Vikan - 30.07.1987, Qupperneq 34
Lífið gekk sinn vanagang í Breiðholtinu og
Sigga var send út í búð eins og aðrar litlar
stelpur. Eitt sinn skaust hún út í búð fyrir
mömmu sína. Hún keypti inn og fékk mikla
peninga í afgang. Þá var hún aðeins átta ára
og gerði sér því ekki alveg grein fyrir hversu
mikið hún var með í buddunni. Sigga litla
hélt fast í budduna hennar mömmu sinnar
og valhoppaði heim á leið. Hún átti stutt
eftir þegar nokkrir strákar stöðvuðu hana
og spurðu hvort hún hefði verið í búðinni.
Svarið var jákvætt. Þeir vildu þá vita hversu
mikið hún ætti af peningum. Sigga var ekki
alveg viss og opnaði því bara budduna til
að sýna strákunum. Þeir voru þá ekki lengi
að grípa peningana og hlaupa í burtu.
Sigríður Beinteinsdóttir býr enn í Breið-
holtinu. Þó hún sé ekki há í loftinu hefur
hún vitkast mikið á þeim tíma sem liðinn
er enda orðin tuttugu og fiinm ára.
Tónlist og veggjöðrun
ættgengir eiginleikar
Söngferillinn hófst fyrir um það bil sex
árum. Um skeið hafði hún fiktað við gítar-
spil og söng fyrir sjálfa sig en enginn átti að
heyra þessar tónlistartilraunir. Af slysni
heyrði vinkona Siggu til hennar. Henni
fannst Sigga efnileg og hvatti liana til að
syngja opinberlega. Sigga var ncikvæð í
fyrstu, hafði litla trú á sjálfri sér á söngsvið-
inu. Vinkona hennar setti hcnni þá afarkosti
að annaðhvort gæfi hún sig fram og svaraði
auglýsingu frá hljómsveit sem vantaði söng-
konu eða að þær myndu ekki sjást framar.
Sigga sló til, heilsaði upp á strákana í hljóm-
sveitinni og var ráðin. Þetta var bílskúrsband
úr Kópavoginum sem kom ekki nema einu
sinni fram opinberlega, í Félagsstofnun stúd-
enta. „Það þótti afskaplega merkilegt að
komast að í Félagsstofnun á þessum tirna,"
segir hún dreymandi á svip. Þetta hafa
greinilega verið góðir tímar.
Síðan lá leiðin í hálfgerða pönkhljómsveit
sem hét Meinvillingar. Sú hljómsveit starfaði
þó ekki lengi. Eftir þetta hófst ferill Sigríðar
Beinteinsdóttur söngkonu fyrst fyrir alvöru.
Hún hóf upp raust sína í hljómsveit sem
margir muna eftir. Nafn hljómsveitarinnar
var Kikk. Kikkið starfaði saman í þrjú til
fjögur ár. Helsta afrek þess var útgáfa einn-
ar plötu sem kölluð var eftir hljómsveitinni.
Kikk flutti blandaða tónlist og spilaði einnig
mikið á sveitaböllum. „Frá þessurn tíma man
ég helst eftir tveim stöðum á landinu sem
mér fannst skemmtilegast að syngja á. Það
eru Hellissandur og Vestmannaeyjar. Stemn-
ingin var alltaf góð. A þessum stöðum eru
allir hressir þegar þeir skemmta sér.“
Á sama tíma og Kikkið var að taka upp
plötuna heyrði Björgvin Halldórsson upp-
töku með rödd Sigríðar. Hann hringdi í
hana og bauð henni að syngja inn á plötu
með HLH flokknum. Hún sló til og hefur
það sennilega verið þar sem þjóðin tók fyrst
verulega eftir stúlkunni.
„Ég stefndi ekki hátt i söngnum til að
byrja með. Ég pældi ekkert í því. En auðvit-
að reynir maður alltaf að gera sitt besta og
vonast til að geta náð sem lengst. Annars
hefur þetta mikið komið af sjálfu sér hjá
mér og allt gengið alveg ótrúlega vel. Ég sé
að minnsta kosti ckki eftir því að hafa byrj-
að.“
Feimni er nokkuð sem alltaf hefur háð
Siggu. Ef vinkona hcnnar hefði ekki ýtt
hressilega á hana væri hún ekki söngkona
núna. Feimnin hefur lagast mikið en sviðssk-
rekkurinn er ekki horfinn. Á sviði er hún
ávallt mjög stressuð í byrjun. Með tímanum
hverfur þó hnúturinn í maganum og henni
fer að líða vel. „Mér finnst oft mjög gott
að syngja til að losna við spennu. Ég fæ al-
gera útrás, sérstaklega ef ég get öskrað nógu
mikið," segir hún hlæjandi.
