Vikan - 18.06.1987, Blaðsíða 56
S T J Ö R N U S P Á
Á
SPÁIN GILDIR FYRIR VIKUNA
21 .-27. JÚNÍ
HRÚTURINN 21. mars-20. apríl
Þig langar að sletta úr klaufununr
og til þess gefast ýmis færi. Ekki
falla allra hugmyndir um siðsamlega
hegðun í sama farveg og þínar eru
áreiðanlega ekkert lakari en annarra.
Njóttu lífsins á þann hátt sem þér
hentar og láttu engan segja þér fyrir
verkum í þeim efnum.
TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní
Talsverð áhætta fylgir fullkominni
hreinskilni og því skaltu ekki láta
þér bregða þótt ýmsir bregðist illa
við og þyki þú nokkuð berorður.
Þú ert að breyta til varðandi ýmsar
grundvallarlífsvenjur og því fylgir
að vinahópurinn breytist en maður
kemurímanns stað.
LJÓNIÐ 24. júlí-23. ágúst
Leggðu við hlustir þegar vinir þínir
hafa orð á vandræðum sem þeir eru
í. Þú getur orðið að liði en oft er
fólk feimið við að leita liðsinnis og
nægir þá stundum að hlusta með
athygli til að finna hvar skórinn
kreppir. Þessa dagana er þitt hlut-
verk að örva og hugga.
VOGIN24.scpt.-23.okt.
Lífsþróttur svellur þér í brjósti og
ekki skaltu stemma stigu við ork-
unni sem þarfnast útrásar. Þér finnst
sennilega rnargt af því sern hefur
þjakað þig undanfarið allt í einu
hjóm eitt og hégórni og sannar það
best að vanlíðan eða vellíðan er oft
á tíðum undir hugarfarinu komin.
BOGIVIADURINN 24. nóv.-21. dcs.
Skýjaborgir setja svip á næstu viku
hjá þér. í þér er hugur en eins víst
að minna verði úr framkvæmdum
að sinni. Þér nýtast þó seinna ýmsar
hugdettur sem verða afrakstur þessa
draumaskeiðs og í öllu falli er nokk-
uð tryggt að þér leiðist ekki rneðan
loftkastalarnireru í smíðum.
VATNSBERINN 21. jan.-19. fcbr.
Þú þarft á rósemi og sjálfsstjórn að
halda í næstu viku. Ekki er svo að
skilja að líkur séu á að þú lendir í
stórvægilegum þrengingunr, þessir
gullvægu eiginleikar eru einfaldlega
þinn lykill að velgengni þessa dagana
og gera þér kleift að njóta þín við
mismunandi aðstæður.
NAUTIÐ 21. apríl-21. maí
Þótt allt virðist ætla úr skorðum hjá
þér eru föstu punktarnir nægilega
margir og öflugir til að halda skút-
unni á réttunr kili. Þú getur vel leyft
þér að slaka á og skemmta þér við
allt það óvænta senr fyrir ber og síst
skaltu vanmeta þá aðdáun sem þú
verður aðnjótandi.
KRABBINN 22. júní-23. júlí
Stundum verða hlutirnir að hafa
sinn gang og þá þýðir ekki að berja
höfðinu við steininn. Hvað hefur
sinn tíma og sumt af því senr þér
finnst tímabært má af ýmsurn ástæð-
urn dragast. Kannski hefðirðu gott
af að endurmeta mikilvægi ýrnissa
hlutaíróognæði.
IV1E Y J AN 24. ágúst-23. sept.
Þú ættir að sinna fjölskyldumálun-
urn af alvöru og alúð. Heima eru
ýmis viðfangsefni sem þú hefur
ánægju af ef þú leggur nægilega rækt
við þau. Jafnframt eru þau ekki síð-
ur þörf en hin sem meiri viðurkenn-
ingar njóta og snúa að starfsferli og
frama út á við.
SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv.
Allt er breytingum undirorpið og nú
virðast áætlanir þínar ekki lengur
ganga upp. Gakktu úr skugga unr
að allt standist hafirðu lagt drög að
ferðalagi en reyndu ekki að gína yfir
of nriklu. Þótt ekki fari allt eins og
til stendur hlotnast þér sitthvað
spennandi f staðinn.
STEINGEITIN 22. des.-20. jan.
Vantreystu ekki fólki að óreyndu.
Það er sanngjarnt að hver fái sín
tækifæri og eilíf tortryggni gerir þér
og öðrum lífið leitt. Fetaðu þá braut,
sem þú hefur markað þér, hægt en
örugglega og þá munu hindranirnar,
sem óneitanlega láta á sér kræla,
ekki reynast óyfirstíganlegar.
FISKARNIR 20. fcbr.-20. mars
Þú kemur bæði sjálfum þér og öðr-
unr á óvart með töktum sem enginn
hélt að þú ættir til. Skemmtu þér
vel, þetta er allt í góðu, en láttu þér
ekki yfirsjást gullið tækifæri til að
lífga upp á tilveruna til franrbúðar,
hvort sem það nú birtist á vinnustað
eða á heimavígstöðvunum.
í þessu blaði og þeirn næstu verður krabbinn viðfangsefnið.
Breytilegt skapferli er meðal þess sem einkennir hann og á
skiptast skin og skúrir; veðrabrigði eru snögg í sálartetri krabb-
ans. Mörgurn þykir hann nrislyndur en glaðværðin er smitandi,
skopskynið þroskað og kímnin grunduð. Ekki fer á milli
rnála þegar hann er í slærnu skapi, þá er hann dapur og niður-
dreginn en hann felur gjarnan angisl og ótta undir yfirborði
kaldhæðni. Skopskynið verður krabbanum þó oft til bjargar
og hans leið til að þola erfiðleika er að koma auga á hið bros-
lega við þá. Hann erauðsærður, viðkvæmur og skamrnt á
rnilli hláturs og gráts. Ekki ber krabbinn þó tilfinningar sínar
á torg. kýs að fara í felur nreð erfi^leika en þarfnast meiri
unrhyggju og ástúðar en hann gefur til kynna. Frjótt imyndun-
arafl og hugmyndaflugeinkenna hann. Hann er ennfrenrur
langrækinn, erfir misgjörðir við fólk í það óendanlega en dreg-
ur sírta lærdóma afþvi senr fyrir hann kenrur. Brennt barn
forðast eldinn á vel við krabbann. Hann er áhugasamur um
fortíðina og veikur fyrir stónnennum sögunnar. K.rabbinn er
vinsæll trúnaðarvinur, sýnir vinum sínum áhuga og velvild
og telur ekki eftir sér að liðsinna þeim en er dulur á eigin til-
finningar. Fái krabbinn augastað á einhverju eftirsóknarverðu
gengur hann ekki beint til verks heldur nálgast nrarkið með
eigin aðferðum og oft eftir krókaleiðum. Hann er ekki gefinn
fyrir að fara ótroðnar slóðir, vill gjarna nýta reynslu an.narra
og þekkingu. Krabbinn vill hafa sitt á þurru, vill vera vel birg-
ur. Hann óttast rnistök, tekur sjaldan áhættu og treystir ekki
á heppni. Þeir senr fæddir eru í krabbamerkinu eru tilfinninga-
næmir, hættirjafnvel til ímyndunarveiki, skríða í skel sína
þegar eitthvað bjátar á og er það þeirra vörn.
56 VI K A N 25. TBL