Vikan - 30.07.1987, Blaðsíða 14
Kofamir eru af ýmsum stærðum og gerðum og hæpið að nokkur arkitekt eða skipulagsfræðingur hafi komið nærri við byggingu þeirra.
það lúið að sjá, eins og báturinn í heild.
En einhvem veginn finnst mér að það
þyrfti ekki mikið til að gera þcnnan bát
haffæran að nýju. Bak við þá tvo báta,
sem á hefur verið minnst, sér í fleiri en
við gerum enga tilraun til að lýsa þeim
að sinni. Og þó, við skulum líta á einn
bátinn enn. Hann hallar sér á hægri byrð-
inginn og liggur tunna við skutinn stjóm-
borðsmegin. Eins og flestir bátarnir, sem
liggja skammt frá, er þcssi nokkuð þreytu-
lcgur. En hann er fallega lagaður súð-
byrðingur. Stýrishúsið er myndarlegt og
sama er að segja um lúkarinn sem hval-
bakurinn skýlir, fallega lagaður hvalbakur
og er brimbrjótur á. Það er ekki hægt
að láta hjá líða að rissa upp mynd af
þessum báti og upplagt að hafa Esjuna
í baksýn. En það er greinilcgt að þcssi
bátur, eins og hinir fyrri, man sinn fífil
fegri og fná mikið við hann gera ef hann
á að komast á sjó að nýju.
Nú hafa plastbátamir leyst gömlu tré-
bátana af hólmi að mestu leyti. Plast-
bátamir eru steyptir í heilu lagi en þeir
eru sumir „súðbyrtir“ og er það trú
margra sjómanna að súðbyrðingarnir fari
betur í sjó en þeir sléttu.
Já, það er margt að skoða í Öifirisey
þó rómantíkin hafi að miklu leyti orðið
að víkja fyrir tæknivæðingu nútímans.
Elskendur dagsins velja sér tæpast lengur
að fara í gönguferð út í jxssa lýrrum
paradís þar sem Þórbcrgur stundaði sjó-
böð af kappi fyrr á tímum.
En nútíminn hefur ckki ennþá náð að
afmá ýmsa griðastaði sjávarsíðunnar.
Þannig er til dæmis enn að finna fomlega
útgerð við Ægisíðuna. Við skulum ljúka
þessu raupi með stuttri heimsókn þang-
að. Við göngum niður að kofaþyrpingu
sem stendur á sjávarkambinum. Þar kem-
ur „mótífið“ upp í hendumar og ekkert
að gera annað cn taka upp teikniblokkina
og rissa upp mynd af því sem fyrir augun
ber. Mikið ber á trönum þar sem grá-
sleppuböndin cru hengd upp en það er
greinilegt að langt er liðið á vertíðina og
fátt eftir af því ljúfmeti. Kofamir em af
ýmsum stærðum og gerðum og hæpið
að nokkur arkitekt eða skipulagsfræðing-
ur hafi komið næni við byggingu jxirra.
Ryðgað spil stendur í háu grasinu og
stokkur frá því í læstan trékassa. Það er
lítill vandi að gera sér í hugarlund að í
kassanum sé mótorinn sem notaður er
til að knýja spilið en það er í fullri notk-
un. Það sést glöggt jxgar við fylgjum
stálvírnum úr spilinu og niður í fiæðar-
málið þar sem vírinn endar í vagni sem
notaður er til að sjósetja báta þarna í
grýttri hafnleysunni og einnig er vagninn
notaður til að setja bátana jxgar jxir
koma af sjó. I grasinu bak við skúrana
hvolfir gamall gi'ásleppubátur sem lokið
hefur sínu hlutverki og er breitt yfir hann
rauðmaganet, svona eins og til jxss að
honum verði ekki kalt.
Láturn svo lokið raupi og rissi að sinni.
14 VIKAN 31. TBL