Vikan - 16.04.1987, Síða 6
WiUiamHurt
Frumlegur og flókiim
Hann er ein af nýju stjörnunum í
Ameríkunni. Þó hefur hann ekkert
dæmigert kvikmyndastjörnuútlit (eins
og æskilegt þykir), þessi fremur stór-
skorni, ljóshærði maður með horn-
spangargleraugun, sem sumum finnst
vera eins og hver annar Lalli á Lauga-
veginum. En William Hurt hefur samt
slegið í gegn. Hann þykir mjög góður
leikari og hefur þegar fengið hin eftir-
sóttu óskarsverðlaun (fyrir Kiss of the
Spider Woman). Sjálfum finnst honum
hann ekkert óskaplega góður leikari
og segist vilja sjá framan í þann sem
vogaði sér að segja hann jafngóðan og
til dæmis Meryl Streep og Robert
Duvall. Fyrstu viðbrögð hans við
óskarsverðlaunaútnefningunni voru að
fara ekki á afhendingarhátíðina. Hon-
um fannst rangt að láta leikara keppa
svona innbyrðis. En leikstjórinn Steven
Spielberg talaði um fyrir honum,
„ .. .hvernig hann leyfði sér að hunsa
það ef fólk vildi heiðra hann fyrir leik
sinn.“ Loks tók hann við verðlaunun-
um, hrærður og þakklátur og sagðist
deila þeim með mótleikara sínum í
myndinni, Raul Julia.
Samt sem áður er Hurt ekkert sann-
færður um hæfileika sína. Hann
viðurkennir ýmsa góða kosti sem hann
hefur sem leikari og ber djúpa virðingu
fyrir leiklistinni, sem og mörgum koll-
ega sinna. En raunar finnst honum
mestur heiður felast í að fá útnefningu
fyrir aukahlutverk (supporting role,
sem má þýða sem stuðningshlutverk)
því ef leikarar eru ekki færir um að
veita hver öðrum stuðning í leik þá
vanti mikið.
William Hurt þykir dálítið sérkenni-
legur karakter. Hann er þekktur fyrir
frumlegt, flókið og háspekilegt ímynd-
William Hurt ásamt Kathleen Turner í Body
Heat.
unarafl en einmitt það hefur ósjaldan
ruglað þá blaðamenn í ríminu sem tek-
ið hafa við hann viðtöl. Hann er lítið
gefinn fyrir einföld svör enda sagði einn
blaðamaðurinn að hann talaði eins og
sá sem hefði rétt lokið við að reykja
sína fyrstu hasspípu. Er hann var til
dæmis spurður uin nektarsenurnar í
fyrstu mynd sinni, Altered States, sagði
hann: „Allar senur eru ástarsenur og
allar senur nektarsenur." Eitt aðal-
mottó hans er: „Ég trúi fremur á það
sem ég þekki ekki en það sem ég
þekki.“ Og ennfremur segir hann:
„Guð skapaði okkur ekki til að skilja
allt í lífinu, okkur ber að kanna hluti
og breyta, öðlast reynslu, taka áhættu
og - lifa.“
William Hurt, sem er þrjátíu og sex
ára gamall, lifði miklar sveifiur í æsku.
Fyrst bjó hann með foreldrum sínum
suður við Kyrrahaf en eftir skilnað
þeirra flutti hann með móður sinni í
litla íbúð á Manhattan í New York
og þaðan í tuttugu og tveggja her-
bergja íbúð, eftir að móðir hans giftist
auðugum syni stofnanda tímaritsins
Time. William stundaði guðfræðinám
í þrjú ár í hinum virta Tufts háskóla,
áður en hann settist í leiklistarskóla.
Astæðan fyrir að hann hætti i guð-
fræðinni var sú að „trúarbrögð boða
ekki lengur mannkærleik“. Hann giftist
ungri leikkonu, Mary Beth Hurt, en
það hjónaband stóð stutt. Og eftir tvö
ár í Juilliard leiklistarskólanum gafst
hann upp á hinum stranga aga og fór
að leita fyrir sér með hlutverk.
Það leið ekki á löngu áður en hann
sló í gegn og það í sinni fyrstu kvik-
mynd og síðan hefur hver leiksigurinn
rekið annan í þeim Ijórum myndum
sem á eftir komu. Jafnframt hefur hann
leikið töluvert á sviði og þótt standa
sig vel þar líka. Nú hefur hann lokið
við sína sjöttu mynd, Children of a
Lesser God, sem mun væntanlega sýnd
hér innan skamms. í þeirri mynd leikur
William heyrnleysingjakennara sem
verður ástfanginn af einum nemenda
sinna. Nemandann leikur Marlee
Matlin, en hún er raunverulega heyrn-
arlaus og hefur áður leikið hjá Þjóð-
leikhúsi heyrnarskertra, en þetta er
hennar fyrsta kvikmynd. Þau William
og Marlee hafa verið óaðskiljanleg síð-
an tökum lauk og segir hann að hún
sé sú kona sem hann hafi lengi beðið
eftir. Hann segir einnig að hún hafi
kennt sér einna mest, þrátt fyrir ungan
aldur (hún er aðeins tvítug), því hún
sé óvenju þroskuð manneskja. Hjóna-
band? „Það er aldrei að vita,“ segir
William Hurt.
6 VIKAN 16. TBL