Vikan - 30.07.1987, Blaðsíða 7
Orkupunktar á höfði opnaðir.
ermeiraen
höfuðprýði
Á Laugavegi 28 er starfrækt þjónusta
sem hefur hlotið heitið Heilsulínan.
Aðstandendur Heilsulínunnar eru þær
Sigurlaug Williams og Áslaug Finns-
dóttir og hafa þær staðið fyrir þessari
starfsemi síðan í janúar. í Heilsulínunni
fer fram leysigeislameðferð sem stöðvar
hárlos og örvar og styrkir hárvöxtinn.
Lær stöllur segja þetta ekki lækningu
þrátt fyrir að margir hafi fengið bót
meina sinna. í þessum efnum er engu
hægt að lofa en það kemur lljótlega í
Ijós hvort fólk fær eilthvað fyrir sinn
snúð. Fiftir eitt eða tvö skipti má ráða
af viðbrögðum líkamans hvort ráðlegt
er fyrir viökomandi aðila að halda
afram í meðferðinni eða ekki. Þegar
hárrótin tekur við sér opnast húðin og
skallagljáinn ferafhenni. Þær Sigurlaug
og Áslaug leggja áherslu á að leysigeisla-
meðferð sé skynsamleg til að byrgja
brunninn áður en barnið dettur ofan í
því sjaldnast verði fólk sköllótt á einni
nóttu. Mikið hárlos er hægt að stöðva
með geislameðhöndlun í eitt eða tvö
skipti. Ef hármissirinn er orðinn varan-
legur skalli getur tekið talsverðan tíma
að græða hann upp.
Orsakir fyrir slyttislegu hári geta ver-
ið margar og ekki gott að segja af hverju
sumir þurfa sífellt að vera að láta skella
af sér meðan aðrir horfa með eftirsjá á
hvert það hár sem situr eftir í greið-
unni. Konur þurfa einnig að glíma við
þetta vandamál en í minna mæli en
karlmenn og sjaldgæfara er að þær missi
allt hárið. Eftir barnsburð er algengt að
konur fái hastarlegt hárlos og það sem
tollir eftir er gljáalaust og lepjulegt.
Vöðvabólga og mikið andlegt og líkam-
legt álag getur einnig komið fram á
hárafarinu. Allslags lytjameðferð hefur
leikið margan manninn grátt og orsakað
Texti: Sigríður Steinbjörnsdóttir
Myndir: helgi skj. friðjónsson og fleiri
\
6 VIKAN 31. TBL
Nuddrúllan góöa komin í gagnió og örvar blóðstreymiö til hárrótarinnar.
Leysiljósið leikur um hársvörðinn án þess að viðskiptavinurinn kenni sér nokkurs meins.
hárþynningu og jafnvel skalla. Það eru
því ýmsar ástæður fyrir heimsóknum
fólks í Heilsulínuna.
Meðferðin, sem fólki gefst kostur á í
Heilsulínunni, er tíu tíma orkupunkta-
meðferð. Hún hefst með því að við-
skiptavinurinn kemur sér notalega fyrir
i hægindastól. Áður en hafist er handa
fær hann lítið handfang sem hann held-
ur um þannig að jarðsamband myndast.
Þegar allt er orðið klárt er byrjað á að
opna orkupunkta á höndum og fótum.
Litlum rafstaut er þrýst á orkustöðvar
sem hafa áhrif á hárvöxtinn. Örvun
þessara líkamssvæða er mikilvægur liður
í meðferðinni. Á konum eru sautján
orkupunktar opnaðir, fjórir á höndum
en þrettán á höfðinu. Karlmenn hafa
færri orkustöðvar, eða samtals fimmtán,
sem tengjast hárvextinum. Skýringar á
jæssum mismun liggja ekki fyrir og er
lesendum frjálst að geta í eyðurnar.
Hvort þetta er einungis eitt dæmið enn
um fullkomnun konunnar skal látið
osagt.
Styrkleiki rafstraumsins, sem er not-
aður, leikur á bilinu 0,02 til 0,03 millí-
x^ött en viðurkennt hámark í geislameð-
l'erð af þessu tagi er 0,3 millívötl. Þegar
orkustöðvarnar hafa verið opnaðar er
lárið með nuddrúllu yfir hárstæðið.
Rúlían er úr kopar og gefur frá sér ör-
litla raftíðni, rétt þannig að hlutaðeig-
andi finnur titring. Nuddið byggir upp
örvefi, mýkir hársvörðinn og eykur
blóðstreymi til hárkirtlanna. Þessi örvun
hefur ákaflega heillavænleg áhrif á hár-
rótina sem bregst þannig við að hárið
tekur að vaxa. Þriðja og síðasta stigið
i meðferðinni er sjálft leysiljósið. Litlu
tæki, sem líkist gildum penna með rauðri
peru fremst, er beint að hárstæðinu og
liöfuðið baðað í geislanum. Þetta geisla-
llóð styrkir nýgræðinginn og örvar
starfsemi hárkirtlanna. Með hjálp leysi-
geislans kemst á jafnvægi i ákveðnum
orkustöðvum líkamans og blóðstreymið
eykst til þeirra. Þessi meðferð byggist á
hliðstæðum aðferðum og nálastunguað-
ferðin en í stað þess að margstinga á
jressa staði er geislanum rennt augnablik
vfir þau svæði serp þarfnast örvunar.
Viðskiptavinurinn finnur ekki fyrir
neinum sársauka meðan á þessu stend-
ur. Að nokkrum dögum liðnum má
hann þó búast við að finna ertingu í
hársverðinum en það eru nokkurs konar
vaxtarverkir þegar nýju hárin fara að
vaxa.
Aratuga
píslargöngu lokið
Kolbrún Jónsdóttir er fimmtug hús-
inóðir í Reykjavík. Þegar hún var um
tvítugt fékk hún heiftarlega tannrótar-
bólgu sem olli því að tennurnar týndu
tölunni og hurfu loks allar sem ein. Það
var mikið áfall fyrir Kolbrúnu sem
kornunga stúlku að verða tannlaus en
jró reyndust eftirköstin henni enn þyngri
i skauti. Hárið, sem áður hafði verið
j)ykkt og gljáamikið, fór að detta af og
liún mátti horfast í augu við þá stað-
reynd að vera komin með skalla. í fyrstu
31. TBL VIKAN 7