Vikan


Vikan - 18.06.1987, Qupperneq 37

Vikan - 18.06.1987, Qupperneq 37
Kristján, Katrín, Guðrún, Már og Sigurður byrja á léttum upphitunaræfingum. Málaogtrimmaafkrafti Laugardagur á Seltjarnarnesi gæti í hugum flestra verið ósköp venjulegur laugardagur. Þegar að er gætt kemur í ljós iðandi mannlíf á Nesinu. Félagslífið blómstrar í ýmsum myndum. íbúarnir virðast mjög samhentir um að njóta lífsins í hinu fallega umhverfi. Hefð- bundnir karlaklúbbar halda fundi þar sem annars staðar og kvenfélagið er mjög virkt. Fólk trimmar og málar listaverk. Menningin verður ekki útundan þótt menningarstarfsemi kaupstaðarins markist af nálægðinni við Reykjavík. íbúar Seltjarnarness þurfa að mestu leyti að sækja leiksýningar, myndlistar- sýningar og tónlistarviðburði til Reykjavíkur. Starfandi er þó myndlistarklúbbur sem for- vitnilegt gæti verið að fræðast um. „Þessi klúbbur hefur verið starfandi meira og minna í átján ár og höfum við meðlimirn- ir mjög góða aðstöðu í Valhúsaskóla. Við hittumst á laugardögum yfir veturinn og vinn- ur hver sjálfstætt að sínum verkefnum, hvort sem það er pastel, vatnslitir eða olía.“ Magnús Valdimarsson, formaður myndlist- arklúbbsins, hefur starfað með frá byrjun og sagði hann að Sigurður Kr. Árnason bygg- ingameistari hefði verið fyrsti kennari hópsins. „Síðan hafa margir kennarar leiðbeint okkur, svo sem Jóhannes Geir, Hringur Jóhannes- son, Rudolf Weissauer og Eggert Guðmunds- son teiknari. Undanfarna fjóra vetur hefur Hringur Jóhannesson komið einu sinni í mán- uði og gagnrýnt okkur. Við teljum okkur ekki lengur þurfa á beinni kennslu að halda þar sem flest okkar hafa verið með frá byrj- un.“ Magnús upplýsti að klúbburinn hefði hald- ið níu til tíu vorsýningar í Valhúsaskóla. í fyrra var haldin stór sýning í tilefni af vina- bæjamóti. Sigurður Sigurðsson setti hana upp eins og flestar aðrar sýningar. Frá myndlist í trimmið Landslagið á Seltjarnarnesi hentar einkar vel fyrir þá sem vilja hlaupa sér til hressingar. Landið er flatt og loftið tært meðfram sjónum þó stundum blási hressilega. En hvað segir heilsuræktarfólkið? „Við hittumst þrisvar í viku allt árið um kring og það fellur aldrei niður tími. Það er alveg sama hvernig viðrar, stórhríð, rigning eða skínandi sól.“ Félagar í trimmklúbbnum, sem voru mættir til leiks við sundlaugina laugardaginn 2. maí, voru allir sammála um hversu hollt það væri að trimma. „Þetta byrjaði allt fyrir tveimur árum. Þá var haldið trimmnámskeið á vegum ÍSÍ. Jó- hann Hreiðar læknir kom þá til okkar og kenndi helstu undirstöðuatriðin. Það er lögð mikil áhersla á upphitun og að farið sé hægt og rólega af stað. Síðan hlaupum við um Nesið. Oft á tíðum er farið út á Suðurnes og Gróttu og síðan hittumst við aftur fyrir utan sundlaugina og tökum teygjuæfingar til að losna við_harðsperrur.“ Sigurður Ásgrímsson hefur verið með frá upphafi og er greinilega í góðri þjálfun. Hann hefur tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og á síðasta ári hljóp hann hálfmaraþon sem er tuttugu og einn kílómetri. „Þetta er óformlegur klúbbur og öllum opinn. Það er enginn formaður og allir jafn- réttháir. Við höldum að vísu árshátíð og árshátíðarnefndin er skipuð þeim sem mæta í heita pottinn hverju sinni eftir trimmið. Sundlaugin hér á Nesinu er mjög góð og potturinn frábær. í honum eru öll málefni klúbbsins rædd á lýðræðislegan hátt og um- ræður verða oft líflegar eftir að streitan er rokin út í veður og vind. Jú, vissulega er fólk misjafnlega á sig kom- ið og oft á tíðum skilja leiðir. Hver og einn hefur sína hentisemi með hversu hratt og langt hann vill hlaupa. í dag hlupum við til dæmis sjö kílómetra." Þegar hópurinn hafði lokið hlaupinu blés fólkið varla úr nös. Skokkið á Seltjarnarnes- inu á bersýnilega jafnvel við konur sem karla. En hversu öflugur er trimmklúbburinn? „Við vorum fimm sem hlupum í dag enda æt'luðu margir að nota sér góða veðrið og fara á skíði. Við viljum hvetja sem flesta til að mæta við sundlaugina og hlaupa rneð okk- ur. í trimmið eiga allirerindi," sögðu félagarn- ir fimm og hurfu að vörmu spori ofan í heita pottinn. Fundað í bátaskýli Á suðurhluta eyjunnar er gamalt bát sem Rotaryklúbburinn á Seltjarnarm Rotarymenn hafa gert húsið upp og nota sem fundarstað. Suðvestan við bátaskýlið hefur Guðjón hengt upp litrík flögg til að laða koll- una að. Einnig hefur hann komið fyrir dekkjum sem hann hefur rnálað allavega lit og útbúið þannig varpstæði fyrir kolluna. Guðjón og Bára sýndu okkur fyrsta hreiður vorsins, stokk- andarhreiður. Dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn? Síðast var búið í Gróttu fyrir þrettán árum og bjó þar maður að nafni Albert Jónsson. Albert bjó einn og hafði umsjón með vitanum. Guðjón hefur mikinn áhuga á að fá húsin í Gróttu til umráða og koma þar á fót dvalar- heimili fyrir aldraða sjómenn. Menn gætu dvalið þar eina til tvær vikur á sumri og notið nálægðarinnar við sjóinn, svo ekki sé nú minnst á kyrrðina sem þar ríkir. Ráðamenn hafa þó ekki ennþá viljað gefa samþykki sitt. Guðjón telur að ekki þurfi að kosta svo miklu til því húsin séu í ágætu ásigkomulagi og allt sé þar til staðar, svo sem rafmagn og vatn. Þetta mun ekki hafa áhrif á fuglalífið, segir Guðjón, því ekki munu svo ntargir dvelja þar í einu og það sé ekki maðurinn sent fæli fuglinn með nærveru sinni. Áður en við kvöddum Guðjón og Báru mátti Guðjón ekki heyra annað nefnt en að við kæm- um upp í vitann cg'virtum fyrir okkur útsýnið. Það var svo sannarlega þess virði að fá að koma upp í vitann í Gróttu og njóta þess stór- kostlega útsýnis sem þar er. ár niilli svokaliaðrar Snoppu og Suðurne: hafi áður verið hreiður við hreiður. G vill meina að orsökin sé sú að hingað kon í auknum mæli til að viðra hunda sína. G telur að það sé ekki mannfólkið sem fæl ana heldur séu það hundarnir sent þar eigi 25. TBL VIKAN 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.