Vikan - 18.06.1987, Page 36
Laugardagur á Seltjarnarnesi
„Seltjarnarnesið er lítið og lágt.
Lifa þar fáir og hugsa smátt."
Flest þekkjum við þetta kvæði
Þórbergs urn Seltjarnarnesið. En
er Seltjarnarnesið lítið og lágt og
búa þar fáir og hugsa smátt? Til
þess að kanna málið lögðum við
leið okkar út á Nes síðdegis einn
laugardag í blíðskaparveðri. Sólin
skein og vorið virtist nú loks vera
komið. Mannlífið á Seltjarnarnesi
var komið í sumarskap.
Nyrst og vestast á Seltjarnar-
nesi er eyja sem nefnist Grótta.
Samnefndur bær er í eyjunni og
þar hefur verið ljósviti frá því árið
1817. Út i Gróttu er hægt að kom-
ast þegar fjara er á svokölluðum
Gróttugranda.
„Ekki er rótt að eiga nótt undir
Gróttutöngum," á sjódauður
maður að hafa kveðið. Grótta
hefur sennilega áður verið land-
föst en sær hefur gengið allmikið
á landið þar út frá. Árið 1799
varð mikið fióð, svonefnt Báts-
endafióð, og gekk þá sjór þvert
yfir nesið kringum Kaplaskjól svo
að hvorki var fært mönnum eða
hestum.
Við lögðunt leið okkar út í
Gróttu eins og svo margir aðrir
þennan fallega dag því svæðið er
vinsælt til gönguferða og fugla-
skoðunar. Margt fólk varð á vegi
okkar og var það að njóta úíiver-
unnar. Þarna var rneðal annars
afi með barnabörn sín að útskýra
lífríki fjörunnar. í fjörunni við
öldruðum sjómönnum á sumrin.
Gróttu gengum við fram á hjón
sem voru að sýsla í fjörunni. Hann
var með hamar og sög í hendi svo
forvitni okkar var vakin. Þetta
voru hjónin Guðjón Jónatansson
og Bára Westmann. Guðjón og
Bára eru ekki innfæddir Seltirn-
ingar, þó hafa þau búið þar lengst
af. Guðjón er fæddur á Snæfells-
nesi en fiutti á Seltjarnarnesið
1944. Bára, kona hans, er frá
Fáskrúðsfirði, fiutti hingað á Nes-
ið 1949. Hér segja þau að sé mjög
gott að búa og vilja hvergi annars
staðar vera. Hér er alltaf hreint
loft.
Guðjón er starfsmaður hjá
áhaldahúsi Seltjarnarness en að
áhugastarfi er hann eftirlitsmaður
með Gróttu.
Umferð bönnuð um
varptímann
í eyjunni er mikið og fjölskrúð-
ugt fuglalíf og er eyjan friðlýst.
Guðjón hefur haft fuglaskoðun
að áhugamáli síðan hann var
unglingur og er því Grótta hrein
paradís fyrir hann til að sinna
áhugamáli sínu. Bára segir að hér
sé helst hægt að finna mann sinn
sé hann ekki heima hjá sér eða í
vinnunni. Öll umferð út í Gróttu
er bönnuð yfir varptímann, frá
1. maí til 1. júlí. Guðjón segist
korna út í Gróttu einu sinni á dag
meðan varptíminn er og huga að
fuglunum. Einmitt þennan laug-
ardag, þegar við hittum Báru og
Guðjón í fjörunni í Gróttu, hafði
Guðjón verið að negla fyrir glugga
á húsunum í Gróttu, en þeir höfðu
verið brotnir. Guðjóni er ntjög
umhugað um að vel sé gengið um
eyjuna og segir að ytra útlit hús-
anna skipti miklu máii fyrir
heildarsvipinn. Hann nefnir sem
dænti þegar borgaryfirvöld létu
Bára Westmann og Guðjón Jónatansson.
brenna húsin í Engey og nú sé
ekki svipur hjá sjón að horfa
þangað út. „Eyjan er alveg kollótt
á að líta."
Alls verptu ellefu fuglategundir
i Gróttu síðastliðið vor að sögn
Guðjóns og hann segir að það séu
alltaf sömu fuglarnir sem verpi í
sömu hreiðrin. Bára bætir því við
að kollurnar þekki hann orðið og
hann geti gengið alveg að þeim
og klappað þeim. Guðjón segir
að fuglategundum hafi fækkað til
muna síðastliðin ár og að ekki
hafi sést fuglahreiður síðustu sex
Ellefu tegundir
fugla verptu í Gróttu
Yfirbyggður míðbær
Okkur sem búum i austurbæ Reykjavíkur kemur
á óvart hve mikið er að gerast i Seltjarnarnesbæ.
Margar byggingar hafa risið á síðustu árum eða
eru í byggingu, má þar nefna miðbæ Seltjarnarness
sem er yfirbyggður með glerþaki.
I nágrenni við hann er Byggung búið að reisa 130
íbúðir í sjö 6-8 hæða stórhýsum, en á neðstu hæð-
um húsanna eru verslanir og iðnaður. Virðist þetta
vera eftirsótt húsnæði.
í desember 1985 var vígður fyrsti áfangi kirkju
á Seltjarnarnesi en þar hafði þá ekki verið kirkja
síðan 1799. Kusu Seltirningar sér prest í apríl 1986,
séra Solveigu Láru Guðmundsdóttur.
Félagslíf Seltirninga virðist vera í miklum blóma,
það sýnir fjöldi félaga, klúbba og kóra. Má þar
nefna kvenfélag, tafifélag, leikfélag. myndlistar-,
Ijómynda-, Lions-. Kiwanis-, Rotary- og Soroptim-
istaklúbba, Sclkórinn. barnakór, íþróttafélög og
svo mætti lengi telja. Nýlega var þar opnað eitt
fullkomnasta stúdíó á landinu.
Heilsugæslustöð tók til starfa árið 1982 og þar
njóta fiestir Seltirningar og stór hópur úr vesturbæ
Reykjavíkur úrvalsþjónustu.
Tónlistarskóli og bókasafn eru í nýju húsnæði
og vel er séð fyrir íþróttaiðkun, nteðal annars með
úrvals sundlaug sem er geysivinsæl bæði hjá heima-
mönnum og utanbæjarfólki.
Hitaveita Seltjarnarness hefur reynst hið besta
fyrirtæki, hún var tekin í notkun árið 1972.
Glerþakið í Nýjabæ.
Grótta, oriöland fnolaiina
36 VIKAN 25. TBL