Vikan


Vikan - 18.06.1987, Blaðsíða 55

Vikan - 18.06.1987, Blaðsíða 55
- Hún var ekki þarna þá, sagði ég. - Þú varst bara morðóður og ef þú hefðir ekki hangið á þessum hundi þangað til hann drap mann hefði verndin þín ekki orðið skíthrædd og ætlað að framselja þig. - Ég kann vel við hunda, sagði Dýrlingur- inn stillilega. - Ég er indælis maður þegar ég er ekki í vinnunni, en það er hægt að þvæla mér einum of. - Heyrðu mig, sagði ég skjótmæltur. - Ef þú ætlar að spila með mér í þessum leik er ég með bát hér og ég skal reyna að koma stelpunni heim áður en þau taka eftir því að hún skrapp frá. Hvað um þig verður kemur mér ekkert við. Ég myndi ekki hreyfa frngur þín vegna, jafnvel þó þú kunnir vel við hunda. Stúlkan sagði allt í einu með skrækri smá- stelpurödd: - Ég vil ekki fara heim! Ég vil ekki fara heim! - Eftir ár eða svo þakkarðu mér, hreytti ég út úr mér. - Hann hefur rétt fyrir sér, elskan, sagði Dýrlingurinn. Þú skalt bara hlusta á hann. Gegnum þögnina á dekkinu heyrðist allt í einu hurðarskellur. Harkaleg rödd hrópaði: - Opnið! Það er lögreglan! Ég hopaði hratt að dyrunum, án þess að missa augun af Dýrlingnum. Ég talaði yfir öxlina á mér. - Er Fulwider þarna? - Já, rumdi rödd lögreglustjórans. - Carmady? - Heyrðu mig, lögreglustjóri. Dýrlingurinn er hér og hann er til í að gefast upp. Það er stúlka með honum, þessi sem ég sagði þér frá. Þú ferð varlega inn, er það ekki? - Alveg rétt, sagði lögreglustjórinn. - Opnaðu dyrnar. Ég sneri lyklinum, stökk yfir klefann og setti bakið í vegginn við innri dyrnar. Bak við þær heyrðist að hundurinn var kominn á stjá og ýlfraði aðeins. Ytri dyrnar opnuðust. Tveir menn, sem ég hafði ekki séð áður, komu inn með byssurnar uppreiddar. Feiti lögreglustjórinn var bak við þá. Rétt í svip, áður en hann lokaði dyrunum, sá ég einkennisbúningi áhafnarinnar bregða fyrir. Löggurnar tvær stukku á Dýrlinginn, skelltu honum fram og til baka og settu á hann handjárn. Síðan drógu þær sig í hlé aft- ur fyrir lögreglustjórann. Dýrlingurinn glotti við þeim og blóð vætlaði úr neðri vörinni á honum. Fulwider leit á mig, falaðist eftir viðurkenn- ingu og þvældi vindli í munninum. Enginn virtist hafa áhuga á stúlkunni. - Þú ert nú meiri kallinn, Carmady, segir manni ekkert hvert á að koma, sagði hann í nöldurtón. - Ég vissi það ekki, sagði ég. - Ég hélt þar að auki að það væri fyrir utan þina lögsögu. - Fari það fjandans til. Við hóuðum á al- ríkislögguna. Hún er að koma. Annar lögreglpþjónninn hló. - En ekki of fljótt, sagði hann ruddalega. - Leggðu frá þér byssuna, snuðrari. - Reyndu að láta mig gera það, sagði ég. Hann lagði af stað en lögreglustjórinn veif- aðí honum til baka. Hin löggan fylgdist með Dýrlingnum og horfði ekki á annað. - Hvernig fannst hann þá? vildi Fulwider vita. - Ekki með því að hirða af honum peninga sem endurgjald fyrir felustað, sagði ég. Andlitið á Fulwider var svipbrigðalaust. Hann varð næstum letilegur í röddinni. - Ó, ó, þú hefur verið að snuðra, sagði hann mjög ljúflega. Ég sagði yfir mig hneykslaður: - Hvers konar auli hélduð þið eiginlega að ég væri? Litli, hreini bærinn þinn er illa þefjandi. Hann er frægur, kalkaður grafreitur, griðland fyrir bófa þar sem gömlu tryllitækin geta lagt sig til hvílu ef þau borga nógu vel og verða engri heimablók til ama. Þar geta þau hoppað upp í hraðbát til Mexíkó ef fer að volgna undir þeim. Lögreglustjórinn sagði gætilega: - Nokkuð fleira? - Já, hrópaði ég. - Ég er búinn að geyma þetta handa þér æði lengi. Þú lést dópa mig þangað til ég var hálfur út úr heiminum og settir mig í einkafangelsi. Þegar það hélt ekki varst það þú sem varst með ráðabrugg ásamt Galbraith og Duncan og til stóð að láta mína byssu drepa Sundstrand, hjálparkokkinn þinn, og láta svo kála mér þegar ég sýndi mótþróa við handtöku. Dýrlingurinn eyði- lagði samkvæmið og bjargaði lífi mínu. Ékki að það væri ætlun hans kannski, en hann gerði