Vikan


Vikan - 18.06.1987, Síða 45

Vikan - 18.06.1987, Síða 45
Þegar við gáðum betur að, já, hvað heldurðu? - Lá þá ekki kötturinn þarna á milli þúfna og svei mér ef mér fannst hann ekki drepa tittlinga og glotta framan í mig. En ekki gafst mér nú tími til frekari hugleið- inga því sár grátur barst mér til eyrna svo ég áttaði mig á ný. Og nú hófst ég handa við að hug- hreysta þessi litlu kríli sem krupu þarna hágrátandi yfír kettinum. Já, það er vissulega sárt þegar góðir vinir kveðja þetta líf, hvort sem það eru menn eða dýr. Eftir mikið umtal og hughreystingarorð tókst mér loks að koma börnunum í skilning um að kisi væri nú kominn til Guðs og liði ábyggilega vel. Hins vegar varð ekki hjá því kom- ist að fara með kisa heim og það kom að sjálfsögðu í minn hlut að bera líkið. Er heim kom tók lítið betra við því að áliti barnanna var óhjákvæmilegt annað en að jarð- syngja köttinn og það strax. Þar sem ég var nú búin að fá nóg af þessu öllu saman og sá fram á að þetta yrði örugglega endirinn á þessu katt- armáli öllu ákvað ég að jarða köttinn í eitt skipti fyrir öll. Ég skellti því líkinu i garnlar hjólbörur og skundaði nú heldur vígaleg með börnin sitt við hvora hlið niður á lækjarbakkann. Þar hófst ég handa Umsjón: Hólmfríður Benediktsdóttir af miklum krafti og gróf væna holu í bakkann. Börnin stóðu hjá, hljóð og döpur, og þrátt fyrir allt mitt kattahatur kenndi ég nú hræðilega í brjósti um þessi kríli sem voru nú að kveðja sinn góða vin. Ég tók því köttinn ofur varlega og lagði hann með miklum virðuleik í gröfina. Við kveðjum þig nú, kisi minn, og biðj- um Guð að passa þig vel, sönglaði ég hátíðlegri röddu. Síðan sungum við „ Ó, Jesú bróðir besti“ og að því loknu mokaði ég hægt og virðulega yfir köttinn. Já, svona endaði nú líf kattarins á þessu heimili. Nú er kominn á gröfína stærðar kross sem börnin smíðuðu úr gömlum spýtum. Jæja, þetta læt ég nú duga í bili, hlakka til að fá bréf frá þér. Bið að heilsa öllum. Þín frænka, Silla Músa- skokk Þessartvær myndir virðast í fljótu bragði vera eins en við nán- ari athugun kemur í Ijós að tíu atriði vant- ará neðri myndina. Getur þú fundið þau? a TBL VI KA N 4b

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.