þótt almennt sé álitið að getuleysi sé oftast af sálrænum uppruna þá hafa læknar á seinni árum verið að uppgötva að hjá tölu- vert stórum hluta manna, sem eiga við getuleysi að stríða. eru líkamlegar orsakir fyrir þessu. Vel þekkt er að sykursýki og sumir taugasjúkdómar leiða stundum til getuleysis. einnig æðakölkun og vissir æðasjúkdómar. Einfaldasta leiðin til að rannsaka hvort getuleysi er af líkamlegum eða andlegum orsökum er að athuga hvort menn fá draumstinning þegar þeir sofa. Ef svo er er oftast um sál- rænar ástæður fyrir getuleysi að ræða. Þetta eina atriði er þó ekki einhlítur mælikvarði á getuleysi. Til að meta orsakirnar á viðhlítandi hátt þarfað rannsaka starfsemi ósjálfráða taugakerfisins. stjórnun á æðaslætti, mæla blóðstreymi með hljóðbylgj- um. taka röntgenmyndir og gera fullkomna svefnrannsókn. Getuleysi er sjúkdómur sem menn virðast veigra sér mjög við að leita til læknis með og við athugun hefur sýnt sig að þeir sem leita til læknis með þetta vandamál hafa að meðal- tali átt við það að striða i 6 ár áður en þeir leita sér hjálpar. Hér á landi eru það sérfræðingar i þvagfærasjúk- dómum og geðlæknar sem fást við þessi vandamál. Meðferðin fer að sjálfsögðu eftirþví hver orsökin reyn- ist. Stundum nægir að hætta reykingum eða áfengisnotkun. stundum er beitt lyfjameðferð. Þegar æðar eru stiflaðar er sums staðar erlendis beitt æðaskurðaðgerðum. svipuðum þeim sem beitt er við kransæðaþrengsl í hjarta. Loks eru i einstaka tilfellum gerðar skurðað- gerðir þar sem sett er hjálpartæki i getnaðarliminn sem gerir samfarir mögulegar. Allar þessar aðgerðir eru þó þess eðlis að þeim er aðeins beitt eftir að nákvæm niðurstaða um or- sakir liggur fyrir og alltafer nauðsyn- legt að gera mjög gaumgæfilega geðrannsókn til að útiloka geðrænar orsakir. 16 VIKAN 15. TBL,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.