Vikan - 18.06.1987, Side 10
NAFN VIKUNNAR: MARTA SIGURÐARDÓTTIR
Njótum sömu virðingar
Marta Sigurðardóttir er fyrsta konan sem
gegnt hefur starfi landsforseta JC íslands.
Marta er þrjátíu og fimm ára og ógift, enda
væri sennilega illmögulegt að gegna jafnviða-
miklu tómstundastarfi ásamt fullu starfi ef
fjölskylda biði heima. Á landsþingi JC, sem
haldið var á Selfossi á dögunum, lét Marta
af forsetaembættinu. Af því tilefni völdum við
hana sem nafn Vikunnar. Við ræddum við
Mörtu um starf hennar innan JC-hreyfmgar-
innar og hinar ýmsu hliðar félagsskapar-
ins.
Við byrjuðum samtalið með því að spyrja
hversu lengi JC-hreyfingin hefði starfað.
„íslenska JC-hreyfingin hefur starfað i tutt-
ugu og sex ár en upphaflega er hreyfingin
komin frá Bandaríkjunum. Þar var hún stofn-
uð árið 1915. í Bandaríkjunum hefur JC því
starfað í sjötíu og tvö ár.“
- Nú ert þú fyrsta konan sem gegnir emb-
ætti forseta JC íslands í tuttugu og sex ára
sögu félagsins. Hver er skýringin á þessu?
„Það eru ekki nema tíu ár síðan konum var
gefinn kostur á að starfa í hreyfingunni. Allan
þennan tíma höfum við stöðugt verið að vinna
á. Nú erum við íslensku konurnar orðnar um
fjörutíu prósent meðlima hreyfingarinnar. Við
erum á allan hátt fullgildir meðlimir og njótum
sömu virðingar og karlarnir. En þó við ís-
lensku konurnar stöndum jafnfætis körlunum
er þessu ekki svo farið í öllum löndum þar
sem JC starfar. Til dæmis get ég nefnt Japan
en þangað fór ég í nóvember síðastliðnum til
að vera viðstödd heimsþingið sem þar var
haldið. Þar eiga konur mjög erfitt uppdráttar
innan hreyfingarinnar eins og á öðrum sviðum
þjóðlífsins. Eins og margir vita hafa konur
mjög lága þjóðfélagsstöðu í Japan. Japanarn-
ir leggja mikla áherslu á viðskiptatengsl innan
hreyfmgarinnar. Ef meðlimirnir vilja ná langt
í félaginu þurfa þeir að hafa mjög háa þjóð-
félagsstöðu og þá er sérstaklega gott að vera
hátt settur í viðskiptalífinu. Best er að vera
atvinnurekandi eða yfirmaður í fyrirtæki.
Konur í Japan ná yfirleitt ekki svo hátt upp
í þjóðfélagsstigann.“
- Þetta leiðir hugann að því hvað þú starf-
ar, Jvlarta?
„Ég er menntuð sem fóstra og starfa sem
forstöðumaður á dagheimilinu við Klepps-
spítala.“
- Hvernig gengur að sameina starfið og
forsetastöðuna?
- Það er frekar erfitt að sameina þessi tvö
störf. Ég hef verið mjög upptekin vegna for-
setaembættisins hjá JC. Én ég hefði aldrei
boðið mig fram.í þessa stöðu nema með sam-
þykki yfirmanna minna, það fékk ég áður en
ég bauð mig fram. Samstarfsmenn mínir á
dagheimilinu hafa allir verið mér mjög velvilj-
aðir. Álagið verður náttúrlega miklu meira á
þeim en ég er mikið fjarverandi. Til dæmis
hef ég sex sinnum þurft að fara utan á þessu
starfsári mínu hjá JC og ég hef farið í fjöl-
margar ferðir innanlands.“
- Telurðu að starf þitt sem forseti hafi
breytt stöðu kvenna innan félagsins?
„Nei, það held ég ekki. Konurnar hafa bara
unnið á innan félagsins með tímanum.“
- Þú sagðir áðan að þú hefðir farið til Jap-
an á heimsþing JC. Segðu mér svolítið frá þvi.
