Vikan


Vikan - 16.04.1987, Side 55

Vikan - 16.04.1987, Side 55
„Mér þykir þetta leiðinlegt.“ sagði Pétur. Hún faðmaði hann þétt að sér. „Stóri-Pési er ekki þorpari,1' hvíslaði hún. „Hann er góður og hann gerir það sem er rétt. Ég hef klúðrað öllu.“ Þegar hún hætti að gráta sagði hún: „Við skulum bæta úr þessu, er það ekki, Litli-Pési?“ „Jú, mamma?“ „Ekki segja neinum að ég hafi grát- ið,“ sagði hún. „Má ég fara út að leika mér?“ „Nei. Þú eyðileggur skóna þína. Leiktu þér niðri.“ Pétur fór afturábak niður stigann, hoppandi. Eitt þrep í einu. Hann varð að komast að þessu með Stóra-Pésa. Afi hafði sagt: „Ég skal segja þér allt sem þú vilt vita.“ Hann vissi áreiðanlega þetta með Stóra- Pésa. Pétur vissi að hann var að gera eitthvað slæmt og að hann myndi verða flengdur. Hann fór í yfir- höfnina sína, setti á sig húfuna og smeygði sér hljóðlega út um aðal- dyrnar. Uti var vindurinn hressandi. Það var góð lykt af öllu. Hann gekk yfir klofna stilka, maís- uppskeru síðasta árs. Hann gekk niður grófina svo þau gætu ekki séð hann frá húsinu. Hann hljóp eftir stígnum, meðfram læknum og upp hæðina, að hlöðunni. Hlaðan var notuð fyrir geymslu núna. Það eina sem var þar var maís fyrir hænurn- ar, auk nokkurra hluta sem voru spennandi minnisvarðar þess tíma sem afi var með hesta. Beisli, gamlir leðurstjórntaumar, margslitinn hnakkur og hræ af eineykisvagni. Afi hafði glatað öllu, sagði fólkið. Hann hafði glatað stóra búgarðin- um sínum, einhvern veginn. Allt sem hann átti eftir var býli uppi í sveit, sem var rekið af leiguliða. Amma sagði að það væri refsing Guðs fyrir illsku afa. Pétur nam staðar og mjakaði sér upp að eplatré. Afi var að horfa á hann og hafði gert það allan tímann sem hann var á leiðinni. „Heyrðu, drengur!“ öskraði gamli maðurinn. „Ég er ekki hræddur við þig,“ sagði Pétur skjálfandi. „Gott!“ hrópaði gamli maðurinn. Hann strauk eldspýtu eftir bakhlut- anum á buxunum sínum og saug pípuna sína áfergjulega. Hann starði á Pétur. „Þau hýða þig, drengur,“ sagði hann. „Sjáðu skóna þína.“ Pétur mátti ekki mæla. Hann lang- aði til að hlaupa aftur inn í húsið en djöfullinn gat hlaupið hraðar en nokkuð annað. „Ætlaðirðu að spyrja mig að ein- hverju? sagði afi. „Komstu þess vegna?“ Pétur kinkaði kolli og mjakaði sér lengra bak við tréð. „Afram!“ Pétur gat ekki talað langa stund. Þetta var of mikið. Hann gat það baraekki. Og þegar hann loksins kom því út úr sér heyrði afi hans ekki hvað hann sagði. „Talaðu hærra, piltur!“ „Er Stóri-Pési dáinn?“ Afi hnussaði. „Nei, hann er ekki dáinn. Stóri-Pési lifir þangað til hann verður hundrað ára, nema ein- hverskjóti hann.“ Pétur gægðist fram undan trénu. „Fæ ég að sjá hann aftur?“ „Já.“ Afi kom skrefi nær og Pétur skalf. En hann stóð kyrr og horfði á hönd- ina með bláu æðunum sem stóðu upp úr henni. Hann stóð kyrr meðan höndin snerti höfuð hans. „Þau hafa alveg ruglað þig, dreng- ur,“ sagði afi. „Hafðu ekki áhyggjur. Og þú skalt ekki vera hræddur við neitt.“ Stóra höndin neri hnakkann á Pétri og Pétur var hræddur. Þetta var hönd djöfulsins. „Amma þín er gömul, drengur,“ sagði gamli maðurinn. „Þegar þú stækkar munt þú skilja. Ekki hata hana, drengur minn. Hún hefur gleymt mörgu sem hún eitt sinn vissi.“ Pétur skildi ekki. Hné hans skulfu. „Það er best að þú farir til baka núna,“ sagði afi. „Farðu og taktu við barsmíðunum og farðu í kirkju.“ „Ég vil ekki fara í kirkju,“ sagði Pétur. „Þú verður að fara, drengur.“ „Hvers vegna?“ „Það eru margar ástæður fyrir því. Það verða allir að fara í kirkju. Auk þess verður Stóri-Pési í kirkj- unniídag.“ „Er það alveg satt?“ „Já, ég hringdi í Stóra-Pésa í gær- kvöldi. Hann ætlar að taka þig og mömmu þína aftur heim og í þetta sinn ætla ég að sjá til þess að gamla konan skipti sér ekki af ykkur.“ Afi sló öskuna úr pípunni. „Dragðu inn vörina,drengur. Þú ferð ekki að gráta.“ „Afi.. „Já.“ „Ert þú nokkuð. . .djöfullinn? „ O nei.“ Afi brosti. „Sjáðu til, Pétur,“ sagði hann. „Þar sem þú ert alinn upp af konum hefur þú fengið dálítið einkennilegar hugmyndir um muninn á karlmanni og djöfli. Nei, ég er ekki djöfull, ég er ekki kona - heldur. Ég er karlmaður.“ Hann var mjög hátíðlegur í tali. „ Og það ert þú líka, Pétur.“ „Ætlar þú í kirkjuna með okkur í dag?“ spurði drengurinn. „Það eru páskar.“ Afi settist á hækjur sér á þvölu, dauðu laufblöðunum. Hann rakaði þau með hnýttum fingrunum þar til hann hafði fundið viðkvæma fjólu sem var nýrisin úr jörðu. „Já, það eru páskar,“ sagði afi. „Blóm eins og þetta er loforð jarðar- innar. Það kemur hvert vor, Pétur. Upprisa lífsins frá dauðanum.“ Gamli maðurinn tók upp handfylli af brúnum laufum og dreifði í svölu, röku loftinu. „Þú þarft ekki að fara í kirkju, Pétur, til að vera í henni. Kirkja manns á að vera alls staðar.“ Það var þá sem Pétur gerði sér ljóst að það var ákafi í gamla manninum en ekki illska. Og í fyrsta skipti skildi hann muninn. Ákafi afa hans var staðfastur, sterkur kraftur manns sem átti jörðina og himininn sem kirkju. 16. TBL VIKAN 55

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.