Vikan - 18.06.1987, Page 47
Þessi urriði veiddist í Kleifarvatni í net í maí og var 14,5 pund. A mynd-
inni eru félagar úr veiðiræktarnefnd Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar,
þeir Jóhann Þórarinsson og Sigurður ívar Sigurðsson. Þegar þessi
urriði var settur í vatnið sem seiði úr Laxá í Mývatnssveit voru þeir lika
í veiðiræktarnefndinni.
Vikumynd Mark M.
Jón G. Baldvinsson í hópi friðra kvenna.
Heyrt. .heyrt.. .heyrl...
Barátta tímarita um stangaveiði er mikil og
annað þeirra sem standa í baráttunni,
Sportveiðiblaðið, er komið á götuna, 104
síður, og næstum allt í lit. A veiðum er væntan-
legt næstu daga og mun þar hafa verið skipt
um skipstjóra. Steinar J. Lúðvíksson mun hafa
tekið að sér ritstjórn í stað Ólafs Jóhannsson-
ar. Veiðimaðurinn stendur fyrir utan þessa
baráttu og er þar aðeins einn ritstjóri þessa
dagana, eftir að Víglundur Möller lést. Hann
skrifaði einhverjar skemmtilegustu forystu-
greinar sem skrifaðar hafa verið i stangaveiði-
blöð, enda frábær með pennann. Er víst leitað
að ritstjóra þessa dagana og við höfum heyrt
að Rafn Hafnfjörð verði sá nýi ritstjóri. Bíðum
og sjáum til.
Það vakti athygli þegar Ingvi Hrafn Jónsson
hvarf af sjónvarpinu og kom ekki fram á skján-
um svo mánuðum skipti. Hann segir frá þessu
í nýjasta Sportveiðiblaðinu og kemur þar fram að
hann missti ekki af einni mínútu í veiði. Fékk hann
lækna sina til að mæta við Langá og renna um
leið og útskrifa sig. Hann veiddi svo víða og Laxá
i Aðaldal gaf honum vel af fiski. Ingvi Hrafn segir
í niðurlagi greinarinnar: „Að kvöldi 12. ágúst sett-
ist ég svo í fréttasætið í sjónvarpinu og las fréttir,
rúmum fimm mánuðum eftir að ég tók mér dags-
fri frá störfum til að skreppa til læknis en ég missti
ekki dag úr veiði." Er það ekki það sem skiptir
öllu máli?
Við heyrðum að veiðimenn ættu ekki að þurfa
að verða bókarlausir um næstu jól þvi tvær
bækur eru í smíðum fyrir veiðimenn. Er önnur
um ýmislegt sem lýtur að veiði og hin er um ís-
lenskar flugur. Höfundar eru þeir sömu og gáfu
út stangaveiðihandbókina fyrir nokkrum vikum. .
25. TBL VI KAN 47