„Heimsþing er haldið árlega. Það er gert
vegna þess að það er regla hjá okkur í JC að
skipta um allar stjórnir einu sinni á ári. Engin
stjórn getur setið lengur en í eitt ár. Helsta
markmið þessara heimsþinga er að gera sam-
eiginlegar áætlanir fyrir hreyfmguna um allan
heim. A þessu heimsþingi var samþykkt kjör-
orð hreyfingarinnar fyrir næstu ár: „JC -
ungt fólk fyrir heimsfrið." Við í íslensku hreyf-
ingunni höfum ekki verið nógu dugleg að
vinna að heimsverkefninu. En nú stendur til
að bæta úr þessu. Annars gerðist nú fleira á
þessu þingi sem við íslenska JC-fólkið erum
hreykin af. Einn félagsmanna okkar, Árni Þór
Árnason, bauð sig fram til embættis alþjóð-
legs varaforseta. Árni náði kjöri og situr því
í heimsstjórn núna.
Mig langar líka að minnast á annan Islend-
ing sem mikið hefur starfað á alþjóðavettvangi
fyrir JC undanfarið. Hann heitir Jón Ög-
mundsson og er lögfræðingur. Jón starfar fyrir
heimshreyfinguna í höfuðstöðvum JC Intern-
ational i Bandaríkjunum.
Það voru ekki ýkja margir íslendingar sem
komu á heimsþingið í fyrra, við vorum um
það bil tíu. En þessi tala er ekki lág þegar
miðað er við hversu langt og mikið ferðalag
er til Japan. Næsta heimsþing verður haldið
í Amsterdam í nóvember næstkomandi. Mik-
ill áhugi er hjá íslensku félögunum að mæta
á þetta þing. Amsterdam er tiltölulega nálægt
okkur þannig að miklu fleiri komast þangað
heldur en til Japan.“
- Þú sagðir áðan að íslenska hreyfingin
hefði ekki verið nógu dugleg að vinna að kjör-
orði heimshreyfingarinnar. Er lítið samstarf
þarna á milli?
„Nei, það er mikið samstarf við alþjóða-
hreyfinguna. Til dæmis kom einn alþjóðavara-
forsetinn á landsþingið á Selfossi. Hann heitir
Cherif Lachenani og er frá Túnis. Þessi mað-
ur hefur þann starfa að fylgjast með starfi JC
á íslandi og í fleiri löndum. Alþjóðavarafor-
setarnir skipta löndunum með sér og hver og
einn hefur ákveðin lönd til að fylgjast með.
Árni Þór Árnason, íslenski varaforsetinn, hef-
ur á sama hátt viss lönd til að fylgjast með.
Hann hefur nú umsjón með tíu löndum í
Evrópu.“
- Hvert er markmið JC íslands?
„Markmiðið hefur til þessa eingöngu verið
að byggja upp einstaklinginn. Við leggjum
áherslu á að þjálfa einstaklingana í ræðu-
mennsku, við kennum þeim fundarsköp og
við þjálfum þá í að vera í forsvari fyrir aðra
þannig að þeir geti orðið leiðtogar. Einnig
vinnum við að byggðarlagsverkefnum, því
eitt af markmiðum okkar er að bæta eigin
byggðarlag. En eins og ég sagði áðan er í bí-
gerð að fara að vinna meira að markmiðum
alþjóðahreyfingarinnar þannig að á næstu
árum munum við einnig vinna að heimsfriðn-
um.“
- Hver tók við embætti forseta JC Islands
eftir að þú hættir?
„Það kom i ljós fyrir einu ári hver myndi
taka við embættinu. Það er vegna þess að
alltaf er kosið í embættið með árs fyrirvara.
Núverandi forseti, Hafsteinn Þórðarson, hef-
ur því verið í starfsþjálfun í eitt ár.“
- Ef einhver fengi þá hugmynd að ganga í
samtökin, eru þá einhver inntökuskilyrði?
„Já, aldurstakmark er átján til fjörutiu ára.
Um fertugt er fólk talið útlært í þeim fræðum
sem við kennum."
- Er eitthvað sem þú vilt segja að lokum,
Marta?
„Ekki nema að mér finnst JC vera hreyfing
sem allir eiga erindi í. Þar lærir maður að
vinna með öðrum og fólk verður miklu virk-
ara í öllu starfi eftir að hafa kynnst JC.“
Viðtal: Jóna Björk Guðnadóttir
Mynd: Kristján Ari Einarsson
10 VIKAN 25. TBL