Vikan - 13.08.1987, Qupperneq 20
Vikan — eldhús
MEXÍKANSKIR HRAÐRÉTTIR
Réttir, sem eiga rætur að rekja til
Mexíkó, hafa fallið i kramið hjá
Bandaríkjamönnum mörg undanfarm
ár. Bandaríkjamenn hafa af hugviti
útfært mexíkónsku réttina og aðlagað
)á hraðmatarmenningunni. Þar oer
íelst að nefna ýmiss konar maískorn-
cökur með kjöt- og baunafyllingu.
^rægastir rétta eru efalaust tacos, nac-
íos og guaccomole, tilvaldir í gestaboð.
Tacoskeljar með kjötfyllingu
Tacoskeljarnar eða bátarnir fást í
verslunum. Það eru maíspönnukökur,
tortilla, sem steiktar hafa verið í feiti
og siðan beygðar. Skeljarnar eru fyllt-
ar með kjöthakki, grænmeti, osti og
sterkri sósu.
500 g nautahakk
1 lítil dós tómatkraftur
1 msk. chiliduft
!4 tsk. cayennepipar
1-2 bollar vatn
/i-l msk. salt
Stillið ofninn á 150 gráður. Steikið
hakkið á pönnu og hellið allri fítu af.
Bætið vatni, tómatkrafti og kryddi á
pönnuna og látið sjóða í 10 mínútur.
Bætið við vatni ef þarf. Kássan á að
vera þykk og vökvalaus. Setjið nokkr-
ar matskeiðar af kjöti í hverja skel og
bakið í ofni í um 5 mínútur. Við það
mýkist skelin, verður bragðbetri og
auðveldara er að borða hana. Þegar
skeljarnar eru komnar á borðið setur
hver matargestur fyrir sig ofan á rétt-
inn saxað ísbergsalat eða íslenskt
hvítkál, litla tómatbita, rifinn maribó-
ost og efst sterka tómatsósu, tacosósu,
sem fæst tilbúin á glösum en betra er
að búa til heima.
Tacosósa
1 lítil dós niðursoðnir tómatar
1-2 hvítlauksrif
1 lítill laukur
1 paprika
!4 tsk. cayennepipar
!4 tsk. salt
1 tsk. sykur
!4 tsk. Aromatkrydd (þriðja kryddið)
Saxið lauk og papriku smátt og hitið
í matarolíu í potti þer >,ii hvort tveggja
er gljáð og mjúki en ekki brúnað. Merj-
ið tómatana í hrærivél eða með gaffli
og setjið ásamt soði í pottinn. Merjið
hvítlaukinn og bætið ásamt kryddinu
í pottinn. Kryddið meira eða minna
eftir smekk. Látið mesta hitann rjúka
úr sósunni.
Guaccomoleídýfa.
ídýfa þessi er afar vinsæl á mexí-
könskum veitingastöðum í Bandaríkj-
unum og þá gjarnan borin fram á
undan máltíð með svokölluðum nac-
hos eða maískökufíögum.
1-2 avókadóperur (eftir stœrð)
2 vel þroskaðir tómatar
1-2 hvítlauksrif
safi úr tœplega hálfri sítrónu
salt framan á hnífsoddi, nýmalaður pipar
eftir smekk
cayennepipar framan á hnífsoddi
Afhýðið avókadóperurnar og tómat-
ana. Merjið þær með gaffli eða í kvörn
og hrærið saman. Merjið hvítlaukinn
og kreistið safann úr sítrónunni.
Blandið öllu saman, kryddið og kælið
vel. Berið fram með nachoflögum (fást
víða í búðum) eða kexi og snakki.
20 VIKAN 33. TBL