Vikan - 18.06.1987, Side 43
r
FOSTURSKOLINN
Kæri Póstur!
Ég vil endilega biðja þig að gefa ntér upplýs-
ingar um Fósturskólann.
1. Þarf maður stúdentspróf til að komast inn
í skólann?
2. Hvað lærir maður í Fósturskólanum?
3. Hversu ntörg ár tekur að verða fóstra?
4. Hvar á landinu er þessi skóli?
5. Eru góðir atvinnumöguleikar að loknu
námi?
Ein sem langar aó verða fóstra.
Til þess að komast inn í Fóstnrskó/a íslaitds
þarf viðkomandi að hafa lokið tveimur árum í
framhaldsskóla eftir 9. hekkjar próf og vera
orðinn átján ára. Tungumálakunnálta þarf að
vera nokkuð góð, sérstaklega í ensku og í einu
Norðurlandamálanna, dönsku, norsku eða
sœnsku. Námið tekur þrjú ár og um það bil
TIM CURRY
Kæri Póstur!
Nú verður þú að hjálpa mér því mig vantar
svo upplýsingar urn Tim Curry (þann sent lék
i The Rocky Horror Picture Show), svo sem
hvenær hann er fæddur og hvar, hvar hann
býr, í hvaða myndum hann hefur leikið og
þá hvenær og svo frantvegis.
Með fyrirfram þökk fyrir hjálpina.
RNI.
Því miður býr Pósturinn ekki yfir neinum
upplýsingum um Tim Curry og gat ekki þrált
fyrir nokkra leit fundio upplýsingar um hann.
Því fer Pósturirin þess á leit við þá lesendur
blaðsins sem vita eitthvað um umrœddan mann
að þeir skrifi Póstinum og uppfrœói okkur hin
um þennan ágata leikara.
HRIFIN AF
STRÁK
Kæri Póstur!
Ég á við vandamál að stríða en þannig er
að ég er rosalega hrifin af strák. Strákurinn
er vinsæll meðal stelpna en ég er feimin og
lítið fyrir að láta bera á mér. Ég held að strák-
urinn sé líka svolítið feiminn en ekki eins
rnikið og ég. Vandamálið er að ég verð að ná
í þennan strák, en hvernig á ég að fara að
því? Ég hef einu sinni talað við hann en þá
var ég full og bullaði eitthvað.
Með fyrirfram þökk.
Ein að deyja úr ást.
Þú ert áreiðanlega ekki súfyrsta og ekki sú
síðasta sem gllmir við svipaó vandatmi Hvað
þú átt að gera fer nú dálítið ej'tir aðstœðum.
Geturþú ekki reynt að láta einhverja sameigin-
lega viniykkar koma því til leióar aó þið rœðist
við? Þú gœtir þá verið búin aó komast að því
á hverju strákurinn hefur mestan áliuga og
rœtl um þaó vió hann. Bíómyndir og það sem
sýnt er í sjónvarpinu er líka sígilt umneóuefni
og flestir hafa einhverjar skoðanir á þeim efn-
um. Ef þið eruð stödd á balli getur þú boóió
honum upp. Það getur verið erfitt en þaó ger-
ist ekkert nema þú gerir eitthvað í málunum
sjálf. Hvað varðar feimnina þá erufiestir ungl-
ingar sem fimna fyrir feinmi en hún lagast i
fiestum tilfellum með aldrinum. Hjá sumum
kemur feimni fram í mikilmennskubrjálœði.
þeir vilja láta á sér bera og svo framvegis.
Aðrir skríða inn í skel sína og eiga Írfitt með
að tjá sig við aðra. Feimni stafar yfirleitt qf
minnimáttarkennd yfir einhverju sem í augum
viðkomandi verður aó risavöxnu vandamáli átn
þess aó nokkur ástœða sé til í raun. Þú œttir
aó fara i smásjálfsskoðun og alhuga á hverju
feimni þín byggist, ef til vill áttu betra með að
sœttast við sjálfa þig á eftir. En það sem þú
segir um aó strákurinn sé mjög vinsall af stelp-
um bendir einmitt til að þig hrjái einhvers konar
minnimáttarkenndt út qf.sjálfri þér. Meó því
að líta i eigin barm getur þú ef til vill séð hvort
nokkur ástceða er til þess og i kjölfar þess oró-
ið vogaðri í samskiptum þínum við drauma-
prinsinn.
GULLHAMSTR-
AR
Elskulegi Póstur!
Mig langar í gæludýr. Ég hef átt fiska og
fugla en varð leið á þeim og langar nú ti! að
prófa að hafa gullhamstra.
Er erfitt að hafa gullhamstra?
Borða þeir rnikið?
einn þriðji fer fram á barnaheimihmum. I Fóst-
urskólanum er mikið lagt upp úr greinum sem
tengjast sálar- og uppeldisfrœði. Skólinn er í
Reykjavík. Atvinnumöguleikar fóstra eru mjög
góðir því stöðugt vantar Jöstrur til starfa. Því
œttufáir að ganga um atvinnulausir sem útskrif-
ast úr Fósturskólanum.
Er maturinn þeirra dýr?
Hvað kostar búr fyrir gullhamstra?
Gulli gullhamstur
Gullliamstrar eru ágætis gæludýr og mjög
vinsælir vegna þess hversu gæfirþeir eru. Reynd-
ar sofa þeir mestan hluta dagsins en svo hýrnar
yfir þeim með kvöldinu. Þeim jjölgar ört og
því ráðlegast, efþú ætlar ekki að standa í fjölda-
framleiðslu, að kaupa tvo qf sama kyni eða
aóeins einn. Gullhamstrar kosta eitthvað í
kringum hundrað og fimmtíu krónur og búrin
kosta frá tvö þúsund krónum eftir stærð og
get'ð. Það veróur aó passa vel aó hqfa búrið
lokað, annars geta þeir týnst og þess erti dæmi
að þeir týnist inn í liolur og veggi í gömhttn
húsum. Líklega er ekki skemmtilegt að heyra
í þeim þar endalaust eóa að rífa niður Inis vegna
gullhamsturs...
Hamstrarnir lifa að meðaltali i þrjú ár. Þeir
lifa á fræblötulu semfæst í gæludýraverslunum
og kostar hver pakki, sem dugir í um það bil
mánuð, sextiu og eina krónu og einnig má gefa
þeim grænmeti og epli. A sumrin er svo ágætt
að tína jijlablöó og gefa vinunum. Ætli við lát-
um þetta ekki nægja um hamstra í bili.
FRÁ PÓST-
MEISTARANUM
Enn vill brenna við að fólk sé að skrifa Póstin-
um nafnlaus bréf. Pósturinn hefur fyrir reglu
að birta aldrei slík bréf. Ef fólk glímir við vanda-
mál, sem það vill fá einhverja lausn á, verður
það að láta nafn og heimilisfang fylgja bréfi sínu.
Pósturinn birtir hins vegar ekki nöfn þeirra sem
skrifa honum, fari fólk fram á það. Næst þegar
þið setjist niður og skrifið látið þá nafn og heim-
ilisfang fylgja, TAKK.
25. TBL VIKAN 43