það. Þú vissir alltaf hvar litla Snarestelp- an var. Hún var gift Dýrlingnum og þú ætlaðir að halda henni fyrir sjálfan þig til að hafa hemil á honum. Fjandakornið, hvers vegna heldurðu að ég hafi áttað mig á því að hann var hér? Það var dálítið sem þú vissir ekki! Löggan, sem hafði verið að reyna að fá mig til að beita byssunni, sagði: - Jæja, stjóri. Best að hafa hraðan á. Þess- ir alríkis... Kjálkarnir glömruðu í Fulwider. Andlitið á honum var grátt og eyrun lágu aftur. Vindill- inn vó sait í þrútnum munninum á honum. - Bíddu aðeins, sagði hann með þunga við manninn við hliðina á sér. Síðan sagði hann við mig: - Jæja... hvers vegna gafstu mér upplýsingarnar? - Til að ná þér á stað sem þú hefur ekki meiri lögsögu yfir en Billy the Kid, sagði ég, - og til að athuga hvort þú hefur kjark til að fremja morð úti á hafi. Dýrlingurinn hló. Hann blístraði lágt. Sker- andi vein í dýri svaraði honum. Hurðin við hliðina á mér þeyttist upp eins og múlasni hefði sparkað í hana. Stór lögregluhundur kom gegnum opnar dyrnar í löngu stökki og hentist yfir klefann þveran. Grár skrokkurinn á honum snerist í loftinu. Byssuhvellur heyrð- ist en enginn meiddist. - Láttu þá hafa það, Voss! hrópaði Dýrl- ingurinn. - Éttu þá lifandi, drengur! Klefinn fylltist af púðurreyk. Urrið í hund- inum blandaðist þungu, hálfkæfðu ópi. Fulwider og önnur löggan voru á gólfinu og hundurinn var með kjaftinn á hálsinum á Fulwider. Stúlkan öskraði og fleygði sér á grúfu á koddann. Dýrlingurinn féll ofurhægt af bekknum og lá á gólfinu. Blóðið rann hægt í breiðri elfu úr hálsinum á honum. Löggan, sem var ekki í gólfinu, stökk til hliðar, féll næstum endilöng á bekkinn hjá stúlkunni, náði svo jafnvægi og dældi kúlum í langa, gráa skrokkinn á hundinum - tryll- ingslega og án þess að reyna að miða. Löggan í gólfinu ýtti við hundinum. Hund- urinn beit höndina hérumbil af honum. Maðurinn æpti. Fótatak heyrðist úti á dekki. Hróp úti fyrir. Eitthvað sem kitlaði rann nið- ur andlitið á mér. Ég var skrýtinn í höfðinu en vissi ekki hvað hafði lent í mér. Byssan, sem ég var með í hendinni, virtist heit og stór. Ég skaut hundinn þó mér væri það þvert um geð. Hundurinn rúllaði af Ful- wider og ég sá að kúla á flandri hafði borað sér inn í ennið á stjóranum, milli augnanna, með þessari yndislegu nákvæmni tilviljunar- innar. Gikkurinn á byssunni, sem uppistandandi löggan var með, klikkaði á tómu skothylkinu. Hann bölvaði og fór að hlaða hana í ofsa. Ég snerti blóðið í andlitinu á mér og leit á það. Það sýndist mjög svart. Ljósið íklefanum virtist vera að gefa sig. Skínandi eggin á axarblaði klauf skyndilega klefahurðina sem skrokkurinn á lögreglustjór- anum og stynjandi manninum við hliðina á honum héldu aftur. Ég starði á skínandi málminn og sá hann hverfa og birtast aftur á öðrum stað. Síðan slokknuðu öll ljósin ofurhægt eins og í leikhúsi rétt áður en tjaldið er dregið upp. Um leið og varð almyrkvað fann ég sársauka í höfðinu á mér en ég vissi ekki þá að byssu- kúla hafði brákað á mér höfuðkúpuna. Ég rankaði við mér tveim dögum síðar á sjúkrahúsi. Ég var þar í þrjár vikur. Dýrling- urinn lifði ekki nógu lengi til að verða hengdur en nógu lengi til að segja sögu sína. Hann hlýtur að hafa sagt hana vel því löggan hleypti frú Jerry' Dýrlings bónda heim til frænku sinnar. Um það leyti hafði hæstiréttur fylkisins sak- fellt helminginn af lögregluliði litlu strand- borgarinnar. Það var fullt af nýjum andlitum á ferli í aðsetri lögreglunnar í ráðhúsinu, heyrði ég. Eitt af þeim átti rauðhaus, leynilög- reglufulltrúi sem hét Norgard og sagði að hann skuldaði mér tuttugu og fimm dollara en hann hefði orðið að nota þá til að kaupa sér ný föt þegar hann fékk starf sitt aftur. Hann sagði að hann myndi borga mér þegar hann fengi útborgað í fyrsta skipti. Ég sagði að ég myndi reyna að bíða. Sögulok. 25. TBL VIKAN 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.