Vikan


Vikan - 28.12.1987, Page 5

Vikan - 28.12.1987, Page 5
Hér era þeir matreiðslumennimir glæsulegu í Framanda: F.v.: Ásgeir H. Erleingsson, Hótel Holti, Sturla Birgis, Holiday Inn, JóhannJacobson, Holiday Inn, Francois Louis Fons, Broadway, Jóhann Sveinsson, Lækjarbrekku, Snorri Birgir Snorrason, Hard Rock Café, Öm Garðarsson, Lækjarbrekku, formaður klúbbsins, Bjöm Erlendsson, Ópera, Þórarinn Guðmundsson, Hótel Sögu, og Sverrir Halldórsson, Holiday Inn. Matreiðsjumeistaraklúbburinn Framandi gengur til liðs við Vikuna! Okkur er það sönn ánægja að tilkynna lesendum Vikunnar að matreiðslumeistarar í klúbbnum Framandi munu ganga til liðs við Vikuna og ætla að vera til skiptis með upp- skriftir af gómsætum réttum eins og þeim einum er lagið að matreiða. Eftir áramótin, þegar jólasteikin er farin að sjatna verulega, munum við hefja samvinnuna og birta fyrstu matarupp- skriftina. Hver meistar- anna það verður sem ríður á vaðið vitum við ekki enn og bíðum eftir því, jafn spennt og lesendur, að sjá hvað það verður sem þeir munu bjóða okkur. Samvinna og metnaður Klúbburinn Framandi hefur starfað í nokkurn tíma, en segja má að þeir hafi ekki kom- ið upp á yfirborðið fyrr en ný- lega þegar þeir kynntu sig og markmið sín á Holiday Inn hótelinu í byrjun desember. Meðlimir í klúbbnum verða að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá inngöngu, en þegar inn er komið þá hafa þeir að mark- miði að vinna saman og miðla þekkingu sín á milli. Auk þess er ætlast til að hver meðlimur leggi sig fram við að viðhalda hæfileikum sínum, t.d. með því að fara á námskeið erlendis, einnig ætlar klúbbur- inn að koma á tengslum við veitingahús erlendis. Framandi menn vilja fáera íslenska matar- gerð á enn hærra stig og jafh- vel í nýjan búning og til þess að það megi takast vilja þeir aukna fjölbreytni í hráefni. Vorboðinn Ijúfi Þeir vilja m.a. fa að nýta þann fisk sem nú er hent út- byrðis af bátunum. Stefna að því að nota ávexti, grænmeti og ferskar jurtir frá íslenskum bændum og vilja jafhframt að fjölbreytnin í ræktun verði aukin. Eitt af forvitnilegri markmiðum þeirra er að þeir vilja gjarnan geta haft villta smáfugla á boðstólum. Smá- fugla eins og hrossagauk, lóu, spóa, kjóa og þröst, en hvort íslendingar eru reiðubúnir til að borða „vorboðann ljúfa“ er annað mál. Auk þess eru flestir þessara fúgla friðaðir hér á landi en ekki í nágrannalönd- unum. Forvitnilegur hóstakirtill Þetta eru enn sem komið er aðeins óskir matreiðslumann- anna, aftur á móti ætti að vera auðveldara fyrir þá að fá það kjötmeti sem þeir vilja. í því sambandi vilja þeir nota kjöt sem slátrað er reglulega yfir allt árið og jafnframt verkað og látið hanga á þann hátt að það verði sem allra best hráefhi. Innmat vilja þeir gjarnan nota meira og þar á meðal hósta- kirtil! - B.K. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.