Eftir gagnfræðaskóla fór Sigríður í Árm-
úlaskólann og hóf nám á viðskiptabraut en
áttaði sig á að námið átti ekki við hana.
Skólinn var því lagður á hilluna og hefur
hún síðan unnið við veggfóðrun með söngn-
um. I vor vann hún við að veggfóðra á
Holiday Inn hótelinu í Reykjavík. Þar var
hún eina konan meðal tuga karlmanna.
Sigga kann ágætlega við sig í starfinu innan
um alla karlmennina. Hún segir að konum
fari ört fjölgandi í iðnaðarmannastéttinni
enda sé ekkert sem mæli á móti því að þær
hasli sér völl á því sviði sem öðrum. Vegg-
fóðrarastarfið hefur gengið í erfðir í ættinni.
Mjög margir í fjölskyldunni vinna við þetta.
„Pabbi og bróðir hans eru veggfóðrarar.
Nú, svo eru tveir bræður mínir í þessu og
sá þriðji jafnvel að byrja. Það má svo sannar-
lega segja að þetta sé ættgengt. Kannski
söngurinn sé ættgengur líka. Þó eru engir
frægir tónlistarmenn í fjölskyldunni en einn
og einn úr föðurættinni hefur komið nálægt
hljómlistarbransanum."
Reimleikar í Noregi
Sigga dvaldist í Noregi í eitt ár. Hún kom
til_ baka í fyrra og varð heimkomunni fegin.
„Ég kann ekki við Norðmenn. Þeir eru
ósköp indælir á yfirborðinu en mér virðast
þeir ekki vilja hafa útlendinga í landinu. Svo
eru þeir ferlega nískir, mér finnst þeir bara
sveitalegir í öllum háttum," segir hún ákveð-
ið.
„Ég lenti líka í mjög óskemmtilegri reynslu
úti í Noregi, nokkru sem ég hef aldrei upplif-
að fyrr né síðar. Þannig var að ég bjó í
stórri íbúð í ævagömlu húsi. Það var byggt
fyrir aldamótin njtján hundruð. Ég fékk
íbúðina leigða með húsgögnunt sem voru í
stil við húsið, eldgömul. ljót og skitug. Mér
leist ekkert á húsgögnin og setti þau þvi inn
í ónotað herbergi. Þar geymdi ég þau en
keypti mér í staðinn það nauðsynlegasta
nýtt. Nokkru seinna fór ég og keypti mér
nokkur rauðvínsglös úr gleri. Þegar heim
kom raðaði ég glösunum snyrtilega á bakka
inni í eldhúsi, svona til skrauts. Um kvöldið
settist ég niður fyrir framan sjónvarpið og
ætlaði að hafa það notalegt ásamt vinkonu
minni sem var hjá mér þetta kvöld. Við vor-
um ekki búnar að sitja lengi þegar við
heyrðum rnikið glasaglamur úr eldhúsinu.
Mér datt helst í hug að einhver titringur
hefði komið utan frá, til dæmis frá spor-
vagni sem keyrt hefði fram hjá. Samt gerði
ég mér ferð fram i eldhúsið og færði glösin
fjær hvert öðru á bakkanum. Þegar ég var
sofnuð um nóttina vaknaði ég upp við að
aftur klingdi í glösunum. Ég leit þá á klukk-
una og sá að hún var á slaginu Qögur. Ég
titraði af hræðslu en um síðir tókst mér að
festa svefn. Ég var rétt nýsofnuð þegar
hljómurinn heyrðist aftur, þá var klukkan
nákvæmlega fimm. Þá fékk ég nóg, fór fram
úr og færði glösin þannig að ekki væri mögu-
Kikk heldur uppi tjöri á balli i Olafsvik fyrir tveimur árum.
34 V'IKAN 31. TBL