Vikan

Eksemplar

Vikan - 10.04.1986, Side 34

Vikan - 10.04.1986, Side 34
MYNDIR OG TEXTI: EINAR GARIBALDI KARLA KLÚBBUR Það var á fimmtudegi, ekkert sjónvarp og frúrnar búnar að ákveða að halda saumaklúbb. Þær tóku sig þvi til og hentu körlunum sínum lyklalausum út á kaldar útidyratröppurnar. Nú, einu og hálfu ári síðar, hefur þetta litla dæmi snúist nær algerlega við nema hvað ekki þarf að reka frúrnar á dyr, þær hreinlega flýja af sjálfsdáðum því þetta er hinn dæmigerði karla- klúbbur. Þeir hittast öll imba- kassalausu kvöldin til þess að tefla hraðskák og í hléum á milli umferða, sérstaklega þó þessar síðustu eggjaútsöluvikur, hafa þeir raðað í sig hreint ótrúlegu magni af pönnukökum. Húsmóð- irin á heimilinu hefur bakað þær með það loforð upp á vasann að henni verði hleypt út um leið og fyrsta skeggrótin mætir á svæð- ið, enda kemst ekkert annað að en bílar, tölvur og fótbolti. Eins og belja að vori, frelsinu fegin, reykspólar frúin því glaðlega út úr bílskúrnum. Píputóbaksmettað andrúms- loftið er spennu þrungið þegar raðað er upp fyrir síðustu um- ferðina. Klukkan er sett af stað og hafa þeir fimm mínútur hvor. í upphafi fara þeir sér hægt enda tveir jafnir og efstir. Þetta verður úrslitaskák. Klukkan tifar og roði færist í kinnarnar, fallvísir- inn reiðir lúshægt og markvisst til höggs, svitinn sprettur fram undan uppbrettum ermunum. Það er farið að halla heldur betur á svarta hershöfðingjann og dregur hann því þungan hæg- indastólinn nær vígvellinum um leið og hann strýkur ráðleysis- lega yfir ennið. Það er ekki laust við að sé farið að grilla í sigur- glampa í augum hvíta liðsstjór- ans. Skyndilega slokknar þessi glampi. Há og mikil uppgjafar- stuna hans fyllir stofuna en frá andstæðingi hans í horninu hijómar skært sigurtíst. Hann hafði drepið kóng hvíts og unnið óvænt með sína glötuðu stöðu. Allt búið og ekki annað eftir en að þakka fyrir sig og óska húsbónda til hamingju með hve vel hafi tekist til með pönnukök- urnar í kvöld, veriði sæl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.