Vikan - 18.06.1987, Page 62
Haldið til baka, Ibiza i baksýn.
Það var dokað viö eftir
fiskimanninum sem tekið
hafði að sér að ferja mann-
skapinn út í klettinn.
Sjóferðin, sem tók um
hálftíma, gekk vel. Mann-
skapurinn kom sér í land
og samið var við ferju-
manninn um að hann næði
í okkur að tilteknum tíma
liðnum.
Nú má auðvitað deila
um ágæti þeirrar hug-
myndar að draga saklausa
ferðamenn upp á íjögur
hundruð metra háan klett
og það í þrjátíu stiga hita
og sólskini. Þegar niður
var komið og menn höfðu
hresst sig ögn á svala-
drykkjum, sem komið
hafði verið fyrir í skugga,
voru þó allir ánægðir með
tiltækið og jafnvel dulítið
upp með sér yfir unnu af-
reki. Ekki þarf að fjölyrða
um útsýnið, það var
ógleymanlegt.
Hver hcíur svo sem sagt
að sólarlandafarar eigi
bara að fara í grísaveislur
og á asnabak?
Ferðalaginu lauk svo
með sameiginlegu paellju-
áti ásamt tilheyrandi
hvítvínsdrykkju á ósvikn-
um spænskum sjávarveit-
ingastað, annað var ekki
við hæfi.
X
ö2 V I K A N 25. TBL