Vikan - 16.04.1987, Síða 23
Mel Gibson leikur lögreglumann í
Lethal Weapon.
LETHAL
WEAPON
Vinsælasta kvikmyndin vestan-
hafs þessar vikurnar er Lethal
Weapon, sakamálamynd með
Mel Gibson í aðalhlutverki. Þær
niiklu vinsældir, sent Lethal
Weapon nýtur, sannfæra menn
enn einu sinni um að fyrrverandi
Víetnamhermenn sem aðalper-
sónur eru góð fjárfesting. Mel
Gibson leikur einmitt fyrrverandi
hermann sern gengið hefur til liðs
við lögregluna. Asamt svörtum
félaga sínum, sem Danny Glover
leikur og einnig er fyrrverandi
hermaður í Víetnam, tekur hann
að sér rannsókn á dularfullu
sjálfsmorði. Við rannsókn þessa
máls komast þeir að raun um að
Víetnam á enn sterk ítök í hugum
þeirra. Leikstjóri Lethal Weapon
er margreyndur spennuleikstjóri,
Richard Donner.
Myndbönd
YOUNG SHERLOCK HOLMES ★ ★ ★
Leikstjóri: Barry Levinson.
Aðalleikarar: Nicholas Rowe, Alan Cox og Anthony Higgins.
Sýningartími: 105 mín. - Utgefandi: Háskólabíó.
I sögum Arthurs Conan Doyle er Sherlock Holmes fullorðinn maður,
sérvitringur með einstaka gáfu. Æska hans er sjaldan eða aldrei til um-
ræðu. Það er því djarft spil hjá Steven Spielberg og félögum að ætla sér
að íjalla um skólaár þessarar mestu leynilögreglupersónu heims. En undir
öruggri stjórn Barry Levenson, sem á að baki ekki ómerkari myndir en
Diner og The Natural, hefur tekist að gera góða skemmtimynd þar sem
karaktereinkenni Holmes koma vel fram. Vinur hans, Watson, er einnig til
staðar og saman lenda þeir í ævintýrum sem sjálfur Doyle hefði getað ver-
ið hreykinn af að hafa samið. Young Sherlocíc Holmes nýtur þess fram
yfir aðrar Holmes myndir að tæknikunnátta nútímans er notuð til hins
ýtrasta. Y oung Sherlock Holmes er skemmtileg ævintýramynd, að vísu
misgóð en þegar best lætur er hún ekki síðri en fremstu ævintýramyndir.
STRONG MEDICINE ★ ★
Leikstjóri: Guy Green.
Aðalieikarar: Pamela Sue Martin, Dick van Dyke og Patrick Duffy.
Sýningartími: 240 mín. (2 spólur). - Útgefandi: Laugarásbíó.
I skáldsögum sínum tekur Arhur Hailey yfirleitt einhvern iðnað fyrir og
notar utan um baráttu um völd og persónuleg vandamál sögupersónanna.
I Strong Medicine er það lyfjaiðnaðurinn sem er umgjörðin. Fjallað er um
unga konu sem gerist sölumaður innan lyfjafyrirtækis. Með dugnaði og
útsjónarsemi vinnur hún sig upp í æðstu stöður innan fyrirtækisins. Ekki
eru allir ánægðir með störf hennar og verða margir til að öfunda hana.
Eins og vænta má er einkalíf hennar ekki dans á rósum og leið hennar til
hamingju er þyrnum stráð. Strong Medicine er dæmigerð formúlumynd.
Söguþráðurinn býður upp á spennu og ástríður. Myndin er gerð fyrir sjón-
varp og er einir fjórir tímar. Má sjá að stundum er teygður lopinn, en
yfirleitt er eitthvað um að vera svo fáum ætti að leiðast. Ekki sakar að
þekktir leikarar eru í helstu hlutverkum.
Metsolubókin eftir Arthur Hailev:
STERK LYF
HEAT ★ ★
Leikstjóri: Jerry Jameson.
Aðalleikari: Burt Reynolds.
Sýningartími: 88 mín. - Útgefandi: Háskólabíó.
Heat er dæmigerð Burt Reynolds mynd. Hann bætir hér einum töffaran-
um við. í þetta skiptið heitir hann Nick Escalante og starfar sem einkalögga
í Las Vegas. Hann dreymir um að komast einhvern tíma til Feneyja og
eyða þar lífinu í ró og næði. Þegar vinkonu hans er misþyrmt og nauðgað
ákveður hann þrátt fyrir aðvaranir að láta til skarar skríða gegn syni mafiu-
foringja sem áþyrgur er fyrir atburðinum. Hann tekur einnig að sér að
hjálpa reynslulausum fjárhættuspilara í frumskógi spilavítanna í Las Veg-
as. Sjálfur er hann fjárhættuspilari og eitt kvöld gengur honum allt í haginn,
en tapar öllu aftur. Heat er hin sæmilegasta afþreying en ekkert meira.
Burt Reynolds hefur því miður ekki hæfileika til að gera sér mat úr nokk-
uð vel skrifuðu hlutverki. Því verður leikur hans klisjukenndur eins og
oftast áður.
HERBIE RIDES AGAIN ★ ★
Leikstjóri: Robert Stevenson.
Aöalleikarar: Ken Berry, Helen Hayes og Stefanie Powers.
Sýningartími: 85 min. - Útgefandi: Bergvik.
Herbie Rides Again er önnur kvikmyndin af fjórum sem gerðar voru um
Volkswagen sem kallaðurer Herbie. Þessi Volkswagen erenginn venjuleg-
ur bíll. Hann tekur yfirleitt völdin af bílstjóranum ef honum sýnist svo,
hefur meiri kraft en aðrir bílar og ekki virðist skipta máli hvort hann þarf
að keyra lárétt, lóðrétt eða á hvolfi. Hann er hændur að eigendum sínum
og veður eld til að verja þá. í Herbie Rides Again á að fara að rífa niður
gamalt hús sem Herbie og eiganda hans er annt um. Sá sem það ætlar að
gera er Alzano Hawk, milljónamæringur og hinn versti fantur. Hann beitir
brögðum til að koma sínu fram en Herbie sér við honum og viðskiptum
þeirra getur ekki lyktað nema á einn veg. Herbie Rides Again er létt gaman-
mynd fyrir alla og best er að njóta gamansins án þess að láta söguþráðinn
trufla sig.
liert)*e
Rides
Again
16. TBL VIKAN 23